Fréttablaðið - 24.10.2016, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Gleymum
heldur ekki
að lífeyris-
greiðslur
taka mið af
launatekjum
svo við erum
ekki lausar
við ójafn-
réttið þrátt
fyrir að
vinnuævinni
ljúki.
Það er kvennafrí. Í dag leggja konur niður vinnu kl. 14:38 og ganga út. Kvennafríið er táknræn aðgerð sem konur beittu fyrst 1975 til að mótmæla
launamun kynjanna. Þá voru mæður okkar í aðal-
hlutverki. Í dag leiðum við mæður okkur og dætur á
baráttufund í sömu erindagjörðum. Kynslóðir kvenna
leggja niður störf og ganga út til að mótmæla.
Fyrir tuttugu árum sat ég fyrirlestur um launamál
kynjanna. Á fundinum spunnust heitar umræður,
enda umræðuefnið eldfimt og stærsti hluti fundarfólks
konur. Skyndilega stóð upp maður sem bað fundarfólk
um að vera rólegt. Á launamuninum væru „eðlilegar“,
sögulegar skýringar en samkvæmt útreikningum
myndi launamunurinn hverfa á næstu tuttugu árum.
Við skyldum vera þolinmóðar. Svo vildi til að ég þekkti
manninn enda var hann á svipuðum aldri og ég. Ég gat
þó ekki frekar en aðrar fundarkonur verið sammála
honum. Ég gat ekki sætt mig við að hafa lægri laun en
hann meira en helming starfsævi minnar til viðbótar.
Þetta var árið 1996. Þá reiknaðist talnaspekingum
Hagstofunnar til að konur hefðu 63% af launum karla
á almennum vinnumarkaði. Í dag hafa konur sam-
kvæmt sömu mælingum um 80% af launum karla.
Launamunur karla og kvenna í opinberum störfum er
engu skárri. Í nýlegri launakönnun SFR stéttarfélags
mældist 20% munur á heildarlaunum karla og kvenna.
Ég hef verið 30 ár á vinnumarkaði. Launin mín hafa
alla tíð verið um og yfir 20% lægri en karla í sambæri-
legum störfum. Árstekjur mínar hafa verið frá milljón
til einni og hálfri milljón lægri en þeirra ALLAN minn
starfsaldur. Munurinn hleypur á milljónum yfir starfs-
ævina. Gleymum heldur ekki að lífeyrisgreiðslur taka
mið af launatekjum svo við erum ekki lausar við ójafn-
réttið þrátt fyrir að vinnuævinni ljúki.
Ég geng út í dag kl. 14:38. Ég verð. Annars get ég ekki
horft í augu dóttur minnar sem enn á eftir að stíga sín
fyrstu skref á vinnumarkaði. Hvernig get ég að útskýrt
þetta fyrir henni? Skyldi einhver þarna úti enn vilja
biðja mig um að vera þolinmóða?
Óþolinmæði
kynslóðanna
Sólveig
Jónasdóttir
upplýsingafull-
trúi SFR stéttar-
félags í almanna-
þjónustu
26. nóvember kl. 20.00
Jólatónleikar í Grafarvogskirkju
Miðala á miði.
Landsmenn
eiga skilið að
stjórnmálin
temji sér betri
siði og ábyrg-
ari stjórnar-
hætti en að
vinavæða
stjórnir, ráð
og nefndir.
Einir fimm dagar til kosninga. Þá er runnin upp vika sem er oftar en ekki sérstök vika í lífi Íslendinga og þá sérstaklega þeirra sem tengjast stjórnsýslu lands og þjóðar með einum eða öðrum hætti. Ástæðan er sú að lengi hefur það verið ástundað í íslenskri
pólitík að ráðamenn nýti þessa síðustu daga fram að
kosningum til þess að koma oft stórundarlegum, en
að sama skapi vanhugsuðum og misvel undirbúnum,
málum í gegnum kerfið með alls konar tilskipunum og
tilfærslum.
Innan heimilda og á meðal ábyrgðar sem ráðherrum
er falin er að skipa nefndir, ráð og stjórnir. Afleiðingin
er að aðstoðarmenn og -konur eru skipuð í nefndir,
ráð og stjórnir en öðrum sparkað út án minnsta
fyrirvara. Þetta kannast flestir við en eitthvað færri
vilja skoða þær afleiðingar sem þetta getur haft fyrir
fagmennskuna í íslenskri stjórnsýslu. Oft er þetta efa-
lítið vandað og gott fólk sem tekur við slíkum stjórn-
skipunarbitlingum í nefndir, ráð og stjórnir. En öfugt
við það sem ráðamennirnir vilja halda fram þá hefur
það ekkert með þetta að gera. Markmiðið á nefnilega
að vera að fagmennska og þekking leiði til skipunar en
ekki persónuleg tengsl og mögulegir sérhagsmunir.
Nú í liðinni viku þegar ellefu dagar voru til kosninga
ákvað Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, að skipa þau Sunnu Gunnars
Marteinsdóttur, aðstoðarmann sinn, og Viggó Jónsson,
aðalfulltrúa Framsóknarflokksins í sveitarstjórn
Skagafjarðar, í stjórn Matís. Þetta kallaði reyndar á að
hringja í stjórnarmeðlimi kvöldið fyrir aðalfund og
láta þá vita að þjónustu þeirra væri ekki óskað lengur.
Svona gerast kaupin á eyrinni.
Allur rekstur Matís, sem er vísinda- og nýsköpunar-
félag með áherslu á matvælaiðnað, hefur gengið ákaf-
lega vel allt frá stofnun árið 2007. Matís hefur mikil-
vægu hlutverki að gegna í íslenskum matvælaiðnaði
eða eins og segir á heimasíðu félagsins: „Við styðjum
viðskiptavini okkar til aukinnar verðmætasköpunar,
matvælaöryggis og lýðheilsu.“ Það er reyndar umhugs-
unarefni að fjárhagslegir hagsmunir Matís og matvæla-
framleiðenda fari saman, óháð hagsmunum neytenda
eftir því sem næst verður komist. En þó er bæði ljúft
og skylt að taka fram að það er ekki annað að sjá en að
hjá Matís sé unnið af fagmennsku og metnaði, enda
þar unnið að málum sem eru neytendum ákaflega
mikilvæg. En þetta snýst ekki um Matís.
Reyndar snýst þetta ekki heldur einvörðungu
um Gunnar Braga Sveinsson og snör handtök hans
við innáskiptingar í stjórn Matís ellefu dögum fyrir
kosningar. Þetta snýst um stjórnsýsluna og hvort fag-
lega sé staðið að málum. Hvort hagsmunum neyt-
enda sé best borgið með aðstoðarkonu ráðherrans
og aðalfulltrúa Framsóknarflokksins í sveitarstjórn
Skagafjarðar í stjórn Matís, er aðeins eitt dæmi um þá
stjórnsýslu sem landsmenn hafa lengi mátt búa við.
Landsmenn eiga skilið að stjórnmálin temji sér betri
siði og ábyrgari stjórnarhætti en að vinavæða stjórnir,
ráð og nefndir.
Vinaskipan
Reykjavíkurstjórnin
Stjórnarandstöðuflokkarnir á
Alþingi eru farnir að funda um
samstarf að loknum kosningum.
Ef marka má yfirlýsingar leið
toga flokkanna á Facebook eftir
sameiginlegan fund VG, Pírata,
Samfylkingarinnar og Bjartrar
framtíðar í gær er málefnalegur
samhljómur. Þessir sömu flokkar
mynda meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur og að sögn fulltrúa
framboðsins gengur samstarfið
vel. Þar er Samfylkingin burðarás
inn með fimm af níu manna meiri
hluta, svo er Björt framtíð með tvo
og Píratar og VG hvor með sinn
manninn. Þessi ólíki styrkleiki
flokkanna innan meirihlutans
birtist síðan í því að oddviti Sam
fylkingarinnar er borgarstjóri
í Reykjavík en oddviti Bjartrar
framtíðar er formaður borgarráðs.
Fulltrúi VG hefur síðan verið for
seti borgarstjórnar.
Annað stjórnarmynstur
Ef þessir sömu flokkar mynduðu
stjórnarmeirihluta eftir Alþingis
kosningar er allt útlit fyrir að
Píratar og VG yrðu burðarásar
í þeim stjórnarmeirihluta. Og
væntanlega myndi það hafa áhrif
á það hvernig skipað væri í helstu
embætti eftir kosningar, með því
að Píratar hefðu bæði mest áhrif á
stjórnarsáttmála og það hvernig
skipað væri í helstu ábyrgðar
stöður. Það skal ósagt látið hvort
það yrði verri stjórn fyrir vikið, en
það yrði alls engin Reykja víkur
stjórn. jonhakon@frettabladid.is
2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r12 s k o ð U N ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
9
-4
1
A
0
1
B
0
9
-4
0
6
4
1
B
0
9
-3
F
2
8
1
B
0
9
-3
D
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K