Fréttablaðið - 24.10.2016, Síða 15
fólk
kynningarblað 2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r
Fanney Edda Felixdóttir og Sindri Snær Konráðsson fara með aðalhlutverkin í Litlu hryllingsbúðinni sem Leikfélag VMA
frumsýndi í Samkomuhúsinu á Akureyri síðastliðinn föstudag. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
Leikfélag Verkmenntaskólans á Akur
eyri (VMA) frumsýndi söngleikinn
Litlu hryllingsbúðina í Samkomu
húsinu á Akureyri síðasta föstudags
kvöld við mikil fagnaðarlæti sýningar
gesta. Söngleikurinn er með vinsælli
og þekktari söngleikjum sögunnar og
hefur margoft verið settur upp hér
á landi af atvinnuleikhúsum og leik
félögum framhaldsskóla við miklar
vinsældir.
Mikið hefur mætt á leikurum og
aðstandendum sýningarinnar undan
farnar vikur enda í nógu að snúast
fyrir svo viðamikla uppfærslu. Aðal
hlutverk sýningarinnar eru í höndum
þeirra Fanneyjar Eddu Felixdóttur
og Sindra Snæs Konráðssonar en þau
fara með hlutverk Auðar og Baldurs.
Þau segja undanfarnar vikur hafa ein
kennst bæði af spennu og mikilli vinnu
en bæði hafa þau brennandi áhuga á
leiklist. „Ég hef verið að syngja síðan
ég man eftir mér og leiklistin fylgdi
í kjölfarið,“ segir Sindri. „Síðan 2012
hef ég leikið í um tíu leiksýningum,
leikstýrt einni og sungið mikið á Ak
ureyri og í nágrenni. Ástæðan fyrir
því að ég tók þátt í þessu verki er ein
faldlega sú að þetta er einn af mínum
uppáhaldssöngleikjum.“
Skemmtilegur tími
Litla hryllingsbúðin er annað verkið
sem Fanney tekur þátt í. „Á síðustu
önn tók ég þátt í leikritinu Bjart með
köflum sem VMA setti upp. Ég ákvað
að fara í áheyrnarprufu fyrir Litlu
hryllingsbúðina því mig dreymir um
að verða leikkona þegar ég verð eldri.
Þannig að ég reyni að grípa öll tæki
færi sem mér bjóðast og tengjast leik
list.“
Þau eru sammála um að æfingaferl
ið hafi verið afar strembið en um leið
mjög skemmtilegt. Auk þess hafi öll
samvinna milli leikara og leikstjór
ans verið mjög góð. „Það sem kom mér
helst á óvart var hvað hópurinn náði
strax vel saman og allir urðu mjög
góðir vinir,“ segir Sindri.
Fanney segir að þrátt fyrir krefj
andi og erfitt æfingaferli hafi hún
aldrei skemmt sér eins vel. „Þetta er
æðislegur hópur og það er svo gaman
að æfa og sjá sýninguna vaxa og
dafna, alveg frá fyrsta samlestri og
þar til verkið var frumsýnt á föstudag
inn. Sjálf er ég líka búin að læra heil
mikið, bæði um sjálfa mig og um leik
list. Það sem kom mér helst á óvart var
einfaldlega ég sjálf. Ég bjóst alls ekki
við að fá hlutverk, sérstaklega ekki
sönghlutverk, því ég hef aldrei sung
ið opinberlega áður. Í æfingaferlinu er
ég búin að læra svo margt og gera svo
marga hluti sem ég bjóst aldrei við að
ég gæti.“
miklar væntingar
Þótt verkið sé heimsþekkt reynir hóp
urinn að setja sitt mark á sýning
una að sögn Sindra. „Við reynum að
fylgja verkinu í bland við nýjungar.
Við unnum karakterana mikið út frá
okkur sjálfum og lýsingum úr hand
ritinu. Leikmyndin er öll okkar en við
höldum gömlu góðu lögunum.“ Fann
ey bendir á að í öllum uppsetningum á
verkinu hefur Auður verið ljóskutýpan
og tannlæknirinn verið svarthærður.
„Í uppsetningu okkar er ég lituð dökk
hærð og tannlæknirinn er ljóshærður.
En þetta er bara brot af því sem grein
ir okkur frá öðrum uppsetningum, við
reynum að gera sýninguna algjörlega
að okkar eigin.“
Sýningin er sú stærsta sem VMA
hefur tekið þátt í og væntingarnar því
miklar. „Fyrirfram voru væntingarn
ar í botni fyrir frumsýninguna. Við
vonum sannarlega að fólk á Akureyri
og í nágrenni komi til með að mæta
á næstu sýningar. Það skiptir miklu
máli að þetta heppnist sem best því
það opnar fleiri möguleika fyrir leik
sýningar og bara almennt félagslíf
skólans í framtíðinni.“
Næstu sýningar verða föstudaginn
28. október og tvær sýningar verða
laugardaginn 29. október.
Nánari upplýsingar má finna á Face
book, bæði á síðu nemendafélags VMA
(Þórduna) og á Litla hryllingsbúðin.
Miðar eru seldir á mak.is og tix.is.
Strembið
en gaman
Þórduna kynnir Leikfélag VMA sýnir Litlu
hryllingsbúðina um þessar mundir. Verkið er sýnt í
Samkomuhúsinu og eru nokkrar sýningar eftir.
Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jarngler.is
Mynda-upphengibrautir sem
hafa þann kost að ekki þarf
að negla í veggi og er mjög
auðvelt að breyta uppröðun
eða bæta við myndum.
Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
9
-2
4
0
0
1
B
0
9
-2
2
C
4
1
B
0
9
-2
1
8
8
1
B
0
9
-2
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K