Frón - 01.01.1944, Síða 37

Frón - 01.01.1944, Síða 37
Ferming 31 1 næturmyrkrinu kemur angistin yfir hann eins og martröS, hjarta hans berst um og hann svitnar af hrolli. Honum finnst djöfullinn horfa á sig me5 andstyggilegu glotti einhvers staðar langt utan úr skugganum, og langar, hvassar klær koma nær og nær, reiðubúnar til að grípa hann og draga hann með sér út í glötunina. Hann hlustar á taut Hildar gömlu þegar hún þylur Passíusálm- ana fyrir munni sér: Mér virðist svo sem mín misgjörð sé meiri að þyngd en himinn og jörð, því Jesús það föðursins orðið er, sem allt með sínum krafti ber, flatur hlaut þó að falla þar, þá fyrir mig bar liann syndirnar. Hjartans gleði og huggun traust hér gefst þér, sál mín, efalaust, það gjald fyrir mína misgjörð er meira vert en himinn og jörð, hans sorg, skjálfti og hjartans pín hjá Guði er eilíf kvittun mín. Er þetta trúin scm presturinn talar um? Er þetta að treysta á Guðs náð? En hvernig getur maður treyst á Guðs náð, ef maður veit ekki einu sinni hvort Guð er til, og veit ekki annað um sjálfan sig en að maður er fátækur, lítill drengur sem aldrei hefir óskað öðrum neins ills. Vcrður maður þá að vera syndari til þess að geta öðlazt Guðs náð? Klukkunum er hringt með undarlegum titrandi hreimi. Hringj- arinn er skjálfhentur, hann er líka orðinn gamall. Fólkið þyrpist inn og sezt á bekkina, talar saman í hálfum hljóðum og kinkar kolli hvert til annars. Konurnar slétta úr hrukkunum á silki- svuntunum og vefja sjölin þéttar um sig. Fermingarbörnin sitja hljóð og feimin við hliðina á foriddrum og ættingjum. Stúlkurnar strjúka hárið frá enninu og reyna að sitja uppréttar; drengirnir horfa á tærnar á skónum sinum í einhverju ráðaleysi. Svo byrjar söngurinn og guðsþjónustan hefst. Það er sungið og lesið og prédikað, og tíminn líður. l5að er undarlegt, finnst drengnum, að

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.