Fréttablaðið - 24.10.2016, Blaðsíða 19
Svavar GeStSSon
Þegar ég var heilbrigðis
ráðherra á árun
um 19801983 var
Hringbrautar
verkefnið ekki
á dagskrá. Þá
var verið að
skoða aðra staði
fyrir Landspít
alann eins og
Vífils staðasvæðið
sem var þá ósnortið að
mestu fyrir utan Vífilsstaðaspítalann sjálfan.
Þá skoðuðum við líka túnin í kringum Kópa
vogshælið. Jafnframt þessu var unnið að því
að bæta aðstöðuna á Landspítalasvæðinu
með byggingu geðdeildarinnar og Kbygg
ingunni. Bygging geðdeildarinnar á svæðinu
sjálfu var bylting því þar með var ákveðið
af yfirvöldum að litið skyldi á geðsjúkdóma
eins og aðra sjúkdóma. Ég sat í stjórnarnefnd
Ríkisspítalanna 1987–1988 og 1992–1994 og
þá var mikið fjallað um húsnæðismál spítal
ans. Síðan gerðist tvennt sem skiptir máli í
þessari sögu: Annað var ákvörðunin um að
færa Hringbrautina til suðurs; tilgangur
inn var meðal annars sá að skapa svigrúm
fyrir nýjar byggingar á Landspítalasvæðinu.
Og hitt sem skiptir máli í þessu var bygg
ing barnaspítalahússins. Það hefur því verið
ljóst frá því á tíunda áratug síðustu aldar að
Nýr Landspítali risi á Hringbrautarsvæðinu.
Allar vangaveltur um annað hafa tafið verk
ið sem núna, loksins, er komið á fulla ferð og
verður ekki aftur snúið. Allir flokkar á Al
þingi nema einn standa heilshugar að verk
inu. Sá sem ekki gerir það átti reyndar heil
brigðisráðherrana þegar fyrstu skrefin voru
stigin – Ingibjörgu Pálmadóttur, Jón Krist
jánsson og Siv Friðleifsdóttur – og var aðili
að þeim ríkisstjórnum og borgarstjórnar
meirihluta sem færði Hringbrautina. Svona
er það!
Nú er ekkert annað að gera en að bretta
upp ermarnar og klára. Það liggur á. Allar
tafir eru skaðlegar fyrir land og þjóð.
Jón KriStJánSSon
Ég tók við embætti
heilbrigðisráðherra
árið 2001. Eitt af
þeim verkefnum
sem fylgdu var
að vinna áfram
að uppbygg
ingu Landspít
alans. Á þeim
tíma þótti ástæða
til að huga að upp
byggingu á einum stað.
Ég skipaði því nefnd til að skoða meðal
annars staðarvalið. Niðurstaðan var eftir
saman burð á álitlegum stöðum að byggja
upp við Hringbraut. Ein af ástæðunum
fyrir því var nálægðin við háskólasvæð
ið, en starfsemi þessara stofnana er sam
ofin. Nú standa yfir framkvæmdir við nýtt
sjúkrahótel og verið að hanna meðferðar
kjarnann.
Hugmyndafræðin á bak við þessar fram
kvæmdir er meðal annars sú að skapa hér
umhverfi sem laðar að sér vel menntað fólk,
að það velji sér starfsvettvang hér heima
eftir nám erlendis. Hér verði fullkomið há
skólasjúkrahús sem hafi yfir þeirri tækni
og mannafla að ráða að geta ráðið við flókn
ustu aðgerðir. Til þess þarf fjölmennt upp
tökusvæði, þannig að sjálfgefið er að þetta
verður miðstöð og endastöð í heilbrigðis
kerfinu, þótt uppbygging annars staðar sé
einnig bráðnauðsynleg.
Ég hef ríka sannfæringu fyrir því að við
séum á réttri leið í þessum framkvæmd
um og mjög mikilvægt að tefja þær ekki
með krókaleiðum í staðsetningarmálum.
Að sjálfsögðu eru skoðanir skiptar í þessu
stórmáli en að mínum dómi er teningunum
löngu kastað.
álfheiður inGadóttir
Þegar ég varð heil
brigðisráðherra
1. október 2009
voru allar fjár
hagslegar for
sendur fyrir
nýbygging
um við Hring
braut brostnar.
Í kjölfar hruns
ins var allt verkefn
ið tekið til endurskoðun
ar. Bæði stjórnvöld, verkalýðshreyfing
og atvinnurekendur sáu í framkvæmd
inni tækifæri til að lyfta atvinnustig
inu í landinu og draga úr atvinnuleysi
og Landspítalabyggingin var alltaf sú
sem stóð uppúr þegar þjóðhagsleg hag
kvæmni var annars vegar.
Það kom svo í minn hlut að undirrita
viljayfirlýsingu stjórnvalda við 20 líf
eyrissjóði um fjármögnun þeirra á upp
byggingu spítalans rúmum mánuði eftir
að ég tók við ráðuneytinu. Það var á við
stærsta happdrættisvinning að fá Gunn
ar Svavarsson, verkfræðing og fyrr
verandi formann fjárlaganefndar, til að
tryggja framgang verkefnisins og sinna
samskiptum við hagsmunaaðila og sam
starfsaðila. Það er hlutverk sem hann
sinnir enn í dag, nú sem framkvæmda
stjóri NLSH.
Í mars 2010 hrintum við af stað sam
keppni um skipulag svæðisins. Eitt síð
asta verk mitt sem ráðherra var einmitt
að ganga frá samkomulagi milli sigur
vegaranna, Spitalhópsins, og Nýs Land
spítala ohf., um frumhönnun nýbygginga
við Hringbraut.
Ég er hreykin af því að hafa átt þátt í
að ýta Hringbrautarverkefninu aftur af
stað eftir hrun. Bygging Nýs Landspítala
var alltaf ofarlega á mínum verkefna og
forgangslista og ég var svo lánsöm að fá
öflugt fólk til samstarfs um þetta brýna
verkefni það tæpa ár sem ég var ráð
herra.
Þó undirbúningurinn hafi tekið lengri
tíma en við ætluðum þá hafa aðstæður
breyst svo til batnaðar í íslensku sam
félagi að nú getur ríkissjóður sjálfur fjár
magnað byggingu nýs spítala. Ég gleðst
yfir því að sjá bygginguna komna á full
an skrið. Nú verður ekki aftur snúið.
GuðlauGur Þór ÞórðarSon
Verkefnið við Hring
braut var á mínu
borði sem heil
brigðisráðherra
á árunum 2007
2009. Ég fylgdi
því fast eftir og
geri enn. Mikil
vægi þess að
uppbygging eigi
sér stað er augljós og
ekki má verk úr hendi falla við áframhald
andi jákvæð skref í Hringbrautarverkefn
inu. Ástæðurnar eru margþættar, en ég vil
nefna hér þrjú atriði sem ég kom að.
Byggingarnefnd undir forystu Ingu Jónu
Þórðardóttur lagði á borð hjá mér yfirgrips
mikla og vel unna greinargerð um Hring
brautarverkefnið. Nefndina skipaði ég í
október 2007 en henni var falið að gera út
tekt á stöðu verkefnisins og vinna áætlun
um áfangaskiptingu og fjármögnun. Þá var
farið yfir evrópsk skilyrði er varða útboð
og eitt af því sem þá var ákveðið og stendur
enn í dag er að öll gögn og allt talmál skal
vera á íslensku, þrátt fyrir að útboðin fari
fram á evrópska efnahagssvæðinu.
Á þessum árum sökktum við okkur einnig
í umferðarmálin. Málefni nýju Hringbraut
arinnar voru á verkefnalista borgarstjórn
ar og þurftum við öll að setja okkur vel inn
í þessi mál. Það kom mér því ekki á óvart
að umferðarmálin voru ekki hindrun þegar
deili og aðalskipulag Hringbrautarlóðar
innar voru samþykkt sem gerðu ráð fyrir
uppbyggingu spítalans.
Á haustmánuðum 2008 var tekið af skar
ið með að endurmeta Hringbrautarverkefn
ið og gera ráð fyrir að uppbyggingin yrði
minni en ráð var fyrir gert á fyrri stigum.
Fól ég Huldu Gunnlaugsdóttur, forstjóra
Landspítala, að norsk hönnunar og ráð
gjafar fyrirtæki færu yfir áætlanir og hönn
unarforsendur vegna nýs Landspítala og
skilaði skýrslu um niðurstöður sínar. Á þeim
grunni er nú unnið enda sýndi sig að ávinn
ingurinn af því að sameina rekstur Land
spítala yrði þá um 19 milljarðar króna á nú
virði til næstu 40 ára. Það yrði mun dýrara
fyrir íslenskt samfélag að reka Landspítal
ann áfram við núverandi aðstæður í Foss
vogi og við Hringbraut en að sameina rekst
urinn. Hagkvæmast yrði að byggja við nú
verandi Landspítala við Hringbraut í fyrsta
áfanga og nýta áfram flest hús sem fyrir eru
á lóðinni. Þessar leiðarlínur voru og eru enn
mjög mikilvægar.
Ráðherrar um Hringbrautarverkefnið
Guðmundur BJarnaSon,
Á þeim árum sem
ég sat í stóli heil
brigðis og trygg
ingamálaráð
herra, 1987
1991 var að
hefjast umræða
um sameiningu
sjúkrahúsanna í
Reykjavík.
Loks nú, 2530
árum síðar, sér fyrir
endann á því mikilvæga verki með bygg
ingu nýs Landspítala við Hringbraut. Það
tekur ár og áratugi að hnýta alla enda í svo
stóru verkefni og hefði því vissulega þurft
að vera lokið fyrir löngu.
Mér er því ómögulegt að leggja trúnað á
þær hugmyndir að það taki ekki nema örfá
ár og ætti ekki að tefja fyrir uppbyggingu
nýs sjúkrahúss að fara nú að leita að nýjum
stað. Öll skipulagsmál og hönnun slíks
mannvirkis tekur mörg ár áður en hægt er
að hefja framkvæmdir sem síðan taka sinn
tíma, það segir sagan okkur.
Og að tala um að nú sé tækifæri til að
huga að nýjum stað er líka rangt – það tæki
færi er löngu liðið. Ákvörðun hefur nú loks
verið tekin og uppbygging hafin við nýjan
Landspítala við Hringbraut. Nú er ekki
annað að gera en ljúka því máli bæði hratt
og vel!
Síðan má að sjálfsögðu fljótlega hefja at
hugun og undirbúning að nýju staðarvali
fyrir nýjan spítala! Það ferli tekur marga
áratugi samanber reynsluna og sjálfsagt
verður orðið tímabært miðað við þróun
nýrrar tækni og mannfjöldaspár að hefja
slíkar framkvæmdir upp úr miðri öldinni.
inGiBJörG Pálmadóttir
Ég var heilbrigðis og
tryggingamálaráð
herra í sex ár á ár
unum 19952001.
Á þeim tíma var
unnið að sam
einingu stóru
sjúkrahúsanna í
Reykjavík, sem
tókst farsællega í
kringum aldamótin.
Forsenda sameining
arinnar var að reka eitt öflugt sjúkrahús þar
sem bæði fagleg þekking nyti sín best, nýjasti
og dýrasti tæknibúnaðurinn væri á sama stað.
Þá þegar var öllum ljóst að ný bygging yrði að
rísa undir sameinaða þjónustu.
Ég var í fyrstu staðarvalsnefndinni 2002
sem Jón Kristjánsson, þáverandi heilbrigðis
ráðherra, skipaði ásamt hópi íslenskra og er
lendra aðila. Þrír staðir voru skoðaðir, Víf
ilsstaðir, Borgarspítalinn og Hringbrautin,
sem varð niðurstaðan eftir mjög nákvæma
yfir ferð þar sem reynt var að taka allt með
í reikninginn.
Síðan eru liðin mörg ár og margir sérfræð
ingar og ráðherrar komið að borðinu og niður
staðan alltaf verið sú sama varðandi staðar
valið einhverra hluta vegna.
Það er ótrúlegt hvað stendur í okkar þjóð
að reisa sjúkrahús jafn framkvæmdaglöð og
við annars erum. Ég er ekki búin að gleyma
þeirri löngu baráttu sem þurfti að heyja fyrir
byggingu Barnaspítala Hringsins.
Ég hélt að þegar hann var vígður í janú
ar 2003 myndi ekkert stöðva næstu skref
varðandi nýjan spítala, svo mikil straum
hvörf urðu á allri aðstöðu sjúklinga, aðstand
enda og starfsfólks með byggingu barna
spítalans, sem reistur var á 33 mánuðum.
Hvað á að bjóða sjúklingum og starfsfólki
Landspítalans lengi upp á endalaust kjaftæði
um staðarvalið? Þessari spurningu verður að
svara núna, óvissuástandinu verður að ljúka.
Það er þjóðþrifamál að klára Hringbrautar
verkefnið fljótt og vel.
SiGhvatur BJörGvinSSon
Við Íslendingar erum einstaklega
þrasgefin þjóð. Getum aldrei
talað okkur til samstöðu né sam
komulags. Tölum ávallt okkur
til meiri sundrungar, vaxandi
deilna, fleiri og fleiri hug
smíða og til meiri ágreinings
við alla aðra. Þetta á ekki síst
við þegar kemur að húsbygging
um til sameiginlegra þarfa. Perl
an, Ráðhúsið, Hæstaréttarbygg
ingin – Landspítalinn. Svo er rifist og
þráttað þar til loksins verkið er hafið. Þá
þagna allir – og eru svo sáttir á eftir.
Þrasið um Landspítalann hefur nú
staðið meira en tvo áratugi. Nánast má
segja að þriðji hver Íslending
ur hafi komið sér upp mjög
ákveðinni skoðun um hvort
eigi og ef svo er hvar eigi.
Menn búnir að tala sig eins
langt frá sameiginlegri
niðurstöðu og orðið getur.
Förum nú að láta verkin
tala. Fjármunirnir eru til,
teikningarnar eru til, vilji
stjórnvalda liggur fyrir. Hefj
umst svo handa. Biðin orðin meira
en nógu löng. Svo þegar byggingarnar
rísa munu allir verða svo sáttir – og geta
farið að þrátta um annað. Til dæmis nátt
úrupassa! Af nógu er að taka.
Guðmundur árni StefánSSon:
Þegar ég tók við starfi heilbrigð
isráðherra 1993 þá voru mörg
stór og mikilvæg verkefni á
mínu borði. Þá fór ég úr starfi
bæjar stjóra í Hafnarfirði, þar
sem mikil uppbygging hafði
verið, í starf heilbrigðis
ráðherra þar sem mikil ólga
ríkti um málaflokkinn. Ég
vildi ró yfir málaflokkinn, þótt
þröngt væri skorið. Okkur tókst
vel um margt. En vildi svo margt
meira. Glaðastur var ég, þegar ég náði
heildarsamkomulagi um að byggja nýjan
barnaspítala með þeim Hringskonum sem
höfðu um áratugaskeið lagt svo gott
til. Síðari ráðherrar komu því í
höfn. Ráðherrar koma og þeir
fara. Þess vegna skiptir svo
miklu að eitthvað sé meitl
að í stein. Þess vegna skipt
ir svo miklu máli að haldið
sé striki og haldið áfram með
uppbyggingu við nýjan Land
spítala við Hringbraut. Öll um
ræða um annað dreifir kröftum –
og peningum í allt annað. Það þekki
ég af eigin reynslu. Góð heilbrigðisþjón
usta er undir staða velferðar þjóðar. Höld
um okkar striki og stefnu.
Uppbygging nýs Landspítala við Hringbraut á sér langan aðdraganda. Fjölmargir heilbrigðisráðherrar hafa komið að Hringbrautarverkefninu
með einum eða öðrum hætti. Hér fara nokkrir fyrrverandi ráðherrar yfir sinn þátt í uppbyggingu og þróun Landspítalans og sína framtíðarsýn.*
* Ekki bárust upplýsingar frá öllum fv. ráðherrum fyrir tilsettan tíma.
HRingbRautaRvERkEfnið
24. október 2016 3
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
9
-4
B
8
0
1
B
0
9
-4
A
4
4
1
B
0
9
-4
9
0
8
1
B
0
9
-4
7
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K