Frón - 01.01.1944, Síða 52
46
Guðni Guðjónsson
margar rannsóknarferSir til íslands, og unniS meS íslenzkum og
dönskum náttúrufræSingum. Kunnastar eru rannsóknir hans í
sambandi viS eldgos í Vatnajökli, og hafa þeir Pálmi Hannes-
son og Jóhannes Áskelsson einnig tekiS þátt í þeim rannsóknum.
í beinu sambandi viS þessar athuganir eru þær rannsóknir á
móbergsmynduninni heima, sem prófessor Nielsen og prófessor
Arne Noe-Nygaard hafa veriS aS gera. Eru þær framhald á þeim
rannsóknum, sem dr. Helgi Péturss gerSi á sínum tíma, enda er
sú niSurstaSa, sem þeir hafa komizt aS, aS ýmsu leyti byggS á
kenningum Helga.
Einnig Svíar hafa lagt leiS sína til Islands, og ber þar einkum
aS nefna prófessor Hans W:son Ahlmann. Hann er mikill
jöklafræSingur og hefur ásamt SigurSi Pórarinssyni og Jóni
Eyþórssyni gert rannsóknir á eSli og útbreiSslu jöklanna. í grein
minni um íslenzka náttúrufræSinga erlendis, sem áSur hefur
birzt í Fróni, minntist ég á rannsóknir þeirra.
Enn má í þessu sambandi minnast á hafrannsóknaskipiS
»Dana,« sem oft hefur átt leiS til Islands. Slíkar rannsóknir hafa
reyndar öSrum fremur alþjóSlegt sniS á sér, enda hefur »Dana«
fariS í leiSangur kringum hnöttinn. 1 áSurnefndri grein minni í
Fróni gat ég þess, aS Hermann Einarsson fiskifræSingur hefSi
tekiS þátt í þessum leiSöngrum um norSurhöfin, og er hann
nú aS vinna úr því sem safnazt hefur. Á þessu sviSi hafa íslend-
ingar lagt drjúgan hlut til, sem vonandi á eftir aS aukast enn.
Á ég þar viS rannsóknir Bjarna Sæmundssonar, og seinna þeirra
Árna FriSrikssonar og Finns GuSmundssonar, sem báSir eru viS
fiskirannsóknadeild Háskólans heima. íslendingum liefur skilizt
þaS, aS þeim peningum, sem variS er til slíks, er ekki á glæ
kastaS.
Ég hef nú rakiS öll meiri háttar afskipti Dana og annarra
þjóSa af náttúru Islands síSasta aldarfjórSunginn. Auk þess
hefur fjöldinn allur af Dönum og öSrum útlendingum fariS til
íslands í minni háttar rannsóknarferSir, og birt um þaS stærri
°g smærri ritgerSir. PaS gefur aS skilja, aS öll þessi viSleitni
hefur legiS niSri síSan styrjöldin hófst. HvaS viS tekur þegar
friSur kemst á, skal engu spáS um.
Ég hvarf frá því áSan, hvern skerf Islendingar hefSu Iagt
til þessara rannsókna. ÞaS var ekki skortur hæfra manna sem
hamlaSi, heldur hitt, aS þá vantaSi fé til þess aS geta helgaS