Félagsbréf - 01.10.1965, Page 19

Félagsbréf - 01.10.1965, Page 19
Dr. Alexander Jóhannesson Kveðja jrá Almenna bókafélaginu Dr. Alexander Jóhannesson, fyrrverandi háskólarektor, lézt 9. júní s.l. Idann var einn þeirra manna, sem stóðu að stofnun Almenna bóka- félagsins fyrir röskum tíu árum, var í stjórn þess frá upphafi og lét sér alla tíð mjög annt um vöxt þess og viðgang. Á því félagið honum miklar þakkir að gjalda og kveður hinn látna heiðursmann með söknuði. Slarfsævi dr. Alexanders hófsl um svipað leyti og ísland endur- heimti fullveldi sitt. Sá mikli sigur, sem þá hafði unnizt, hleypti ung- um mönnum kappi í kinn og efldi vilja þeirra til að vinna þjóð sinni það gagn, er þeir mættu. Þessi kynslóð, sem var nýstigin út úr gamalli fortíð, kunni enn skil á baráttu feðra sinna og varð af þeim sökum uæmari en ella á skyldurnar vio þjóðerni sitt og þjóðfélag. Vera má, að í mörgu brjósti hafi sá eldmóður, sem fullveldistakan vakti, átt sér æði- skamman aldur, en svo var ekki um dr. Alexander Jóhannesson. í hjarta hans logaði eldur áhugans fölskvalaust til síðustu stundar. Hon- um var það ævihugsjón að koma þjóð sinni til þroska og gera lilut hennar sem mestan í öllum efnum. Þess vegna undi hann flestum verr hvers konar undanslætti frá réttindum hennar og hagsmunum, og hon- um var að sama skapi sú raun sárust, þegar þjóðin brást heilbrigðum oietnaði sínum og sjálfsvirðingu. Dr. Alexander hafði mætur á fögrum bókmenntum, einkum skáld- skap í bundnu máli, og lcitaði sér þar hvíldar í strjálum tómstundum. h-n að langmestu leyli sncrust ritstörf hans um málvísindi, germönsk FÉLAGSBRÉF 11

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.