Frón - 01.01.1944, Síða 40

Frón - 01.01.1944, Síða 40
34 Ólafur Gunnarsson skólamála síöustu áratugina. Mér finnst því tilhlýöilegt að gera grein fyrir skólafyrirkomulaginu eins og það var 1939. Auðvitað má ekki taka þetta stutta yfirlit sem tæmandi lýsingu á skólum heima. Skólar heima voru ferns konar: 1 kaupstöðum voru bæja- skólar, sem að ytri umgerð voru nokkurn veginn eins um land allt. Til sveita voru bæði heimavistar- og heimangönguskólar, og svo farskólarnir, en þá munu flestir sem aldir eru upp í sveit þekkja af eigin reynd. 1 öllum íslenzkum skólum er námstíminn styttri en í nágranna- löndunum. Allra mestur verður munurinn í samanburði við Dan- mörku, sem hefur stytzt sumarleyfi allra Norðurlanda. Náms- tíminn í bæjaskólunum var 7 mánuðir á ári fyrir eldri nemendur. Smábarnakennsla fór fram bæði haust- og vormánuðina, yngstu börnin höfðu þannig frí dimmasta og bjartasta hluta ársins. Petta fyrirkomulag var á reynslustigi, og þori ég ekki að fullyrða um árangur þess. Engin ástæða er til að lengja námstíma barn- anna, íslenzk bæjabörn eru í engu eftirbátar jafnaldra sinna í nágrannalöndunum, og ýmsir danskir skólamenn óska af heilum hug lengra sumarleyfis. Pví verður þó eigi viðkomið, þar sem þjóðfélagið hagnýtir sér starfskrafta mæðranna í verksmiðjum og á skrifstofum, og krefst þess að börnin séu undir handleiðslu fullorðinna, meðan mæðurnar eru að heiman; og enn hcfur engin stofnun verið fær um að sjá þeim fyrir dvalarstað utan skóla- stofunnar. Petta er aðalástæðan til hins langa námstíma danskra barna, og við íslendingar megum hrósa happi, að við getum leyft börnunum að njóta sólar og sumars lengur en sjö vikur á ári. Bæjaskólarnir heima voru 1939 komnir í allfast form, og námsgreinar þeirra fullnægðu yfirleitt þeim kröfum, sem fram- haldsskólarnir og þjóðfélagið í heild gátu gert til venjulegra barnaskóla. Ef gera má ráð fyrir, að skólastjórar og kennarar bæjaskól- anna hafi getað notið svefns og hvíldar fyrir áhyggjum um starf sitt, verður hið sama ekki sagt um uppfræðara sveitabarna yfir- Ieitt. Glundroði og efasemdir voru einkenni sveitaskólanna. Ég minntist áður á þrenns konar fyrirkomulag í sveitunum. Fyrst nefndi ég heimavistarskólana, sem tvímælalaust hafa góð skilyrði til að veita börnunum viðunanlega kennslu, þar sem kennslutím- inn er 4—5 mánuðir á ári og öll kennslutæki tiltölulega fullkomin.

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.