Félagsbréf - 01.10.1965, Side 71

Félagsbréf - 01.10.1965, Side 71
notið þjálfunar; sagan á að grann- skoða, hversu listgáfa inegi njóta sín, þótt fram sé komin í óhefluðum járn- brautarsmábæ úti á sléttunni, og hversu amerískur frumbýlingur fái liafizt yfir umhverfi, sem snautt er af menningar- erfðum og list, til háþroska sem per- sóna og listamaður. Hér sjáum vér færast í aukana þau átök, sem síðar gerast hörð, ekki að- eins í 1íún Antónía mín, heldur og í «Einn af oss“ (One of Ours, 1922), j,Hús prófessorsins“ (The Professor’s House, 1925), „Dauðinn kemur að sækja erkibiskupinn“ (Death comes for the Archbishop, 1927), „Skuggar á ■úettinum“ (Shadows on the Rock, Í931), og allmörgum smásögum, svo sem „Granni vor Rosicki“ (Neighbor Rosicki). Er eins og Willa Cather Eugsi sér iandnámsviðhorf heimahag- anna líkt því, að saklaus, blómleg og efniieg yngismær gangi í hjónaband ^neð heillandi og veraldarvitrum, en rosknum manni. Hinn þýzki söngkenn- ari Theu Krónborg, Herr Wunsch, er fyrstur af þessum siðmenntuðu og lán- lausu Evrópumönnum, sem fyrirfinnast margir í sögum Willu Catlier, — út- Eigum, sem skila list og lífsgildum í hendur framgjörnu ungu fólki hins nýja lands, þótt sjálfir hljóti þeir að farast. Thea er -— eins og Alexandra Eergson hafði verið á undan lienni og Antónía Símerda verður síðar — í þeim úrvalshópi annarrar landnema- hynslóðarinnar, sem tileinkar sér eða heldur fast við sumt af hinum vits- munalega og listræna arfi frá Evrópu, án þess að fara á mis við hið nýja og ferska í amerísku lífi, og án þess að lenda, eins og algengast var, í gildru gróðahugsunar og misheppilegrar „hagkvæmni“. Allar eru sögur þessar á sinn hátt velgengissögur og allar spegla þær einkar ameríska leit eftir hugsun og sókn fram til samlögunar og öryggis. En „Söngur lævirkjans“ var ekki allskostar sá söngur, sem féll að rödd Willu Cather. Eða öllu heldur, þetta var rétta lagið, en hún söng það ekki nógu vel. Saga baráttunnar, sem Thea Krónborg varð að heyja til að verða óperusöngkona, er sögð með raunsæi, sem eltir smáatriðin svo út í æsar, að það gerir mann dauðuppgefinn; enda fór svo um síðir, að þessi nákvæmni varð höfundinum álíka þyrnir í aug- um og tilgerðin í „Brú Alexanders“. Komst hún seinna að þeirri niðurstöðu, að „ofgnótt smáatriða verður gjarna dálítið lágkúruleg — eins og íburður í livaða mynd sem er“. Hún reyndi aldrei aftur „altæmingar“-aðferðina. Þegar næsta bók kom á vettvang, „al- veg af sjálfu sér og án þess að ég réði þar nokkru um stefnuna“, hvarf hún inn á sömu braut og „Þér landnemar!“ hafði farið, — ekki sömu braut og „Söngur lævirkjans“. Þessi næsta hók var svo, náttúrlega, Hún Antónía mín. Ekki þræddi hún þó nákvæmlega sömu slóð og „Þér Iandnemar!“. Að vísu er Nebraska enn sem fyrr sögusvæðið, og enn er FÉI.AGSBRÉF 59

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.