Fréttablaðið - 24.10.2016, Síða 13
Málþing um brjóstakrabbamein verður að Skógarhlíð 8 mánudaginn
24. október kl. 17:00–18:45 á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna,
Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar, Krabbameinsfélags Reykjavíkur og
Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
Setning
Sigrún Gunnarsdóttir, formaður
Krabbameinsfélags Íslands
Side effects after cancer
– how you move on
Josina Bergsøe rithöfundur
Síðbúnir fylgikvillar eftir
krabbameinslyfjameðferð
Ásgerður Sverrisdóttir
krabbameinslæknir
Gildi eftirlits varðandi
aukaverkanir af andhormónum
Þóra Þórsdóttir hjúkrunarfræðingur
Krabbamein í æsku – eftirfylgd út lífið
Vigdís Hrönn Viggósdóttir
hjúkrunarfræðingur
Reynslusaga: Hégómi eða lífsgæði?
Dóróthea Jónsdóttir
Umræður
ER ÞETTA
BARA ÉG?
SÍÐKOMNAR AFLEIÐINGAR MEÐFERÐAR
DAGSKRÁ
BLEIKASLAUFAN.IS
Stuðningsaðilar:
Fundarstjóri: Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir
Jafnrétti kynjanna er grundvallar mannréttindamál og það er líka efnahagsmál. Rannsóknir hafa
sýnt að með því að bæta stöðu
kvenna aukum við hagvöxt og efna
hagslegan stöðugleika. Fjárhags
legt sjálfstæði kvenna er ekki bara
gott fyrir samfélagið heldur er það
forsenda þess að konur geti staðið
jafnfætis körlum og séu þeim ekki
háðar um lífsviðurværi sitt og barna
sinna. Atvinnuþátttaka kvenna hefur
alltaf verið mikil á Íslandi, hún er
álitin styrkleiki vinnumarkaðarins
og hefur jákvæð áhrif á landsfram
leiðslu. Því sætir furðu hversu seinlega
okkur gengur að útrýma launamun
kynjanna.
Samfylkingin hefur um árabil
verið leiðandi í að útrýma launamun
kynjanna. Síðasta ríkisstjórn Samfylk
ingarinnar kom meðal annars á jafn
launastaðli, setti lög um kynjakvóta í
stjórnum fyrirtækja og lífeyrissjóða og
jafnaði hlut kynjanna í ríkisstjórn og
æðstu embættum ríkisins. Ríkisstjórn
Jóhönnu Sigurðardóttur minnkaði
jafnframt launamun kynjanna tals
vert, en verkinu er hvergi nærri lokið.
Frá árinu 1961 hefur verið staðfest
með lögum að óheimilt sé að mis
muna í launum út frá kynferði. Ný
jafnréttislög frá árinu 2008 kveða
skýrt á um að launaleynd í ráðningar
samningum sé ekki skuldbindandi og
að fólki sé í sjálfsvald sett hvort það
skýri frá launakjörum sínum. Þrátt
fyrir það eru mjög fá mál vegna launa
mismununar kærð.
Lög gagnast okkur þó ekki nema
haft sé eftirlit með að þeim sé fram
fylgt og er Jafnréttisstofu ætlað að
sinna því eftirlitshlutverki. Jafnréttis
stofa fær framlög til jafnréttismála.
Í núverandi fjárlögum eru áætlaðar
102,8 milljónir til Jafnréttisstofu og
21,5 milljónir í önnur framlög. Það er
ljóst að fjármunirnir duga ekki fyrir
því víðtæka hlutverki sem Jafnréttis
stofu er ætlað og því viljum við í Sam
fylkingunni tvöfalda þessi framlög hið
minnsta. Ábyrgðin liggur nefnilega
hjá þeim sem setja leikreglurnar.
Nú eru 55 ár síðan það var staðfest
með lögum að óheimilt væri að mis
muna körlum og konum í launum.
Við eigum öll að taka þá grundvallar
afstöðu að borga konum og körlum
sömu laun fyrir sömu störf. Skilaboð
kvennafrídagsins árið 1975 eiga enn
fullt erindi við okkur öll. Tryggjum
konum fjárhagslegt jafnrétti. Árið er
2016. Þetta er ekkert flókið. Það er
bara að gera það.
Tvöföldum framlög til jafnréttismála
Jóhanna Vigdís
Guðmundsdóttir
frambj. Sam-
fylkingar og
stjórnarkona í
Kvennahreyfingu
flokksins
Steinunn Ýr
Einarsdóttir
frambj. Samfylk-
ingar og formaður
Kvennahreyfingar
flokksins
Þetta er ekkert
flókið. Það er
bara að gera
það.
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag Það var rok og rigning hér heima þegar ég brá mér á dögunum til Seattle í Bandaríkjunum. Þar reyndist vera sama veður og enn meira óveður í
aðsigi að sögn veðurfræðinga. Grár himinn og þung
skýjað.
Gargandi putti
Trump var í sjónvarpinu þegar ég kveikti á því og hann
var þar enn þegar ég slökkti á því og þegar ég kveikti á
því morguninn eftir var hann þar enn, gargandi með
þennan eilífa putta sinn á lofti. Það væri indjánanafnið
hans: Gargandi putti. Hann var æfur en samt báru öll
svipbrigði mannsins þess merki að hafa verið þaulæfð
fyrir framan spegilinn. Soldið eins og Hitler. Hann var
greinilega þarna í sjónvarpinu frá morgni til kvölds –
og alla nóttina líka. Þann tíma sem ég dvaldi þarna í
Seattle var Trump eins og grátt og þungt ský sem grúfir
yfir Ameríku og neitar að fara. Hann var rok og rigning.
Þegar hann var ekki sjálfur að garga, með puttann á
lofti, var fólk að tala um hann; alls konar fólk, sem
reyndi að finna nýja og nýja fleti á því að tala um öll
hans stórfenglegu ómögulegheit.
Bestur þótti mér Bill Maher, sem er glúrinn gaman
málamaður á vinstri kantinum. Hann sýndi því ekki
nokkurn skilning að Trump hafi í hyggju að vefengja
kosningaúrslitin ef þau reynast honum óhagstæð, sá
í því ógn við lýðræðið og tilraun til að fæla minni
hlutahópa frá kjörstöðum með því að senda ofbeldis
hneigðum stuðningsmönnum skilaboð um að ganga
hart fram í því að hafa áhrif á kjörsókn. Hann sá í
þessu að Trump væri að skera upp herör. Hann sagði
að Trump væri „the Che Guevara of the deplorables“
með vísun í þá umdeildu einkunn sem Hillary gaf á
sínum tíma heitustu stuðningsmönnum Trumps, að
þar færi ömurlegt lið.
Ég rak mín erindi – flutti mína tölu og gerði svo
þetta sem Íslendingar gera í útlöndum: fékk mér
regnhlíf, fór í H&M og Forever 21, fékk mér bjór og
handborgara. Ég hélt ég væri að fara á listasafn en
þar reyndust bara rafmagnsgítarar og gítarnögl og
aðrir helgir dómar Kurts Cobain. En ég sá til allrar
hamingju líka aðra sýningu þar sem var meðal annars
undurfagurt verk eftir Steinunni Sigurðardóttur, kjóll
sem virtist gerður úr draumum og þrá. Ég skimaði svo
auðvitað eftir Frasier en hann reyndist hafa yfirgefið
bygginguna; hitti aftur á móti stórmerkan bókasafn
ara af íslenskum ættum …
Stjórnmál framtíðarinnar?
Og fór svo aftur á hótelið. Þar var Trumphog Day í
sjónvarpinu. Bálreiður putti. Hann var að garga og
fara með atriðið sitt frammi fyrir fagnandi lýðnum,
láta reka einhvern mann út af svæðinu sem var með
múður – og var augljóslega sviðsett atriði, eins og allt
þarna; yfir amerískri kosningabaráttu er einatt ein
hver óraunveruleikablær, með aðkeyptum hvatn
ingarópum og hrifningarflogum en Trump hefur
tekið þetta skrefinu lengra í áttina að fjölbragða
glímunni bandarísku, þar sem allt er tómt sjónarspil,
hver er góður og hver vondur, hver vinnur og hver
tapar – kannski er þetta framtíðin? Kannski er þetta
nútíminn?
Svo komu talandi hausar og fóru að tala um hann,
hvað hann væri nú skrýtinn og fáránlegur og léti
mikla vitleysu út úr sér. Þau gátu ekki hætt að tala
um hann og ég gat ekki hætt að horfa þó að ég væri
búinn að heyra og sjá allt áður. Það voru sýnd viðtöl
við konur sem vitnuðu um líkamsárásir hans á sig, og
aftur og aftur var leikin upptaka af vanmetagorti hans
yfir því að káfa á konum og troða tungunni á sér upp
í þær áður en þær fengju rönd við reist. Sjálfur hefur
hann reynt að afgreiða þetta tal sem karlaklefagys,
en mér er sem ég sæi félaga mína í badmintonliðinu
Garpi tala svona eða þá hina ráðvöndu og háttvísu
lögmenn sem spila um leið og við í Badmintonhöll
inni í Álfheimum.
Um þetta var rætt fram og aftur og velt upp nýjum
og nýjum flötum á óhæfi Trumps. Hann lýgur og hatar
og gargar. Hann æsir upp og espar fólk til ódáða.
Hann er hinn fullkomni undirmálsmaður, svíkur um
greiðslur, fer á hausinn með ólíklegustu ævintýri; eini
maðurinn í sögu mannkyns sem ekki getur einu sinni
rekið spilavíti með hagnaði, eins og Obama sagði: Í
spilavítum vinnur húsið alltaf, nema þegar Trump á
spilavítið …
Eiginlega virðast engin takmörk fyrir því hversu
óhæfur einn náungi getur reynst vera til að gegna
nokkru starfi; ekki er hægt að finna svo fábrotið og
einfalt starf að honum sé treystandi fyrir því; hvað
þá að hann sé fær um mannaforráð. Eina starfið sem
þessi maður gæti hugsanlega gegnt er að vera týpa
í sjónvarpinu – sem er einmitt það eina sem hefur
lánast hjá honum.
Þetta blasir við hverjum manni; þarf ekki annað en
að horfa á þennan óviðfelldna putta á honum. Samt
segja kannanir að fjörutíu prósent Bandaríkjamanna
séu enn staðfastlega á þeirri skoðun að hann sé betri
til starfans en Hillary Clinton. Á því er aðeins ein
haldbær skýring: Hún er kona. Hann frekjulegur karl.
En sem sagt: óveðrið þeirra í aðsigi þarna í Seattle
kom aldrei. Bara rok og rigning. Þegar ég kom svo
heim var rok og rigning. Við fáum víst litlu breytt
um það. En öðru ráðum við sjálf. Og kjósum bráðum:
kjósum enga vitleysu …
Rok og rigning
Hann sagði að
Trump væri
„the Che
Guevara of
the deplor
ables“ með
vísun í þá
umdeildu
einkunn sem
Hillary gaf á
sínum tíma
heitustu
stuðnings
mönnum
Trumps, að
þar færi
ömurlegt lið.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 2 4 . o k T ó B e R 2 0 1 6
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
9
-3
2
D
0
1
B
0
9
-3
1
9
4
1
B
0
9
-3
0
5
8
1
B
0
9
-2
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K