Félagsbréf - 01.10.1965, Page 26

Félagsbréf - 01.10.1965, Page 26
væru fáanlegar til afnota bækur, sem ekki varð ætlazt til, að lestrarfélög ein- stakra sveita gætu aflað sér —- og þá ekki sízt erlendar. í Sunnlendinga- fjórðungi mun Landsbókasafninu hafa verið ætlað að gegna þessu hlutverki, þó að raunar væri því einkum ætlað að vera safn alls landsins, safna bókum og handritum, sem gætu komið öllum þeim landsmönnum að gagni, sem stunduðu fræðaiðkanir, er krefðust mik- ils og margvíslegs bókakosts, en svo sem alkunnugt er, var Landsbókasafnið stofnað árið 1816. Auk amtsbókasafna og lestrarfélaga voru víða um land stofnnð sýslubókasöfn, og var lagt á það mjög mikið kapp í sumum sýslum að afla þeim merkilegs bókakosts, og víst er unr það, að bæði þau og lestrar- félögin höfðu mikil menningarleg og félagsleg áhrif, sem til má rekja margt mjög verðmætt á vettvangi bókmennta- legrar og þjóðfélagslegrar þróunar. Fram að því, að almenn skóla- skylda var lögboðin hér á landi á fyrsta áratugi þessarar aldar, fékk allur þorri manna ekki aðra fræðslu en þá, sem heimilin —- að nokkru með aðstoð merkra klerka — gátu veitt þeim og þeir fengu síðan öðlazt af sjálfsdáðum úr þeim bókum, sem þeim tókst að afla sér, en auðvitað var sú fræðsla mjög takmörkuð, enda misjafnt þá eins og nú, hve menn voru fróðleiksfúsir og lögðu mikið að sér til að verða sér úti um þekkingu. En sjálfsfræðslan hafði þó um aldir reynzt þjóðinni veigameiri stoð en ef til vill nokkurri annarri þjóð, sem sagan kann skil á. Hún hafði verið hollur verndari íslenzkrar tungu og þeirra menningarerfða, sem nærðu vitund þjóðarinnar um að hún væri sér- stök þjóðarheild —- og gæddu hana þeim andlegum metnaði, sem fékk því áork- að, að margur kotungur í tötrum var höfðingi í hugsun. Og á 19. öldinni fékk þjóðin reynslu af því, að með hjálp almenningsbókasafns, gátu menn aflað sér bóklegs fróðleiks, sem var þeim ómetanleg stoð í viðleitni þeirra til aukins víðsýnis og almenns þroska. Þegar skólaganga í einhverri mynd, varð lögbundin skylda, liafði fyrir nokkru hafizt allvíðtæk breytiþróun í atvinnuvegum íslendinga. Sjávarút- vegurinn hafði færzt í aukana og tók í sína þágu meiri tækni en áður hafði þekkzt í atvinnuvegum þjóðarinnar. Hann krafðist aukins mannafla og gerði fátæku fólki fært að stofna heim- ili, án þess að það aflaði sér jarðnæðis og bústofns. Ennfremur gaf hann dug- andi mönnum og framsæknum vonir um efnahagslegt gengi, þótt þeir færu snauðir úr föðurgarði. Fólk fluttist því úr sveitunum að sjávarsíðunni, enda flest í búskaparháttum bænda með sama eða svipuðu sniði og það hafði verið um aldir — og þessi þróun hef- ur haldið áfram, hvort sem ráðandi mönnum hefur líkað betur eða verr, en eitt af því, sem þótti ótvíræður kost- ur við búsetu í þorpum og bæjum, var hinn mikli munur á skólagöngu og fræðsluskilyrðum þar og í sveitunum, enda hafði sú orðið raunin, að þjóðin, 18 FÉLAGSBRÉF

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.