Fréttablaðið - 24.10.2016, Qupperneq 44
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elínborg Jóhanna
Bjarnadóttir
fv. eigandi hannyrðaverslunarinnar
Mólý í Kópavogi,
Ársölum 3, Kópavogi, áður
Hlíðarhvammi 10, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 5. október á hjúkrunarheimilinu Eir.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 25. október klukkan 15.
Margrét I. Kjartansdóttir Sigmundur Einarsson
Ólafur Kjartansson Nanna Bergþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir samúð, hlýhug
og vináttu vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Þorleifs Stefáns
Guðmundssonar
löggilts fasteignasala og líffræðings,
Jakaseli 29, Reykjavík.
Aldrei einn – You’ll Never Walk Alone.
Ingibjörg Sigurðardóttir
Sigurður James Þorleifsson Ólöf Birna Margrétardóttir
Elín Þorleifsdóttir Pétur Rúnar Sverrisson
Kári Þorleifsson
Bjarki Þorleifsson
Bjartur Þorleifsson
barnabörn og aðrir ástvinir.
Þann 24. október 1975 fóru stærstu
fjöldamótmæli Íslandssögunnar fram
þegar konur um allt land lögðu niður
störf um miðjan dag til að mótmæla
kynbundnum launamun. Talið er að
25 þúsund konur hafi hópast saman í
miðbæ Reykjavíkur á samstöðufundi
til að mótmæla því að laun kvenna
væru umtalsvert lægri en laun karla.
Tíu árum síðar, þegar leikurinn
var endurtekinn, söfnuðust saman
átján þúsund manns og sýndu sam-
stöðu á Lækjartorgi en í millitíðinni
hafði Kvennalistinn verið stofnaður
og Vigdís Finnbogadóttir hlotið kjör
sem forseti, fyrst kvenna í heiminum.
Í dag hefur aftur verið boðað til
kvennafrídags eða kvennaverk-
falls undir slagorðinu Kjarajafnrétti
strax. Ný launakönnun VR sýnir að
óútskýrður launamunur kynjanna
er tíu prósent. Samkvæmt frétt Hag-
stofunnar frá 2014 var óleiðréttur
launamunur kynjanna á Íslandi 18,3
prósent og hafði minnkað um rúmt
prósent frá árinu áður.
Konur eru hvattar til að leggja niður
vinnu klukkan 14.38 í dag og samein-
ast á Austurvelli á baráttufundi. Leik-
skólar borgarinnar hafa sömuleiðis
hvatt foreldra til að sækja börn sín svo
leikskólastarfsmenn geti tekið þátt í
viðburðinum.
Í dagblaðinu Tímanum frá 26. októ-
ber 1975 má finna myndaþátt af
feðrum sem neyddust til að taka börn
sín með í vinnuna þegar konur lögðu
niður störf. Fyrirsögn greinarinnar er
„Almenn þátttaka í dömufríinu“ en
hvergi er minnst á ástæður þess að
konur lögðu niður störf. Þar kemur
fram að bankastjórar Landsbank-
ans hafi neyðst til að sjá sjálfir um
afgreiðslustörf þegar konurnar gengu
út. Þá hafi karlkyns starfsmenn Lands-
bankans við Laugaveg 77 gripið til
þess að veifa hvítum fána, til tákns um
uppgjöf, þegar konurnar lögðu niður
störf þar sem konur skipuðu mikinn
meirihluta starfsliðsins.
Hjá Ríkissjónvarpinu þurftu karl-
kyns starfsmenn að passa börnin sem
fylgdu feðrum sínum í vinnuna og það
var enginn annar en Ómar Ragnars-
son skemmtikraftur sem hafði ofan af
fyrir börnunum. snaeros@frettabladid.is
Konur leggja niður störf
og krefjast jafnréttis
Í dag er liðið 41 ár síðan íslenskar konur tóku höndum saman og lögðu niður störf til að
krefjast launajafnréttis á við karla. Í dag verður leikurinn endurtekinn en konur um allt
land hafa verið hvattar til að leggja niður störf klukkan 14.38 þegar þær hafa unnið fyrir
kaupinu sínu. Meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3 prósent af atvinnutekjum karla.
Kvennafrídagurinn 24. október 1975 er líklega fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar. Launamunur kynjanna hefur enn ekki verið jafnaður
þótt dregið hafi saman á undanförnum árum. Mynd/Loftur Ásgeirsson
talið er að 25 þúsund konur hafi komið
saman í miðbæ reykjavíkur á Kvennafrídeg-
inum árið 1975. Mynd/Loftur Ásgeirsson
dagskráin á útifundi kvennafrídagsins
1975 var ekki af verri endanum. guðrún Á.
símonardóttir óperusöngkona stýrði fjölda-
söng og sagði að ekki mætti skilja kvennafrí-
daginn sem svo að konum væri bannað að
vera góðar við karla. Þá fluttu þingkonurnar
sigurlaug Bjarnadóttir og svava Jakobsdóttir
ræður. Mynd/BJörgvin PÁLsson
Sameinuðu þjóðirnar (SÞ)
voru stofnaðar á þessum
degi árið 1945. Samtökin
eru alþjóðasamtök sem öll
viðurkennd sjálfstæð ríki
eiga aðild að, nema Vatík-
anið, alls 192 ríki. Vatík-
anið hefur þó varanlegan
áheyrnarfulltrúa.
Höfuðstöðvar SÞ eru í
New York en samtökin
skiptast í nokkrar stofn-
anir. Þær eru allsherjar-
þingið, öryggisráðið, gæslu-
verndarráðið, efnahags- og
félagsmálaráðið, aðalskrif-
stofan og alþjóðadóm-
stóllinn. Að auki tilheyra
samtökunum fjölmargar
undirstofnanir, svo sem
UNICEF og WHO.
Valdamesti embættis-
maður Sameinuðu
þjóðanna er aðalritarinn.
Núverandi aðalritari er Ban
Ki-moon frá Suður-Kóreu.
Hann tók við embættinu
1. janúar 2007.
Þ ETTA g E R ð I ST 2 4 . O KTÓ B E R 1 9 4 5 :
Sameinuðu þjóðirnar
voru stofnaðar
2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r16 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
9
-3
2
D
0
1
B
0
9
-3
1
9
4
1
B
0
9
-3
0
5
8
1
B
0
9
-2
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K