Frón - 01.01.1944, Page 41

Frón - 01.01.1944, Page 41
íslenzk skólamál 35 Aftur á móti er þaS að jafnaSi uppeldislegur agnúi, aS börnin verSa aS dvelja vikum eSa mánuSum saman fjarri heimilum sínum. VíSa hagar þó þannig til, aS börnin geta skotizt heim um lielgar; er þaS mjög heppilegt bæSi frá sjónarmiSi kennara . og foreldra. Þess er vert aS geta, aS íslenzka fræSslumálastjórnin gerSi sér mjög far um aS veita hinum völdustu kennurum stöSur viS heimavistarskólana, enda var þess full þörf, þar sem þeir báru ábyrgS á líkamlegri og andlegri velferS barnanna mikinn hluta ársins. Skólahúsum heimangönguskólanna var yfirleitt mjög ábóta- vant, og kennarabústaSir annaShvort engir eSa mjög ófullkomnir, en aS öSru leyti eru heimangönguskólarnir áþekkir dönskum sveitaskólum. Eins og nafniS bendir til, gengu börnin heim á hverju kvöldi. Heimangönguskólinn getur því ekki komiS til grcina í strjálbýlum sveitum. VíSast gengu yngri börn í skóla annan daginn, og eldri hinn. 1 fyrstu íslenzku fræSsluIögunum, sem gengu í gildi 1907, er minnzt á farskólana sem bráSabirgSalausn á kennslumálum sveitanna. Rúmlega 30 árum seinna eSa 1938 voru 133 farskólar á öllu landinu, en nýju fræSsIuIögin, sem gengu í gildi 1936, ætlast til, aS þeim verSi útrýmt smátt og smátt. Ég skal þó láta ósagt, hvort sú áætlun er framkvæmd eSa verSur á næstu árum, en stundum hafa íslenzk stjórnarvöld notaS veigaminni átyllu til aS seinka framkvæmdum, en margra ára heimsstyrjöld. Eins og flestum mun kunnugt eru engin skólahús í farkennslu- héruSunum, heldur fer kennslan fram á bóndabæjum. Til þess eru valdir 2—3 eSa jafnvel 4 bæir í hverri sveit, og verSa þeir aS vera þannig í sveit settir, aS þeir geti tekiS viS barnahóp og kennara. I’aS liggur í hlutarins eSli, aS þetta fyrirkomulag er ófullnægjandi fyrir alla aSiIa; ekki sízt er þaS niSurdrepandi fyrir ungan og áhugasaman kennara aS kúldast meS ósamstæSan barnahóp í lítilli, oftast kaldri og áhaldalausri stofu, ef til vill miSur vel séSur af húsráSendum. Mér er þaS barnsminni, aS heima í fæSingarsveit minni þurfti á hverjum vetri aS koma fyrir tveimur gripum, nefnilega þarfanautinu og kennaranum. Einn af beztu bændum sveitarinnar átti einu sinni kost á aS velja um kennarann og tudda, og kaus hann eins og nærri má geta bola heldur. ÞaS er augljóst og alkunnugt mál, aS kvæntir menn geta alls ekki þrifizt í farkennarastöSum; bæSi voru launin smán, um 100 kr. á mánuSi auk fæSis og húsnæSis, og svo á slíkur 3*

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.