Fréttablaðið - 24.10.2016, Side 4
Hlíðasmára 8 | Skipholti 70 | Spönginni 13
Sími 554 7200 | hafid@hafid.is |
HAF
IÐ
FISKVERS
LU
N
10
ára
Fiskréttur vikunnar 24. - 31. október
Líbönsk langa
1.890 kr. kg.
viðskipti Bandaríski fjarskiptarisinn
AT&T og Time Warner hafa gert með
sér samkomulag um kaup fyrrnefnda
fyrirtækisins á því síðarnefnda. Heild-
arvirði Time Warner í þessum við-
skiptum er 110 milljarðar dollara eða
tæplega 13 þúsund milljarðar króna.
Samkvæmt samningnum er virði
eiginfjár Time Warner 85 milljarðar
dollara eða um tíu þúsund milljarðar
króna. Þetta eru stærstu viðskipti árs-
ins ef af verður, en þau eru háð sam-
þykki stjórnvalda í Bandaríkjunum
Ólafur Jóhann Ólafsson, aðstoðar-
forstjóri Time Warner, segir þessi
viðskipti í takti við breytingar á
neysluvenjum í fjölmiðlun og afþrey-
ingariðnaði. „Við sjáum breyting-
arnar á því hvernig fólk nálgast efni
og það kallar á að sníða þjónustu að
þörfum hvers og eins,“ segir Ólafur
Jóhann í samtali við Fréttablaðið.
Sambærileg þróun er annars staðar
og er skemmst að minnast viðræðna
Vodafone við 365 um kaup á hluta
af starfsemi 365. Ólafur Jóhann segir
fyrirséð að fólk muni nálgast sjón-
varpsefni og kvikmyndir á mun fjöl-
breyttari hátt en áður.
Góð viðskipti fyrir hluthafa
Ólafur segir AT&T ekki einungis
stærsta í dreifingu sjónvarps í Banda-
ríkjunum, heldur einnig í breiðbandi
og farsímaþjónustu. Ólafur Jóhann,
sem er ábyrgur fyrir stefnu og fjárfest-
ingum Time Warner á alþjóðavísu,
segir fyrirtækið hafa unnið að því að
koma efni beint til neytenda. „Hér er
verið að sameina stærsta dreifingar-
fyrirtækið og það sem við viljum
meina að sé öflugasta fjölmiðlunar-
fyrirtækið.“ Meðal fyrirtækja sem
heyra undir Time Warner eru frétta-
veitan CNN, sjónvarpsstöðin og fram-
leiðslufyrirtækið HBO og kvikmynda-
framleiðandinn Warner Bros. Ólafur
Jóhann segir ekki margar efnisveitur
í heiminum bjóða upp á jafn mikið
af gæðamyndefni. „Það hefur verið
stefna okkar undanfarin ár að fjár-
festa í gæðum í framleiðslu efnis og
með því laða til okkar sköpunarkraft
sem fylgir mesta hæfileikafólkinu.“
Verð á hlut er 107,5 dollarar en
bréfin stóðu í 79 dollurum þegar til-
kynnt var um að fyrirtækin stefndu
að sameiningu. „Þetta eru afskaplega
góð viðskipti fyrir hluthafa okkar
og við vinnum fyrir þá,“ segir Ólafur
Jóhann og bendir á að fyrirtæki af
þessari stærðargráðu séu í mjög
dreifðri eign sjóða og einstaklinga.
Um er að ræða yfirtöku AT&T á
Time Warner, en Ólafur Jóhann segir
að hann reikni ekki með breytingum
á sínum högum í kjölfarið. „Ég get
upplýst það að ég hef skuldbundið
mig til þess að vera áfram, en hvað
það þýðir í árum er of snemmt að
segja. Það er vilji okkar megin að
þetta gangi vel og stjórnendur ein-
huga um að leggja sitt af mörkum til
að tryggja að svo verði.“
Samruni félaganna er háður sam-
þykki yfirvalda og reiknar Ólafur
Jóhann með því að það muni taka
nokkurn tíma að ganga endanlega frá
samrunanum. Reiknað er með því að
það geti tekið út næsta ár.
Efasemdir hafa verið um slíka
samþjöppun á fjölmiðlamarkaði,
en Ólafur Jóhann segir að það sé
mikilvægt fyrir lýðræðið að til séu
öflugir, sjálfstæðir og faglegir fjöl-
miðlar eins og CNN, þar sem mikið
sé af fréttaefni á netinu sem ekki lúti
slíkri faglegri stjórn. Meðal þeirra
sem gagnrýnt hafa þennan samruna
er Donald Trump, forsetaframbjóð-
andi Repúblikana, en hann telur á sig
hallað í fjölmiðlum. „Donald Trump
var ekki hrifinn, svona ef einhver þarf
staðfestingu á því að þetta sé góð hug-
mynd.“
haflidi@frettabladidi.is
Risakaup ársins á Time Warner
Fjarskiptarisinn AT&T kaupir Time Warner. Ólafur Jóhann Ólafsson segir viðskiptin rökrétt skref til að
mæta breyttu neyslumynstri í fjölmiðlun. Heildarvirði Time Warner 13 þúsund milljarðar í viðskiptunum.
Risasamruni. AT&T kaupir Time Warner fyrir 13 þúsund
milljarða króna. Ólafur Jóhann Ólafsson, aðstoðarfor-
stjóri Time Warner, mun áfram starfa fyrir samsteypuna.
Ólafur Jóhann
Ólafsson
samgöngur Vegagerðin liggur nú
yfir tilboðum í smíði nýrrar Vest-
mannaeyjaferju, en norskt fyrirtæki
sem átti upphaflega lægsta tilboðið
í smíði ferjunnar dró tilboð sitt til
baka. Áhrif þessa eru þau að kostn-
aður við smíðina verður nokkru
hærri en áætlað var út frá lægstu til-
boðum en tefur verkið ekki. Lægstu
tilboðin hljóðuðu upp á 2,6 til 2,7
milljarða króna en það tilboð sem nú
er talið vænlegast er upp á 3,2 millj-
arða króna. Upphaflega voru tilboð í
nýja ferju opnuð um miðjan septem-
ber og voru þau lægstu heilum 800
milljónum undir kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar sem var um 3,5
milljarðar króna. Norska fyrirtækið
Moskenesstraumen AS átti annað
af lægstu tilboðunum en dró það
til baka án þess að gefa fyrir því sér-
stakar ástæður.
Annars vegar lutu tilboðin að
smíði ferjunnar eingöngu en hins
vegar að smíði hennar og rekstri til
tólf ára. Samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni voru öll tilboð um
smíði og rekstur óaðgengileg og þau
hafa verið lögð til hliðar.
Vegagerðin staðfestir að litið sé
til tilboðs pólsks fyrirtækis – skipa-
smíðastöðvarinnar Crist SA – sem
var það fimmta lægsta. Kínverskt
fyrirtæki átti mun lægra tilboð –
áþekkt því norska – en þegar tekinn
hafði verið með í reikninginn fjar-
lægðarkostnaður, eftirlit og að koma
skipinu til Íslands þá voru önnur til-
boð hagstæðari.
Munurinn á tilboði pólska fyrir-
tækisins og því lægsta er um 600
milljónir króna. Þegar það lá fyrir
að norska fyrirtækið, sem átti hag-
stæðasta tilboðið, hafði fallið frá því
á síðustu stundu var farin ferð út til
að skoða pólsku skipasmíðastöðina
til að meta tilboð fyrirtækisins til
fullnustu. – shá
Bakþankar Norðmanna kosta Vegagerðina 600 milljónir króna
Smíði ferjunnar mun hefjast innan
tíðar að öllu óbreyttu.
Mynd/VeGAGeRðin
BanDarÍkin Hillary Clinton, for-
setaframbjóðandi Demókrata, segir
að það skipti ekki lengur máli hvað
helsti keppinautur hennar, Donald
Trump, segir. Héðan í frá muni hún
einblína á málefnin en ekki mann-
inn.
Kapphlaupið um Hvíta húsið
hefur hingað til snúist að stórum
hluta um ýmsar ásakanir í tengslum
við persónu og sögu frambjóðenda.
Nú ætlar Clinton að láta af slíkum
leikjum.
„Kappræður okkar hafa varað
á fimmtu klukkustund. Héðan í
frá dettur mér ekki í hug að svara
honum,“ sagði Clinton við blaða-
menn í Gettysburg.
Fjórtán dagar eru þar til Banda-
ríkjamenn kjósa sér forseta. – jóe
Hættir að svara
Donald Trump
Skoðanakannanir benda til þess að
Clinton muni bera sigurorð af Trump.
FRÉTTABLAðið/ePA
BanDarÍkin Ally Bank í Bandaríkj-
unum hefur hrint af stað átaki til að
fá fólk til að hugsa betur um smá-
myntir sem verða á vegi þess. Bank-
inn hefur sett í dreifingu hundrað
fölsk penní en finnendur þeirra geta
skilað þeim í bankann og fengið
þúsund dollara, ríflega 115 þúsund
krónur, að launum.
Peningarnir verða koparlitaðir
líkt og hið venjulega penní en í stað
andlits Abrahams Lincoln verður
þar að finna merki bankans.
Myntirnar hafa verið settar í
umferð í mörgum af stærstu borgum
Bandaríkjanna. – jóe
Verðmæt mynt
sett í umferð
2 4 . o k t ó B e r 2 0 1 6 m Á n u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
9
-3
2
D
0
1
B
0
9
-3
1
9
4
1
B
0
9
-3
0
5
8
1
B
0
9
-2
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K