Frón - 01.01.1944, Page 58

Frón - 01.01.1944, Page 58
52 Sveinn Bergsveinsson I’aö var ekki ætlun mín að rökræöa í Fróni grundvallaratriði málvísindanna. En úr því að þér hafið hætt yður út á þann ís, þá vil ég leitast við að skýra mál mitt í einföldum orðum. Hugsun er yfirleitt bundin við tvennt: persónu og tíma. Ég geri ekki ráð fyrir, að þér hugsið sömu hugsanirnar og ég, enda þótt við tölum báðir sama mál, heldur eru hugsanir yðar bundnar við yðar eigin persónu. Auk þess eru hugsanir yðar bundnar vissum tíma. Hin daglega hugsun, hugsun í viðræðum, skapast — hráefni hugsunarinnar getur að vísu verið undirbúið áður — á því augnabliki, sem við tölum og íklæðum hana búningi málsins. Á þessu augnabliki verða mál og hugsun fyrst að einu samþættu verki. En hugsun getur aldrei haldizt ótímabundin nema með aðstoð málsins og í steypimóti þess. öðru er að gegna um málið. Pað er hvorki bundið persónu né tíma. Pér talið t. d. sama mál og ég, ef til vill nokkuð fyrndara, og þetta mál hefur verið til og þróazt um aldaraðir. Ég þarf ekki að heyra yður tala til að rannsaka mál yðar. Pvi að með máli á maður ekki við persónuleg máleinkenni einhvers manns, heldur við málkerfið, sem hann notar. Vilji maður rannsaka hugsun einhvers manns, ]iá nægja aftur á móti ekki almennar sálarlýsingar, heldur verður að fara fram athugun á manninum sjálfum. Hin persónu- og timabunda hugsun getur að vísu geymzt óendanlega í búningi málsins, en það er því að þakka, að málið er ekki bundið við tíma. Og sú staðreynd, að við tölum allir — sem ein þjóð — eitt og sama mál, án þess að hugsa sömu hugsanirnar, sannar, að enda þótt hugsunin sé háð málinu, þá myndar málið sjálfstætt kerfi, sem hugsunin er felld í, og að hægt er að rann- saka þetta kerfi út af fyrir sig án þess að þurfa að rannsaka hugsunina um leið. Á þessari sjálfstæðu afstöðu málsins til hugs- unarinnar hafa málvísindin byggzt allt frá Indverjum til vorra daga. Ég verð því miður að þreyta lesendur Fróns enn um stund á orðaskiptum okkar, því að ýmislegt er enn að athuga við mála- flutning yðar. Pér urðuð að sögn yðar sjálfs fyrir döprum von- brigðum, þegar þér lásuð grein mina og sáuð »að með »málupp- eldi« átti höf. við íhaldssemi einhverra íslenzkukennara sinna«. í grein minni stendur: »Pessi grundvallarregla ætti að vera leið- arvísir í öllu máluppeldi, ef máluppeldið á að vera undirbúningur undir lífið, en ekki leikur einn með orð, orðarakningar og fræði- legar getgátur«. Ég vona, að lesendur þessarar orðsendingar, óg

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.