Fréttablaðið - 24.10.2016, Blaðsíða 39
Dagur segist styðja uppbyggingu
nýs spítala með tengingu við þekk
ingarsamfélagið í Vatnsmýri heils
hugar. „Ég held að okkur hætti
til að vanmeta hvað öflugt sam
spil þekkingarstofnana skiptir
miklu máli til að skapa gott um
hverfi fyrir framsækin fyrirtæki
og skapa spennandi störf fyrir ungt
fólk,“ segir hann. „Landspítalinn er
í mínum huga órjúfanlegur hluti af
spennandi vaxtarsvæði sem byggir
á samstarfi þess fólks sem vinnur
í Háskóla Íslands, Háskólanum í
Reykjavík og á Landspítalanum.
Heilbrigðissviðið er ein af kjölfest
um vísindastarfs svæðisins og þar
með landsins.“
Hann segir staðsetningu spítal
ans hafa verið skoðaða mjög vand
lega. „Landspítalinn er lykilatriði
til að skapa þekkingarsamfélag í
Vatnsmýri sem stenst alþjóðlega
samkeppni. Það er mikið talað
um umferð en staðreyndin er sú
að spítalastarfsemi skapar miklu
minni umferð en ef á sama svæði
væru til dæmis íbúðir eða hótel.
Lóðirnar hafa að stórum hluta
verið fráteknar í áratugi og bíða í
raun eftir að á þeim sé byggt þótt
slíkt sé alltaf vandasamt í þegar
byggðu umhverfi. Lagning nýju
Hringbrautar á sínum tíma voru
breytingar sem ráðist var í vegna
Nýs Landspítala sem segir manni
kannski hvað þetta mál hefur tekið
langan tíma. Forgangsakstur neyð
arbíla var líka nýlega settur upp á
gatnamótunum við Snorrabraut og
Hringbraut þannig að aðkoma og
aðgengi að spítalanum til framtíðar
er orðið mjög gott. Umferðarsköp
un vegna starfseminnar er hins
vegar mun minni en t.d. háskól
anna, vegna þess að starfsemi spít
alans dreifist betur yfir daginn og
skapar ekki nærri eins mikla um
ferð á álagstímum.“
Efasemdir um tima
Þegar Dagur er spurður hvort hann
hafi verið með eða á móti uppbygg
ingu spítalans við Hringbraut,
svarar hann. „Ég held að allir sem
komi að þessu máli hafi leyft sér
að hafa efasemdir um staðsetning
una og umfangið. Það átti líka við
mig. Eftir að hafa skoðað það frá
öllum hliðum árum saman og vegið
málið og metið er ég hins vegar
orðinn mjög eindreginn talsmað
ur þess að byggja við spítalann við
Hringbraut og tel reyndar að það
verkefni megi alls ekki frestast eða
bíða.
Núna er spítalinn á tveimur
stöðum; í Fossvogi og við Hring
braut. Ef við færum svo að byggja
nýjan spítala á þriðja staðnum, þá
þyrfti líka að ráðast í uppbygg
ingu á nýjum Barnaspítala, nýjum
meðferðarkjarna, Kvennadeild og
nýjum innviðum sem þegar eru til
staðar við Hringbraut. Á meðan
á byggingu stæði værum við með
spítala á þremur stöðum í borg
inni til margra ára, því það er ekki
gefið að þetta gerist í einum rykk.
Ef kæmi kröftugur efnahagsleg
ur samdráttur á byggingatíman
um þannig að framkvæmdir stöðv
uðust áður en þeim væri lokið að
fullu, gætum við meira að segja
setið uppi með spítala á þremur
stöðum árum saman. Ég má ekki
til þess hugsa.“
Flugvöllur skiptir ekki máli
Dagur segir tengsl spítalans við
flugvöllinn ekki skipta máli. „Stað
setning spítalans og flugvallarins
eru ekki háðar hvor annarri, sem
sést best á því að ýmsir sem vilja
flytja spítalann á annan stað eru oft
þeir sem vilja alls ekki færa flug
völlinn! Spítalar standa almennt
ekki við flugvelli en það er hins
vegar mikilvægt að tryggja góðar
samgöngur við næsta flugvöll. Því
má heldur en ekki gleyma að gert
er ráð fyrir lendingarpalli fyrir
sjúkraþyrlur á toppi rannsóknar
kjarnans,“ segir hann.
Þrengsli alvarleg öryggisógn
„Lélegt og þröngt húsnæði setur
okkur verulegar skorður í þjónustu
við sjúklinga. Þjóðarsjúkrahúsið
okkar hefur því miður ekki verið
fært um að þjónusta veikt fólk með
fullnægjandi hætti þar sem ekki eru
nægilega mörg rými á spítalanum,“
segir Páll Matthíasson, forstjóri
Landspítalans.
Hann segir aðstreymi sjúklinga
mikið og hafi aukist jafnt og þétt
síðustu ár vegna öldrunar þjóðar
innar, fjölgunar ferðamanna og
langvinnra sjúkdóma.
Gangainnlagnir og yfirlagnir á
bráðalegudeildir hafa verið daglegt
brauð með tilheyrandi óþægindum
fyrir sjúklinga og álagi á starfsfólk.
„Þrengslin eru alvarleg ógn við ör
yggi sjúklinga, t.a.m. með tilliti til
sýkingavarna,“ segir Páll.
9.000 flutningar sjúklinga á ári
Í dag eru fimm bráðamóttökur á
fimm stöðum. Á hverju ári eru um
9.000 flutningar sjúklinga milli
Fossvogs og Hringbrautar. Þá eru
farnar um 25.000 ferðir með sýni
á milli staða auk þess sem marg
ir starfsmenn starfa á báðum stöð
um. Áætlað er að hver flutningur á
sjúklingi tefji útskrift hans um einn
dag.
„Það þýðir að vegna þessa nýt
ast ekki 25 legurými á ári einung
is vegna flutninga. Það er afar erf
itt að horfa upp á slíka sóun þegar
skortur á rýmum er jafn mikill og
raun ber vitni.“
Hjartað í starfseminni
„Nýr meðferðarkjarni verður hjart
að í starfsemi spítalans og jafnframt
stærsta framkvæmdin í heildarupp
byggingu Landspítala við Hring
braut. Þar verða skurðstofur, gjör
gæslur og bráðamóttökur samein
aðar á einn stað auk þess sem þar
verða legudeildir og myndgreining.
Með því að sameina starfsemina á
einn stað munum við getað samein
að vaktir og nýtt tæki og þekkingu
betur.“ segir Páll.
„Ávinningurinn felst auðvitað
fyrst og fremst í auknu öryggi fyrir
sjúklinga en hann er líka fjárhags
legur. KPMG hefur metið árlegan
ávinning vera í kringum 6 prósent
af rekstrarkostnaði spítalans eða
tæpir þrír milljarðar króna. Hús
næðið verður skipulagt út frá starf
semi bráðasjúkrahúss. Við munum
ekki lengur þurfa að aðlaga starf
semina að óhentugu og gömlu hús
næði. Sjúklingurinn er í öndvegi og
þarfir hans hafðar að leiðarljósi í
allri hönnun og skipulagi.“
Aðgerðum frestað vegna
plássleysis á görgæslu
„Undanfarna mánuði höfum við
ítrekað þurft að fresta stórum að
gerðum þar sem gjörgæslur eru
fullar. Álag þar hefur aukist eins og
annars staðar, m.a. vegna mikillar
aukningar erlendra ferðamanna,“
segir Páll.
Þegar álagið er hvað mest hafi
tugum aðgerða verið frestað í viku
hverri, stundum upp undir þriðj
ungi allra fyrirhugaðra aðgerða.
„Ég fullyrði að frestanir á aðgerð
um vegna plássleysis á gjörgæslu
munu heyra sögunni til þegar bygg
ingu nýs meðferðarkjarna verður
lokið. Í dag höfum við samtals 14
gjörgæslurými á tveimur stöðum;
Fossvogi og Hringbraut. Í nýjum
meðferðarkjarna verða 24 fullkom
in einbýli sem er aukning um 70 pró
sent frá núverandi ástandi auk þess
sem aðbúnaður verður miklu betri.
Öll rýmin verða á einum stað þann
ig að nýting á starfsfólki og búnaði
verður mikið betri.
Frestun á aðgerðum vegna pláss
leysis er því miður aðeins eitt af
fjölmörgum dæmum um þá öryggis
ógn og þjónustubrest sem er sam
fara afgömlum, alltof litlum og allt
of dreifðum húsum Landspítala.
Uppbyggingu við Hringbraut sem
nú er hafin mun ekki ljúka degi of
snemma. Það er einfaldlega öryggis
mál þjóðarinnar að ljúka henni sem
fyrst.“
Það er mikið talað
um umferð en
staðreyndin er sú að
spítalastarfsemi skapar
miklu minni umferð en ef
á sama svæði væru til
dæmis íbúðir eða hótel.
Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og læknir.
Styður nýjan spítala við Hringbraut
Dagur B. Eggertsson, læknir og borgarstjóri, styður heilshugar byggingu nýs spítala við Hringbraut. Hann segir að Landspítalinn sé
lykilatriði til að skapa þekkingarsamfélag í Vatnsmýri. Reykjavíkurborg hefur unnið að skipulagi svæðisins lengi.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir knýjandi þörf á nýju húsnæði undir
starfsemi Landspítala. MynD/LSH
Uppbygging Landspítala brýnt
öryggismál sem ekki má bíða
Landspítali er í dag á 17 stöðum í höfuðborginni í 100 húsum en rúmlega helmingur þeirra var reistur fyrir árið 1970. Húsin svara ekki
nútímakröfum og viðhald þeirra hefur árum saman verið ófullnægjandi. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir þörfina fyrir nýtt
húsnæði undir starfsemi spítalans knýjandi og beinlínis öryggismál. Við megum engan tíma missa.
Ávinningurinn
felst í auknu
öryggi fyrir sjúklinga.
HRingBRaUtaRvERkEfnið
24. október 2016 11
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
9
-3
C
B
0
1
B
0
9
-3
B
7
4
1
B
0
9
-3
A
3
8
1
B
0
9
-3
8
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K