Fréttablaðið - 24.10.2016, Side 2
MIÐASALA
HEFST Á FIMMTUDAG
Miðasala á Tix.is og í síma 551-3800. Nánar á www.sena.is/jolagestir.
10. desember
í höllinni
AFMÆLISTÓNLE
IKAR
Viðkomum með jólin til þín!
Hver verður
Fylgstu með á
JÓLASTJARNAN
2016?
STÖÐ 2
MIÐASALA ER
HAFIN!
Veður
Suðlæg átt í dag, yfirleitt 5-10 m/s. Skúrir
eða él, en skýjað og þurrt að mestu um
landið norðaustanvert. Kólnar í veðri, hiti
2 til 9 stig. Víða má búast við næturfrosti.
sjá síðu 18
Eldvarnir Slökkvilið í Lauga-
gerði er ekki útkallshæft vegna
úr sér gengins búnaðar og tækja-
kosts. Bjarni Kristinn Þorsteinsson,
slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar,
sendi bæjarráði Borgarbyggðar
harðort bréf um búnað og tækja-
kost. Þar segir hann að Chevrolet-
bíll slökkviliðsins sé nálægt fertugu,
ekki sé hægt að treysta honum til
stórræða enda bili bíllinn í tíma og
ótíma og geti ekki borið vatn, sem
sé forsenda þess að koma í veg fyrir
stórbruna. Þá er hann mjög sjúsk-
aður og í raun sé slökkviliðsbíllinn
bara stór jeppi sem sé ekkert annað
en útkeyrður löggubíll, eins og hann
orðar það.
Búnaðurinn hafi verið aflagður
enda gamall og ekki hægt að halda
honum við. „Í dag er í áðurnefndum
jeppagarmi nýleg og öflug bruna-
dæla ásamt viðeigandi búnaði og
er þá getan upptalin,“ segir Bjarni.
Hann hafði engu við bréfið að
bæta þegar Fréttablaðið sló á þráð-
inn til hans en sagði að verið væri
að vinna að farsælli lausn á málinu.
Þjónustusamningur er í gildi milli
sveitarfélaganna Borgarbyggðar og
Eyja- og Miklaholtshrepps um þjón-
ustu þess fyrrnefnda við Eyja-
og Miklaholtshrepp
varðandi bruna-
varnir og þjónustu
slökkviliðs ef eldur
kviknar.
Bjarni rekur í
bréfinu að lands-
svæðið sé víða mjög
örðugt til vatnsöflunar til
slökkvistarfa og sums staðar sé alls
ekkert vatn að fá. Hann nefnir einn-
ig uppbygginguna sem hefur orðið
í Eyja- og Miklaholtshreppi vegna
gistingar, ferðaþjónustu, hesta-
mennsku og ýmiss konar afþrey-
ingar. Þá bendir hann á umfang
atvinnustarfsemi á bænum Mið-
hrauni varðandi þurrkun á þorsk-
hausum og skyldum afurðum til
útflutnings.
Þetta er ekki fyrsta bréfið sem
Bjarni sendir sveitarstjórnamönn-
um. „Í áranna rás hefur slökkvi-
liðsstjóri marg ítrekað, bréflega og
með öðrum hætti sem hægt er að
færa sönnur
á, og reynt að vekja athygli þeirra
sveitarstjórnarmanna sem málum
hafa ráðið hjá Borgarbyggð á því
ófremdarástandi sem er og hefur
verið á tækjakosti slökkviliðsins
í Laugagerði og bent á leiðir til
úrbóta í þeim efnum en allt hefur
komið fyrir ekki. Ekki hefur einu
sinni verið haft fyrir því að svara
erindum þessum bréflega sem mig
undrar mjög,“ segir Bjarni í bréfinu.
Hann leggur fram tvær tillögur
til úrbóta. „Strax verði hafist handa
við það að koma upp þokkalega
góðum bíl sem gæti flutt með sér
7-8.000 lítra af vatni ásamt nauð-
synlegum búnaði. Seinni kostur-
inn sem er í boði er sá að sveitar-
stjórnarmenn í Borgarbyggð taki
upplýsta ákvörðun og þá í samráði
við hreppsnefnd Eyja- og Mikla-
holtshrepps um að leggja slökkvi-
stöðina í Laugagerði niður og vera
ekki með neinn búnað þar en þess í
stað að þjónustan komi frá Borgar-
nesi um langan veg.“ Hann endar
bréfið með því að hnykkja á: „Að
gera ekki neitt í þessum málum er
ekki í boði lengur. Ykkar er valið
og ákvörðunartakan!“
benediktboas@frettabladid.is
Ástandið eldfimt hjá
slökkviliði Laugagerðis
Slökkviliðið í Laugagerði er ekki útkallshæft vegna gamalla tækja og tóla.
Slökkviliðsstjóri segir slökkviliðsbílinn vera jeppagarm og ítrekar enn á ný við
sveitarstjórnarmenn að gera eitthvað í málunum. Að gera ekki neitt sé ekki í boði.
Chevrolet C-20 bifreið árgerð 1970, svipuð
þeirri sem slökkviliðið í Laugagerði notast
við. Slökkviliðsstjórinn segir bílnum ekki treystandi til
stórræða enda bili hann í tíma og ótíma. NordiCPhotoS/Getty
Að gera ekki neitt í
þessum málum er
ekki í boði lengur. Ykkar er
valið og ákvörðunartakan.
Bjarni Kristinn
Þorsteinsson,
slökkviliðsstjóri
Borgarbyggðar
Línur lagðar fyrir næsta kjörtímabil
„Það er mín sannfæring að það sé heilmikill samhljómur milli þessara flokka og að þar sé miklu fleira sem sameini en sundri,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir, formaður VG. Stjórnarandstöðuflokkarnir á Alþingi funduðu í gær um mögulegt samstarf að loknum kosningum. FréttabLaðið/SteFáN
stjórnmál Viðreisn vill að tekjur
ríkisins af uppboði aflaheimilda í
sjávarútvegi renni í sérstakan inn-
viðasjóð. Hann verði síðan notaður til
uppbyggingar á fjölbreyttri atvinnu-
starfsemi.
Þetta kom fram í gær þegar Við-
reisn kynnti helstu áherslur sínar
í kosningabaráttunni. Flokkurinn
leggur ríka áherslu á að greitt sé sann-
gjarnt endurgjald fyrir nýtingu á fisk-
veiðiauðlindinni enda sé fiskurinn
innan efnahagslögsögunnar þjóðar-
auðlind og eign íslenska ríkisins. Við-
reisn vill tryggja sátt um sjávarútveg-
inn til framtíðar en flokkurinn hefur
talað fyrir svokallaðri markaðsleið í
sjávarútvegi sem kæmi í staðinn fyrir
veiðileyfagjaldið. Hún felst í uppboði
á aflaheimildunum.
Forystufólk Viðreisnar áætlar að
tekjur af uppboðum muni nema 15-20
milljörðum króna á ári hverju. – þþ
Vilja stofna
innviðasjóð
Forystufólk Viðreisnar.
FréttabLaðið/SteFáN
K jar a m ál Vinnudeilusjóður
Alþýðusambands Íslands mun að
öllum líkindum stækka um 143
milljónir króna. Tillaga þess efnis
liggur fyrir þingi ASÍ en það fer fram
dagana 26.-28. október.
Árið 2008 voru ákvæði um sjóð-
inn felld úr lögum sambandsins og
síðan þá þarf að samþykkja sérstak-
lega að auka fé í honum. Það hefur
hingað til ekki verið gert. Áður
runnu 3,7 prósent af tekjum ASÍ í
sjóðinn. Fyrir eru rúmlega 200 millj-
ónir í sjóðnum.
Endurskoðunarákvæði er að
finna í kjarasamningum og verður
það virkt í febrúar á komandi ári. Í
greinargerð með tillögunni segir að í
ljósi þeirrar miklu óvissu sem er um
stöðu kjaramála á næstu misserum
sé lagt til að leggja 143 milljónir af
óráðstöfuðu eigin fé ASÍ í sjóðinn.
Gylfi Arnbjörnsson, formaður
ASÍ, vildi ekki tjá sig um málið þegar
eftir því var leitað. – jóe
143 milljónir í
Vinnudeilusjóð
Bruni Eldur kom upp í VR-1, einni
bygginga Háskóla Íslands, aðfara-
nótt sunnudags. Í framhaldinu hefur
Raunvísindadeild aflýst allri kennslu
sem fram átti að fara í húsinu í dag.
Fulltrúar deildarinnar munu meta
stöðuna og senda út frekari tilkynn-
ingar.
Slökkviliðið náði mjög fljótt tökum
á eldinum sem var í rými á ann-
arri hæð hússins. Í húsinu, sem var
mannlaust þegar eldurinn kom upp,
fer meðal annars fram kennsla í efna-
fræði. Eldfim og hættuleg efni eru í
sérútbúnum efnageymslum í hús-
inu þar sem fylgt er mjög ströngum
öryggiskröfum. – jhh
Kennsla fellur
niður í VR-1
2 4 . o K t ó B E r 2 0 1 6 m á n u d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
9
-1
F
1
0
1
B
0
9
-1
D
D
4
1
B
0
9
-1
C
9
8
1
B
0
9
-1
B
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K