Fréttablaðið - 24.10.2016, Qupperneq 37
Við stofnuðum samtökin árið
2014 með það að markmiði að
afla stuðnings meðal almennings
og stjórnvalda við nauðsynleg-
ar úrbætur á húsakosti Landspít-
ala og kynna áætlanir um endur-
nýjun og viðbætur við húsnæð-
ið,“ útskýrir Anna Stefánsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og formað-
ur stjórnar Landssamtakanna
Spítalinn okkar.
„Við erum óháð samtök, hópur af
fólki alls staðar að af landinu, sem
hefur brennandi áhuga á uppbygg-
ingu Landspítala og á heilbrigðis-
kerfinu heilt yfir. Starfsemin geng-
ur út á fræðslu og við höfum staðið
fyrir þremur málþingum, þau tvö
ár sem samtökin hafa verið starf-
andi,“ segir Anna.
Þriðja málþingið fór fram 6.
október og bar yfirskriftina Spít-
alinn rís en þar fluttu Páll Matthí-
asson, forstjóri Landspítalans,
Guðrún Nordal, forstjóri Árna-
stofnunar, og Gunnar Svavarsson,
framkvæmdastjóri Nýs Landspít-
ala, erindi. „Þar horfðum við til
framtíðar. Við lítum þannig á að
það að byggja nýtt hús undir Land-
spítala sé hluti af sameiningu sem
hófst árið 2000. Þá var lofað að það
yrði byggt og síðan eru liðin 16 ár.
Við sem tókum þátt í vinnunni við
þá sameiningu erum orðin lang-
eygð eftir þessu en nú eru fram-
kvæmdir loks hafnar. Okkar starf
mun þó halda áfram. Við höld-
um úti heimasíðunni www.spital-
innokkar.is þar sem er að finna
margs konar upplýsingar og fróð-
leik.
Í samtökunum eru um eitt þús-
und félagsmenn og af öllu landinu,
bæði fólk innan heilbrigðisþjónust-
unnar og fólk úr öðrum geirum.
Sjálf er Anna hjúkrunarfræðing-
ur og starfaði á Landspítalanum í
fjörutíu ár.
„Þegar ég hætti að starfa hafði
ég tekið þátt í að undirbúa nýbygg-
inguna og þekkti því til verkefn-
isins. Ég þekki einnig aðstæður á
Landspítalanum vel, bæði vinnu-
aðstöðu og aðbúnað sjúklinga. Í
samtökunum eru margir starfs-
menn Landspítalans og fólk sem
hefur einhvern tímann unnið þar.
Þetta fólk þekkir aðstæður vel.
Þá eru einnig í samtökunum fólk
sem hefur legið inni á spítalanum,
aðstandendur sjúklinga og alls
konar fólk sem á það sameiginlegt
að hafa áhuga á að byggja upp gott
heilbrigðiskerfi.“
Landssamtökin Spítalinn okkar
Landssamtökin Spítalinn okkar samanstanda af áhugafólki um góða heilbrigðisþjónustu. Félagsmenn eru af landinu öllu og halda
samtökin úti málþingum og fræðslu um Nýja Landspítalann. Anna Stefánsdóttir er formaður stjórnar samtakanna.
Vorið 2014 ákvað Alþingi með
samþykkt þingsályktunar að
fela ríkisstjórninni að ljúka eins
fljótt og verða má undirbúningi
á endur nýjun og uppbyggingu
Landspítala við Hringbraut í
Reykjavík og hefja framkvæmd-
ir þegar fjármögnun hefði verið
tryggð. Þverpólitísk samstaða
myndaðist á Alþingi um álykt-
unina sem var samþykkt með 56
samhljóða atkvæðum en sjö voru
fjarstaddir. Á grundvelli þess-
arar ályktunar eru m.a. fram-
kvæmdir við uppbyggingu spít-
alans við Hringbraut hafnar og
áætluð verklok eru í lok árs 2023.
Löng saga skipulagsvinnu
Ráðherra málaflokksins var í
vor einnig spurður út í sama mál
og um miðjan september svar-
aði hann skriflegri fyrirspurn
Kristjáns L. Möller, þingmanns
Samfylkingarinnar. Í svari Krist-
jáns Þórs Júlíussonar heilbrigðis-
ráðherra er saga skipulagsvinnu
við Nýjan Landspítala við Hring-
braut rakin. Þar er þess getið að
allt frá staðfestingu aðalskipu-
lags Reykjavíkur 1984-2004 árið
1988 hafi verið gert ráð fyrir
samfelldu stofnanasvæði norð-
an nýrrar Hringbrautar að Bar-
ónsstíg og Eiríksgötu í norðri.
Tveimur árum eftir sameiningu
Sjúkrahúss Reykjavíkur og Land-
spítalans um aldamótin síðustu
hafi svo verið ákveðið að fram-
tíðaruppbygging spítalans yrði
við Hringbraut.
Mikil vinna til einskis
Ráðherra segir að ef horfið verði
frá núverandi verkáætlun og
gera ætti ráð fyrir framtíðar-
uppbyggingu Landspítala ann-
ars staðar þyrfti að taka tillit
til þess að skipulagsferli og út-
færslu byggðar þurfi ávallt að
Frestun á verkefninu hefur
margvíslegar afleiðingar
Landspítalalóðin við gömlu Hringbraut hefur verið hugsuð sem samfellt svæði þjóðarsjúkrahúss frá níunda áratugnum og með færslu
Hringbrautar var það skipulag enn frekar fest í sessi. Samkvæmt núverandi verkáætlun er gert ráð fyrir að uppbyggingu á svæðinu ljúki í
árslok 2023. Yrði spítalanum hins vegar fundinn annar staður myndi það seinka afhendingu hans um tíu til fimmtán ár.
Vandséð er að núver-
andi áratuga skipulagsv-
inna fyrir Landspítala-
byggingu við Hringbraut
kæmi að miklu gagni á
öðrum stað.
Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður stjórnar Landssamtakanna
Spítalinn okkar, þekkir vel aðstæður eftir 40 ára starf á Landspítalanum. mynd/gVA
vinna út frá staðbundnum að-
stæðum á þeim stað sem í hlut á.
Það myndi því þýða breytingar
á svæðisskipulagi, breytingar á
aðalskipulagi viðkomandi sveit-
arfélags og deiliskipulagsgerð.
Einnig þyrfti að vinna greining-
ar og fara í gegnum samráðs-
vinnu við hagsmunaðila og út-
færa tillögugerð. Vandséð sé að
sú skipulagsvinna, sem þegar
liggur fyrir, fyrir Landspítala-
byggingu við Hringbraut kæmi
þar að miklu gagni.
Í svarinu kemur einnig fram
að vandséð er að núverandi ára-
tuga skipulagsvinna fyrir Land-
spítalabyggingu við Hringbraut
kæmi að miklu gagni á öðrum
stað. Samkvæmt mati Fram-
kvæmdasýslu ríkisins og Skipu-
lagsstofnunar má ætla að ef haf-
ist yrði handa við uppbyggingu á
nýjum Landspítala á nýjum stað
mundi það seinka afhendingu
hans um tíu til fimmtán ár.
Áætluð verklok
Eins og áður segir er stefnt að
því að byggingaframkvæmdum
við nýjan spítala ljúki í árslok
2023. Verklok sjúkrahótels eru
áætluð árið 2017, bílastæðahúss
árið 2021 og meðferðarkjarna,
rannsóknarhúss auk frágangs á
lóð árið 2023.
Við erum óháð sam-
tök, hópur af fólki alls
staðar að af landinu,
sem hefur brennandi
áhuga á uppbyggingu
Landspítala og á heil-
brigðiskerfinu heilt yfir.
Starfsemin gengur út á
fræðslu og við höfum
staðið fyrir þremur
málþingum þau tvö ár
sem samtökin hafa verið
starfandi.
Anna Stefánsdóttir
Stefnt er að því að byggingaframkvæmdum við nýjan spítala ljúki í árslok 2023. Hér er mynd af framkvæmdum við sjúkrahótel sem nú eru í fullum gangi.
HringbrAutArVerkeFnið
24. október 2016 9
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
9
-5
0
7
0
1
B
0
9
-4
F
3
4
1
B
0
9
-4
D
F
8
1
B
0
9
-4
C
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K