Fréttablaðið - 24.10.2016, Page 35
Arkitektarnir Sólveig Berg Emilsdóttir og Jóhannes Þórðarson eru hluti af KOAN
hópnum sem sér um hönnun sjúkrahótelsins. MYND/EYÞÓR
Hönnun sjúkrahótelsins var unnin með nýrri aðferðafræði þar sem sett var upp
rafrænt, þrívítt og hlutbundið líkan af mannvirkinu.
Á fjórðu hæð sjúkrahótelsins er rúmgóður glerskáli og þakverönd með útsýni yfir borgina í vestur.
Efnisval innandyra tekur mið af starfseminni og þeirri staðreynd að dvalartími hótelgesta verður lengri
en almennt gerist á hótelum. Reynt er að koma til móts við fjölbreyttar þarfir þeirra sem hótelið nota.
Við hönnunina verða tryggð hótelherbergi með góðri dagsbirtu og er stærð og staðsetning glugga þannig
háttað að allir njóti góðrar dagsbirtu og útsýnis hvort sem er úr rúmi eða stólum innan herbergja. Setu-
stofur er staðsettar þannig að sólar og skjóls njóti.
Bygging nýja sjúkrahótelsins við
Hringbraut gengur vel og er bygg-
ingin farin að taka á sig mynd. Í
hótelinu verða 75 herbergi, veit-
ingasalur og aðstaða fyrir fjöl-
skyldur, auk stoðrýma. Húsið rís á
norðurhluta lóðar Landspítala við
Hringbraut milli Kvennadeildar,
K-byggingar og Barónsstígs, áfast
gamla Ljósmæðraskólanum.
Stefnt að vistvænni vottun
Aðalhönnuðir hússins eru KOAN-
hópurinn sem er samsettur af
arkitektastofunum Yrki og Glámu
Kími og verkfræðistofunum Conís
og Raftákni. Hljóðvistarhönnun og
brunatæknileg hönnun var unnin í
samstarfi við Verkís og forhönnun,
skipulagsgerð, hönnun gatna og
lóðar var unnin af Spital-hópnum.
Að sögn Jóhannesar Þórðarson-
ar, arkitekts FAÍ hjá Glámu Kími,
var hönnunin unnin með nýrri að-
ferðafræði, BIM (Building inform-
ation modelling), það er gerð upp-
lýsingalíkans mannvirkisins þar
sem sett var upp rafrænt, þrívítt
og hlutbundið líkan af mannvirk-
inu. „Við hönnunina var að auki
mikil áhersla lögð á vistvæn bygg-
ingarefni og -aðferðir og er stefnt
að því að byggingin hljóti vistvæna
vottun samkvæmt alþjóðlegum
stöðlum.“
Tekur mið af fjölbreyttum
notendahópi
Aðspurð hvað helst hafi þurft að
hafa í huga við hönnun sjúkrahót-
elsins segir Sólveig Berg Emils-
dóttir, arkitekt FAÍ hjá Yrki, að
húsið sé hannað á forsendum ítar-
legrar rýmisáætlunar verkkaupa
og forhönnunar Spital-hópsins sem
annaðist deiliskipulag Nýs Land-
spítala og forhönnun allra mann-
virkja innan þess. „Húsið er útfært
á forsendum algildrar hönnunar og
tekur hönnunin mið af fjölbreytt-
um notendahópi. Þannig eru ellefu
hótelherbergi innréttuð með þarfir
hreyfihamlaðra í huga og eitt her-
bergi er fyrir mikið fatlaðan ein-
stakling. Hægt er að tengja saman
hótelherbergi þannig að fjölskyld-
ur geti verið í tveimur samliggj-
andi herbergjum þar sem innan-
gengt er á milli. Jafnframt er hægt
að afmarka sérstakar fjölskyldu-
álmur með setustofum þar sem
er góð aðstaða til samveru sem
og eldunaraðstaða,“ útskýrir Sól-
veig og bætir við að mikil áhersla
hafi verið lögð á að skapa þægilega
ásýnd eins og á hefðbundnu vönd-
uðu hóteli og séu efni, innréttingar
og húsgögn í móttöku, setustofu og
veitingasal valin með hliðsjón af
því að skapa þannig andrúmsloft.
„Hægt er að opna þessi rými
út á sólríka suðurverönd á jarð-
hæð, þar sem setja má útihúsgögn.
Þannig geta notendur boðið til sín
ættingjum eða vinum og tekið á
móti þeim í nærandi og vinalegu
umhverfi. Að auki er á fjórðu hæð
rúmgóður glerskáli og þakverönd
með útsýni yfir borgina í vestur,“
segir Jóhannes.
Verklok í vor
Sjúkrahótelið er kjallari og fjórar
hæðir og mun það tengjast Barna-
spítala Hringsins og Kvennadeild
um tengigang í kjallara. Bygging-
in er 4.258 fermetrar að stærð með
kjallara og tengigöngum sem til-
heyra hótelinu. Húsið er staðsteypt
og einangrað að utan, klætt með
granítklæðningu sem er sambæri-
leg þeirri sem er á Barnaspítala
Hringsins og er útfærð í samstarfi
við myndlistarmanninn Finnboga
Pétursson. Steinklæðningin er í
raun listskreyting hússins en lista-
verkið er unnið samkvæmt sam-
komulagi við Listskreytingarsjóð.
Framkvæmdir við hótelið hófust í
nóvember síðastliðnum og er stefnt
að verklokum vorið 2017.
„Efnisval innandyra tekur mið
af starfseminni og þeirri stað-
reynd að dvalartími hótelgesta
verður lengri en almennt gerist
á hótelum. Komið verður til móts
við fjölbreyttar þarfir þeirra sem
hótelið nota en miðað er við að
gestirnir verði ýmist einstakling-
ar sem eru að jafna sig eftir að-
gerðir, fólk í eftirmeðferð, rann-
sókn eða lyfjagjöf, og aðstandend-
ur sjúklinga eða hótelgesta,“ lýsir
Jóhannes.
„Við hönnunina eru tryggð
hótel herbergi með góðri dags-
birtu og er stærð og staðsetning
glugga þannig háttað að allir njóti
góðrar dagsbirtu og útsýnis hvort
sem er úr rúmi eða stólum innan
herbergja. Setustofur er staðsett-
ar þannig að sólar og skjóls njóti.
Jafnframt er reynt að tryggja að
dagsbirta nái inn á alla herbergis-
ganga um glugga við enda þeirra
og þaðan fæst einnig útsýni út yfir
borgina eða út á svæði Landspítal-
ans,“ segir Sólveig.
Byggingu sjúkrahótels miðar vel
Sjúkrahótelið við Hringbraut er fyrsta nýbygging Nýs Landspítala. Hönnun hússins er í höndum KOAN-hópsins. Hönnunin tekur mið af
fjölbreyttum notendahópi og verður komið til móts við mismunandi þarfir þeirra sem hótelið nota. Stefnt er að verklokum næsta vor.
HRiNgBRAutARVERKEfNið
24. október 2016 7
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
9
-6
4
3
0
1
B
0
9
-6
2
F
4
1
B
0
9
-6
1
B
8
1
B
0
9
-6
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K