Félagsbréf - 01.10.1965, Side 56

Félagsbréf - 01.10.1965, Side 56
finnst mér það ávinningur, að Indriði fór nýja leið af mikilli dirfsku, skrif- aði fyrstu íslenzku nútímaskáldsöguna, þar sem sterkra áhrifa gætti frá hin- um „harðsoðna“ stíl Hemingsways og fleiri Ameríkumanna, og lét sögu sína „gerast í stílnum“. 79 af stöðinni var einmitt ánægjulegur bókmenntavið- burður á Islandi 1955, af því að ung- ur höfundur fór þar nýjar leiðir. Mér kæmi ekki á óvart, þó að hún yrði síðar talin hafa markað nokkur tíma- mót. Vinsældir sögunnar hafa orðið mikl- ar á íslenzka vísu; hún hefur komið út í þremur útgáfum, auk þess sem hún var kvikmynduð sumarið 1962, eins og flestum er í fersku minni. Og mér er sjmrn: Er okkur ekki ávinningur að því, að einhverjir þori að brjóta ný lönd og færa út svið tungu og bók- mennta, eins og ég tel, að Indriði G. Þorsteinsson liafi tvímælalaust gert með 79 af stöðinni, þó að þeir læri um leið sittlivað af öðrum? Þriðja bók Indriða, Þeir sem guð- irnir elska, kom út árið 1957 og bar undirtitilinn: Stuttar sögur. Þetta voru tíu sögur, eins og í Sæluviku, og stuttar sögur var e.t.v. meira réttnefni en smásögur að því leyti, að í fæstum þeirra var sögð saga, þar sem allir at- burðir lniíga að einu miði og ákveð- inni lausn, heldur hafði höfundurinn þann hátt á, sem sumir nútímahöfund- ar liafa tíðkað mjög um skeið: að bregða ujjp stuttum, snöggum mvnd- um með samtölum og nákvæmri lýs- ingu ýmissa hluta og ytri fyrirbæra, láta myndina sjálfa og drætti hennar tala sínu máli. Annars er óþarfi að fjölyrða um sögurnar í Þeir sem guð- irnir elska. Þær báru þess merki, að höfundurinn hafði víða farið, m.a. til Kína og Bandaríkjanna, því að þrjár þeirra gerast erlendis. Eins og endra- nær, var sveitalífið lndriða mjög ná- komið og söguefnin flest sprottin úr jarðvegi, sem hann þekkti. Stíll sagn- anna var sömu ættar og áður í 79 af stöðinni, en fæstum komu þær á óvart, sem fylgzt höfðu með Indriða fra upjdiafi. Raunar voru þær flestar betri en þær sögur, sem áður höfðu hirzt eftir hann og einkum betur unn- ar, en það var varla Iiægt að segja, að þær bættu nýjum drætti í mynd höf- undarins eða ykju miklu við liæð' hans. Að sjálfsögðu voru þær misgóðar, en sumar þeirra, eins og Að enduðum löngum degi og I björtu veðri, eru að mínum dómi góðar sögur, sú fyrr' nefnda með beztu smásögum Indriða. Önnur skáldsaga hans, Land og synir, kom út haustið 1963. Það er nær helmingi lengri saga en 79 ar stöðinni og veigamesta verk Indriða til þessa. í 79 af stöðinni hafði hann sagt sögu sveitamanns, sem fluttur var a mölina, en sneri lieim aftur. í Landi og sonum, sem gerist norðanlands a kreppuárunum eitt haust frá þvi að göngur hefjast og fram í fyrstu snjoa, segir hann hins vegar sögu ungs bonda- sonar, sem ekki vill kjósa sér það hlut- skijJti að halda áfram húskap á jór<-'1 44 FÉLAGSBRÉF

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.