Félagsbréf - 01.10.1965, Page 57

Félagsbréf - 01.10.1965, Page 57
nýlátins föður síns, sem hokrið hefur ekki gefið annað í aðra hönd að ævi- lokum en 2385.63 kr. verzlunarskuld. I sögulok tekur Einar Ólafsson frá Gilsbakka sér far með rútunni að heiman, en stúlkan hans verður eftir handan við eylendið. „Og þá vissi hann þessu var lokið.“ Af þessu má sjá, að þó að 79 af stöðinni og Land og synir séu hvor um sig sjálfstæðar sögur, standa þær í sterkum, rökréttum tengslum livor við aðra, og sú síðarnefnda gæli vel verið npphaf þeirrar fyrri. Lhn Land og syni og tengsl hennar við 79 af stöðinni hefur Indriði sjálfur sagt í viðlali: „Hún (þ.e. Land og synir) er stað- sett í fortíðinni — fyrir stríð. Við get- um dregið hreinar línur milli tveggja tímabila með árinu 1939. Eftir stríðið og hernámið liafa verið allt aðrir tím- ar og önnur sjónarmið í gildi en á þeim árum, sem mörkuðust af krepp- unni og fólki hennar. 79 af stöðinni fjallar um seinna timabilið, en í báð- "m bókunum, henni og Landi og son- uin, — er ég að skrifa um minn tíma og samtíð okkar, þó að ég liafi byrjað a seinna tímabilinu og bækurnar séu Jíví ekki skrifaðar í réttri „krónóló- gískri“ röð. Hins vegar verða þær ekki slitnar sundur frekar en þróunin sjálf, þó að þær fjalli ekki nákvæmlega um sama fólk og sama tíma. Það hafa sum- lr haldið, að endirinn á 79 af stöðinni væn einhvers konar tilviljun eða bók- nienntaleg slembilukka, en það er ekki rétt. Mér er fyllilega ljóst, hvað ég hef verið að skrifa. Land og synir er m.a. samin til að undirstrika það. í lienni er fjallað um manninn, sem fer brott, og af hverju hann fer. Hún er um aðfarann að brottför manna að lieiman sem síðan eiga ekki aftur- kvæmt, — manna eins og Ragnars í 79 af stöðinni. Sú bók var aftur á móti um þann, sem er farinn brott, ætlar heim, en kemst ekki, vegna þess að það hefur aldrei verið nein forsenda fyrir jiví, að menn sneru aftur til þess tíma, sem var.“ Um Land og syni gildir hið sama og 79 af stöðinni: verkið á sér traust- an, samfélagslegan bakgrunn, sem eyk- ur jiví gildi, því að fyrir höfundinum vakir ekki aðeins að segja sögu, heldur lýsa afdrifaríkum þætti þjóðfélags- þróunarinnar á ákveðnu árabili á raunsæan hátt. Grunntónn beggja sagn- anna er sterkur tregi, en hann er miklu freniur sprottinn af óumflýjanlegum samfélagsbreytingum, sem ekki hafa gerzt sársaukalaust síðustu áratugi, — af jieirri þolraun kvíða og öryggis- leysis, sem það kostar að slíta tengslin við uppruna sinn og umhverfi og reyna að fóta sig á ný, en af örlögum sögu- fólksins, því að þau eru út af fyrir sig ekki merkilegri en margra annarra. En Land og synir er meira verk og stærra í sniðum en 79 af stöðinni, — breidd sögunnar er meiri, og eftir út- komu hennar er skerfur Indriða G. Þorsteinssonar til íslenzkra samtíma- bókmennta orðinn æði þungur á met- unum. FÉLAGSBRÉF 45

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.