Fréttablaðið - 24.10.2016, Page 36
„Eitt af þeim hugtökum sem rutt
hefur sér mjög til rúms á liðnum
árum er klasasamstarf. Hugmynd
in á bak við klasa er að stofnanir
og fyrirtæki sem koma að ákveðn
um viðfangsefnum vinni saman,
en lykillinn að slíku samstarfi er
að það einskorðist ekki við aðila í
sama geira heldur tengi saman ólík
viðfangsefni og nálganir. Sterkur
vísir að slíkum klasa er þegar til
staðar í miklu og góðu samstarfi
milli Landspítala og stóru háskól
anna í nágrenninu, Háskólans í
Reykjavík og Háskóla Íslands. Það
samstarf tengist svo fjölmörgum
öðrum fyrir tækjum og stofnun
um á Íslandi, sem öll leggja sitt af
mörkum til að efla heilbrigðiskerf
ið,“ segir Ari
Háskólinn í Reykjavík hefur
að sögn Ara lagt ríka áherslu á að
efla tæknimenntun og tækniþekk
ingu hér á landi. „Meðal þess sem
háskólinn hefur lagt þar til eru
menntun og rannsóknir í heilbrigð
isverkfræði (e. biomedical engin
eering). Þegar kemur að menntun
á því sviði er lögð áhersla á þróun
og nýtingu tækni fyrir heilbrigðis
kerfið, en ekki þarf að fara mörg
um orðum um það hversu mikil
og góð áhrif tækniframfarir hafa
haft á heilbrigðiskerfið. Háskólinn
í Reykjavík hefur útskrifað fjölda
einstaklinga sem hafa þekkingu á
verkfræði, tækni og læknisfræði
legum undirstöðum. Í rannsóknum
á sviði heilbrigðisverkfræði er
unnið að þróun tækni og aðferða
sem nýtast í að bæta heilbrigði og
þjónustu. Landspítalinn og HR reka
saman sérstaka rannsóknarstofu
til að vinna að þróun nýrrar tækni
og samnýta sérfræðinga á báðum
stöðum í þeim verkefnum.“
Ari segir fjölmargt þegar hafa
komið út úr því samstarfi og fjölda
mörg verkefni bíða lausna. „Til að
nefna aðeins eitt dæmi þá hefur
verið þróuð þar tækni til að búa
til þrívíddarlíkön sem nýtast til að
aðstoða við undirbúning flókinna
skurðaðgerða. Háskólinn í Reykja
vík leggur áherslu á að halda áfram
að efla gott samstarf við Landspít
alann og aðra aðila í þessum geira,
til að tryggja að menntun, nýsköp
un og rannsóknir skili sér sem allra
best í skilvirku og öflugu heilbrigð
iskerfi fyrir íslenskt samfélag.“
HR heldur áfram
að efla gott sam-
starf við spítalann.
Ari Kristinn Jónsson
Ekki yrði mögu-
legt að byggja
undir heilbrigðisvísinda-
svið Háskóla Íslands á
öðrum stað nema með
mjög miklum viðbótar-
stuðningi frá stjórn-
völdum. Háskólinn og
Landspítalinn eiga það
sameiginlegt að báðar
stofnanir hafa verið
undirfjármagnaðar um
árabil. Menntun, heil-
brigði og vísindastarf
eru hins vegar undir-
staða velferðar og hag-
sældar þjóða.
Jón Atli Benediktsson
Landspítalinn og Háskólinn í Reykjavík reka saman sérstaka rannsóknarstofu til að vinna að þróun nýrrar tækni og samnýta
sérfræðinga á báðum stöðum í þeim verkefnum. MYND/VILHELM
Samstarf er undirstaða
öflugs heilbrigðiskerfis
Heilbrigðismál eru einhver mikilvægustu mál samfélags. Margir hafa þó að mati Ara Kristins Jónssonar, rektors Háskólans í Reykjavík,
fulleinfalda mynd af þeim og hugsa kerfið fyrst og fremst út frá sjúkrahúsum. Til þess að hægt sé að viðhalda skilvirku og öflugu
heilbrigðiskerfi þá þurfa margir þættir að koma saman. Meðal þeirra mikilvægustu eru að sögn Ara menntun, rannsóknir og nýsköpun.
Bygging nýs spítala við Hringbraut þjónar að sögn Jóns Atla því markmiði að
stuðla að bættri heilbrigðisþjónustu, tryggja gæði menntunar og þjálfunar
stúdenta og heilbrigðisstarfsfólks og skapa aðstæður fyrir öflugt rannsókna- og
nýsköpunarstarf á sviði heilbrigðisvísinda. MYND/PJEtuR
„Landspítalinn er stærsti sam
starfsaðili Háskóla Íslands og
báðar stofnanir starfa í reynd
sem órofa heild og mynda til sam
ans öflugt háskólasjúkrahús. Það
vill oft gleymast í umræðunni um
framtíðarstaðsetningu spítalans að
hann er ekki aðeins sjúkrastofnun
heldur jafnframt mikilvægasta
kennslu, þjálfunar og rannsókna
stofnun landsins fyrir stúdenta og
heilbrigðisstarfsfólk.“
Ríflega tvö þúsund nemendur
Jón Atli segir mesta samstarf
ið á milli heilbrigðisvísindasviðs
Háskólans og Landspítalans, en
öll fræðasviðin fimm sem starfa
innan Háskóla Íslands starfa með
einum eða öðrum hætti með spít
alanum. „Við heilbrigðisvísinda
svið eru ríflega tvö þúsund nem
endur sem leggja stund á læknis
fræði, hjúkrunarfræði, lyfjafræði,
sálfræði, sjúkraþjálfun, tannlækn
isfræði, geislafræði, lífeindafræði,
talmeinafræði o.fl. Akademísk
ir starfsmenn heilbrigðisvísinda
sviðs eru um þrjú hundruð talsins
og um hundrað þeirra eru sameig
inlegir starfsmenn beggja stofn
ana. Árangur öflugs samstarfs
stofnananna birtist ekki síst á
sviði vísindastarfsins og eru heil
brigðisvísindi eitt sterkasta fag
svið háskólans á alþjóðlega vísu.“
Nálægð spítalans við háskól
ann er að sögn Jóns Atla lykil
atriði. „Við Íslendingar erum fá
menn þjóð og er mikilvægt að
samnýta aðstöðu og innviði þjóðar
sjúkrahússins og þjóðskólans eins
og framast er unnt. Nálægð Nýs
Landspítala við Háskóla Íslands
skiptir því öllu máli, en starfsemi
spítalans og heilbrigðisvísinda
sviðs Háskóla Íslands er nú dreifð
um alla borg. Bygging nýs spítala
við Hringbraut þjónar því ótvírætt
því markmiði að stuðla að bættri
heilbrigðisþjónustu, tryggja gæði
menntunar og þjálfunar stúdenta
og heilbrigðisstarfsfólks og skapa
aðstæður fyrir öflugt rannsókna
og nýsköpunarstarf á sviði heil
brigðisvísinda. Með öllu þessu
styrkjum við stöðu háskólasjúkra
hússins okkar í harðri samkeppni
við bestu háskólasjúkrahús í heimi
um hæfa nemendur, starfsfólk og
fjármuni.“
Jón Atli segir einnig vert að
hafa það í huga að auk Háskóla Ís
lands og Landspítalans eru í næsta
nágrenni Íslensk erfðagreining,
Háskólinn í Reykjavík og ört vax
andi Vísindagarðar Háskóla Ís
lands þar sem þekkingarfyrirtæki
á sviði heilbrigðisvísinda munu
verða fyrirferðarmikil í framtíð
inni. „Markviss uppbygging þekk
ingarþorps á þessu svæði skapar
samlegðaráhrif og gríðarleg tæki
færi til framtíðar.“
Undirstaða velferðar
Jón Atli segir nauðsynlegt að
tryggja að Landspítalinn og Há
skóli Íslands geti haldið áfram sínu
nána samstarfi og er landfræðileg
nálægð mikilvæg í því samhengi.
„Einnig má benda á að ekki yrði
mögulegt að byggja undir heil
brigðisvísindasvið Háskóla Íslands
á öðrum stað nema með mjög mikl
um viðbótarstuðningi frá stjórn
völdum. Háskólinn og Landspít
alinn eiga það sameiginlegt að
báðar stofnanir hafa verið undir
fjármagnaðar um árabil. Menntun,
heilbrigði og vísindastarf eru hins
vegar undirstaða velferðar og hag
sældar þjóða. Það eru því gríðar
legir hagsmunir í húfi fyrir Ísland
að þessum fjöreggjum okkar verði
ekki teflt í hættu heldur verði for
gangsraðað í þeirra þágu og þeim
tryggðar auknar fjárveitingar.
Þannig munum við geta átt áfram
eitt besta heilbrigðiskerfi í heimi
og jafnframt stutt að Háskóli
Íslands verði áfram meðal 12%
bestu háskóla á alþjóðavísu skv.
mælingu Times Higher Educa
tion World University Rankings.
Við megum engan tíma missa og
það verður að stíga ákveðin skref
í þessu efni strax.“
Landfræðileg nálægð lykilatriði
Uppbygging nýs Landspítala við Hringbraut hefur mikla þýðingu bæði fyrir Háskóla Íslands og Landspítalann að mati Jóns Atla
Benediktssonar, rektors HÍ. Hann segir oft gleymast í umræðunni að spítalinn er ekki aðeins sjúkrastofnun heldur líka kennslustofnun.
HRINgBRAutARVERKEfNIð
24. október 20168
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
9
-5
F
4
0
1
B
0
9
-5
E
0
4
1
B
0
9
-5
C
C
8
1
B
0
9
-5
B
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K