Fréttablaðið - 24.10.2016, Qupperneq 21
„Ábyrgð verkefnisins er í höndum
NLSH en FSR veitir aðstoð og ráð-
gjöf við verkefnisstjórn með það
að markmiði að reynsla og þekk-
ing FSR á sviði verkefnastjórn-
unar skili sér inn í verkefnið,“ út-
skýrir Halldóra Vífilsdóttir, for-
stjóri Framkvæmdasýslu ríkisins.
Hún segir FSR hafa ábyrgðar-
miklu hlutverki að gegna í notkun
BIM (e. Building Information Mod-
elling), upplýsingalíkönum mann-
virkja, en aðferðafræði BIM bygg-
ir á samvinnu og upplýsingaflæði
milli aðila verkefnis og eykur gæði
og áreiðanleika hönnunargagna
ásamt því að bæta framkvæmda-
ferlið.
Fjölþættur ávinningur BIM
„Ávinningur af BIM er fjölþætt-
ur fyrir hönnunarteymið, verk-
taka, eigendur eða notendur. Út-
búin eru stafræn þrívíddarlíkön
af mannvirkinu sem gera hönnuð-
um kleift að greina og betrumbæta
hönnunina á ýmsa vegu. Líkönin
nýtast verktaka sem getur útbúið
hermun af framkvæmdinni áður
en framkvæmdir hefjast og þannig
hannað skilvirkara framkvæmda-
ferli. Eigendur nýta svo líkönin
áfram til reksturs á mannvirkinu.
FSR sér um Byggeweb, verkefna-
vef Hringbrautarverkefnisins og
hefur umsjón með vinnu ráðgjafa
varðandi Breeam-vottun verkefn-
isins en Breeam er alþjóðlegt vist-
vottunarkerfi. Einnig má nefna að
FSR hefur metið hæfi bjóðenda
í þeim útboðum sem farið hafa
fram og aðstoðar við útboð. Þegar
kemur að verklegri framkvæmd
þá ber FSR, í samstarfi við NLSH,
ábyrgð á eftirliti með verkfram-
kvæmdinni en gerður er samning-
ur, eftir útboð, við eftirlitsaðila um
daglegt eftirlit.“
Staða framkvæmda og verklok
„Heildarverkefninu er skipt upp
í fjórar byggingar: meðferðar-
kjarni með legudeildum, rann-
sóknarhús, sjúkrahótel og svo bíla-
stæðahús sem hýsir bæði skrif-
stofu- og tæknihluta. Einnig mun
Háskóli Íslands byggja húsnæði
fyrir Heilbrigðisvísindasvið á
lóðinni. Í raun er því um að ræða
nokkur verkefni sem eru á mis-
munandi stigum,“ segir Halldóra.
Meðferðarkjarninn er áætlaður
um 58.500 m2 að stærð. Verið er
að vinna að fullnaðarhönnun og er
áætlað að framkvæmdum vegna
meðferðarkjarna og legudeilda
verði lokið í árslok 2023. Rann-
sóknarhúsið er áætlað um 14.000
m2. Næsta skrefið í því verkefni er
að auglýsa forval vegna fullnaðar-
hönnunar og eru áætluð verklok
framkvæmda árið 2023. Sjúkra-
hótelið, um 4.000 m2, er í byggingu
og mun það klárast á næsta ári.
Framkvæmdum vegna bílastæða-
húss á svo að ljúka, skv. áætlunum,
árið 2021.“
Breeam-umhverfisvottun
„Ákvörðunin um að fara í um-
hverfisvottun í þessu verkefni er í
samræmi við markmið stjórnvalda
um að sýna fordæmi og vera fyrir-
mynd í að tryggja gæði og fag-
mennsku í byggingarframkvæmd-
um. Umhverfisvottunarkerfi líkt
og Breeam hvetja til vistvænn-
ar hönnunar með notendur í fyr-
irrúmi og leggja jafnframt mat á
umhverfisstjórnun á verktíma sem
og rekstur byggingar út líftíma
hennar. Ávinningar umhverfis-
vottunar eru því ekki eingöngu
umhverfislegir heldur einnig sam-
félagslegir og efnahagslegir.“
Ákvörðunin um
að fara í um
hverfis vottun í þessu
verkefni er í samræmi
við markmið stjórnvalda
um að sýna fordæmi og
vera fyrirmynd í að
tryggja gæði og fag
mennsku í byggingar
framkvæmdum.
Halldóra Vífilsdóttir
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar, segir starfsemi Landspítalans eiga sér langa sögu á Hringbrautinni
og að lengi hafi verið gert ráð fyrir aukinni starfsemi tengdri spítalanum í skipulagi höfuðborgarsvæðisins. Mynd/STefÁn
Hvernig samræmist Hring-
brautarverkefnið skipulags-
málum höfuðborgarsvæðisins?
Áframhaldandi uppbygging
Landspítalans við Hringbraut er
í ágætu samræmi við þá stefnu
um skipulagsmál sem sett hefur
verið fram í landsskipulags-
stefnu, í svæðisskipulagi höfuð-
borgarsvæðisins og í aðalskipu-
lagi Reykjavíkur.
Starfsemi Landspítalans á sér
auðvitað langa sögu á þessum
stað og það hefur líka lengi verið
gert ráð fyrir aukinni starfsemi
tengdri spítalanum í skipulagi.
Þannig hefur lengi verið gert ráð
fyrir færslu Hringbrautar til suð-
urs og samfelldu stofnanasvæði
norðan hennar, tengdu lóð Land-
spítalans. Bygging Læknagarðs á
sínum tíma er til vitnis um þetta,
en hann var byggður í kring-
um 1980. Einnig lagning nýrrar
Hringbrautar fyrir u.þ.b. 10 árum.
Markmið með færslu Hringbraut-
ar var meðal annars að sameina
Landspítalalóðina beggja vegna
gömlu Hringbrautar.
Í núgildandi aðalskipulagi
Reykjavíkur er áfram gert ráð
fyrir uppbyggingu Landspítalans
við Hringbraut. Það tengist meðal
annars áherslu aðalskipulagsins
á þéttingu byggðar og á vaxtar-
pól rannsókna og nýsköpunar í
Vatnsmýri sem tengir Landspítal-
ann háskólunum og annarri þekk-
ingarstarfsemi í Vatnsmýri. Sam-
bærilegar áherslur er að finna
í svæðisskipulagi höfuðborgar-
svæðisins, þar sem sett er fram
stefna um þróun byggðar á höfuð-
borgarsvæðinu til næstu áratuga.
Nánara fyrirkomulag uppbygg-
ingar vegna Nýs Landspítala er
síðan sett fram í deiliskipulagi
Landspítalans. Deiliskipulagið
er ágætt dæmi um hvernig hægt
er að útfæra stórar byggingar á
mannlegum mælikvarða, í sam-
hengi við nærliggjandi byggð og
skapa vönduð bæjarrými.
Hver er aðkoma Skipulagsstofn-
unar að Hringbrautarverkefninu?
Bein aðkoma Skipulagsstofnunar
að slíkum skipulagsákvörðunum
er fyrst og fremst í gegnum sam-
ráð og ráðgjöf við sveitarfélögin
við mótun skipulagstillagna.
Einnig er aðal- og svæðisskipulag
háð staðfestingu stofnunarinnar.
Til viðbótar vinnur Skipulags-
stofnun tillögu að landsskipulags-
stefnu fyrir hönd umhverfis- og
auðlindaráðherra, en Alþingi
samþykkti síðastliðið vor í fyrsta
sinn landsskipulagsstefnu. Í
henni er sett fram almenn stefna
um skipulagsmál. Fyrirliggjandi
áform um skipulag Landspítalans
við Hringbraut falla ágætlega
að þeim áherslum sem þar eru
settar fram.
Ákvarðanir um skipulag
byggðar liggja þó fyrst og fremst
hjá sveitarfélögunum. Það er því
Reykjavíkurborg sem hefur haft
mest með skipulag Landspít-
alasvæðisins að gera. Verkefni
af þessari stærðargráðu koma
líka inn á borð annarra sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu,
því sveitar félögin standa saman
að svæðisskipulagi höfuðborgar-
svæðsins þar sem mótuð er
stefna um þróun byggðar og sam-
gangna á höfuðborgarsvæðinu
sem heild.
Þá eru svona stór verkefni auð-
vitað með öðrum hætti á borði
fleiri stofnana ríkisins, bæði í
gegnum ákvarðanir um rekst-
ur og uppbyggingu Landspítal-
ans, ákvarðanir um uppbygg-
ingu á vegum Háskóla Íslands og
framkvæmdir á borð við færslu
Hringbrautar sem er á forræði
Vegagerðarinnar. Það eru þann-
ig ýmsir opinberir aðilar, bæði á
sveitarstjórnarstigi og landsvísu,
sem koma að svona stórum skipu-
lagsverkefnum á ýmsan máta.
Samræmist vel skipulagi borgar
Í núgildandi aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir uppbyggingu Landspítalans við Hringbraut. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri
Skipulagsstofnunar, segir uppbyggingu Landspítalans við Hringbraut í ágætu samræmi við önnur skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu.
Halldóra Vífilsdóttir, forstjóri framkvæmdasýslu ríkisins, ásamt starfsfólki. Hún segir aðkomu fSR að Hringbrautarverkefninu
margþætta. Mynd/eRniR
framkvæmdasýslan veitir ráðgjöf
Hlutverk framkvæmdasýslu ríkisins, FSR, er að vera leiðandi afl á sviði opinberra framkvæmda. Meginverkefni FSR snúa að umsjón með
verklegum framkvæmdum ríkisins, allt frá undirbúningi þeirra og áætlunargerð að verklegum framkvæmdum og gerð skilamats. Halldóra
Vífilsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, segir aðkomu FSR að uppbyggingu nýs Landspítala á Hringbraut vera margþætta.
HRingbRauTaRVeRkefnið
24. október 2016 5
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
9
-5
F
4
0
1
B
0
9
-5
E
0
4
1
B
0
9
-5
C
C
8
1
B
0
9
-5
B
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K