Fréttablaðið - 24.10.2016, Side 11
Audi Q7 e-tron var valinn jeppi ársins 2017
af bílablaðamönnum á Íslandi. Hann er
fjórhjóladrifinn tengiltvinnbíll sem sameinar
krafta rafmagnsmótors og dísilvélar.
Q7 e-tron quattro er sparneytinn, umhverfismildur og eldsneytis-
notkunin er aðeins 1,9 lítrar á hverja 100 km. Mættu nýrri árstíð
með grænni samvisku og allt að 56 km drægni á rafmagni.
Komdu við og upplifðu Q7 e-tron quattro í hversdagslífinu.
Regnbogi alinn í úreltum kvíum
Gísli Jónsson, sérgreinadýralæknir hjá Mat-
vælastofnun, segir að í dag sé gerð sú
krafa að að minnsta kosti tíu prósent af
öllum laxi sem fer í sjókvíar séu merkt.
Hugsunin á bak við það er að auð-
velda mönnum að þekkja eldislax
frá öðrum fiski. „En síðan erum við
með lífsýni úr öllum foreldrum og
vitum nákvæmlega hvaða fjölskyldur
fara hvert í sjókvíar þannig að auðvelt
ætti að vera að rekja slíkan strokufisk
til heimakvíar. Slíka útvortis merkingu
þurfum við auðvitað ekki með regnboga,
það sjá allir um hvers kyns fisk er að ræða,“
segir Gísli.
Gísli segir það ekki hafa verið á dagskrá að merkja regnbogasilung í
sjókvíaeldi, það yrði þá að vera með einhvers konar örmerkjum. „En til að
gera langa sögu stutta þá er nánast allur regnbogi á leiðinni út úr íslensku
fiskeldi og því þurfum við ekki að hafa miklar áhyggjur af því á næstu
árum. Það hafa ekki verið flutt inn hrogn svo neinu nemi núna í tæp tvö
ár og eftir standa einhverjir litlir framleiðendur. Það gleðilega er að með
regnboganum hverfur líka eldri og úreltur sjókvíabúnaður sem að mörgu
leyti er barn síns tíma. Við taka mjög öflug mannvirki í takt við laga- og
reglugerðarbreytingar sem voru gerðar hér heima vorið 2014. Öll ný leyfi
þurfa að uppfylla nýja staðalinn um styrkleika og útbúnað kvíanna sem er
hið besta mál,“ segir Gísli.
að jafnframt sé bagalegt ef mikið
kemur fram af eldisfiski sem enginn
kannast við að hafa misst.
„Þá má álykta að eitthvað sé að
hjá eldisaðilum og/eða eftirlitsstofn-
unum. Okkur sem höfum þurft að
gefa umsagnir vegna umhverfismata
finnst verulega vanta upp á aðgengi-
legar upplýsingar um fiskeldi. Það er
nauðsynlegt að byggja á hlutlægum
upplýsingum. Eldi er búið að vera
það lengi í þriðju fiskeldisbylgju
að reynsla er að koma fram. Fiskar
eru að sleppa úr eldi sem er í sam-
ræmi við reynslu annars staðar,
það er ljóst. Á sama tíma er verið að
fara fram á leyfi til að auka eldið til
muna. Mér finnst því ábyrgðarhluti
að veita mikið af leyfum til fiskeldis
hér á landi ef umhverfisáhrifin eru
ekki þekkt,“ segir Guðni.
„Tilgangurinn með umhverfis-
mati er að draga fram áhrif fram-
kvæmda. Ef þekkingu skortir er rétt
að farið sé hægt við útgáfu leyfa fyrr
en það er nokkuð ljóst hvaða áhrif
framkvæmdir hafa m.a. verðandi
umhverfisáhrif. Þegar er búið að
gefa út leyfi til fiskeldis sem eru
mörgum sinnum meiri en fram-
leiðslan er, ætti ekki að standa fyrir
vexti í viðkomandi atvinnugrein
þótt farið sé hægt í útgáfu leyfa,“
segir Guðni.
Samfélag Tvö prósent aðspurðra í
nýrri könnun lögreglunnar segjast
hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi árið
2015. Þrettán prósent þeirra segja
að um nauðgun hafi verið að ræða
eða sex af þeim 2.544 sem svöruðu
könnuninni.
Rannsóknin er unnin af Gallup
fyrir embætti ríkislögreglustjóra og
lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.
Úrtakið var 4.000 manns, átján ára og
eldri, þar sem helmingur var búsettur
á höfuðborgarsvæðinu og helmingur
á landsbyggðinni.
Fréttablaðið birti á föstudag
útreikninga sína á fjölda nauðgunar-
mála á Íslandi árið 2014. Útreikningar
blaðsins gerðu ráð fyrir því að tíu
prósent nauðgunarmála væru kærð
til lögreglu og reiknaði út að 1.300
nauðganir hefðu átt sér stað árið 2014.
131 nauðgun var tilkynnt til lögreglu
um land allt það ár.
Rannsókn lögreglunnar sýnir fram
á sömu niðurstöður. Tíu prósent þátt-
takenda sem sögðust hafa orðið fyrir
kynferðisofbeldi árið 2015 tilkynntu
málið til lögreglu. Athygli vekur að
nærri 39 prósent þeirra sem orðið
höfðu fyrir annars konar ofbeldi til-
kynntu um málið til lögreglu. Konur
voru líklegri en karlar til að tilkynna
kynferðisbrot en ólíklegri til að til-
kynna ofbeldisbrot gegn sér.
Rannsókn lögreglunnar er árleg
og þetta er í sjöunda sinn sem hún
er gerð. Hægur stígandi hefur orðið í
fjölda kynferðisbrota á síðastliðnum
árum en 1,2 prósent svöruðu því
játandi að hafa orðið fyrir kynferðis-
ofbeldi árið 2013.
Í ár var lögð ný spurning fyrir þol-
endur þar sem spurt var hversu alvar-
legt þeim þótti brotið. 47 prósent
þeirra sem sögðust hafa orðið fyrir
kynferðisofbeldi sögðu brotið ekki
mjög alvarlegt, en 52 prósent sögðu
brotið annaðhvort nokkuð alvarlegt
eða mjög alvarlegt. Í skýrslunni er
vakin athygli á því að sautján prósent
þolenda kynferðisofbeldis mátu brot-
ið mjög alvarlegt þrátt fyrir að aðeins
tíu prósent hefðu tilkynnt það til lög-
reglu. Ef tölurnar eru bornar saman
við þá sem höfðu orðið fyrir annars
konar ofbeldi sést að mun hærra hlut-
fall áleit það ofbeldi nokkuð eða mjög
alvarlegt eða sjötíu prósent.
Í Fréttablaðinu á föstudag var rætt
við Maríu Rut Kristinsdóttur, formann
samráðshóps innanríkisráðuneytisins
um meðferð kynferðisbrotamála.
Hópurinn hefur skilað af sér aðgerða-
áætlun til fjögurra ára í málaflokknum
sem gerð verður opinber fyrir árslok.
„Auðvitað miða allar þessar aðgerðir
að því að gera kerfið betra og auka
traust fólks á kerfinu svo það komi
og leiti inn í kerfið þegar brotið hefur
verið á því,“ sagði María Rut. – ss
Tilkynna ekki þótt ofbeldið sé gróft
Mikil vitundarvakning hefur orðið varðandi kynferðisbrot síðastliðin ár. Þrátt fyrir
það eru aðeins tíu prósent brota tilkynnt til lögreglu og þar af enda um fimm pró-
sent með sakfellingu fyrir dómi. Druslugangan er gengin árlega til að berjast gegn
kynferðisofbeldi. Fréttablaðið/Valli
52%
sögðu kynferðisofbeldið
nokkuð eða mjög alvarlegt.
Rannsókn lögreglunnar
er árleg og þetta er í sjöunda
sinn sem hún er gerð.
f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 11m Á N U D a g U r 2 4 . o k t ó B e r 2 0 1 6
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
9
-4
6
9
0
1
B
0
9
-4
5
5
4
1
B
0
9
-4
4
1
8
1
B
0
9
-4
2
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K