Fréttablaðið - 10.09.2016, Blaðsíða 49
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra
fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi.
Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum sem búa yfir
þekkingu og reynslu sem og nýútskrifuðum til starfa á lungnadeild.
Deildin er bráðadeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungna
deildin á landinu. Þar fer fram greining og meðferð á sjúklingum með
bráða og langvinna lungnasjúkdóma sem og svefnháða öndunar
truflana.
Á deildinni starfa um 70 manns í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi
er ríkjandi og tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við tökum vel á móti
nýju fólki og veitum góða aðlögun.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
SJÚKRALIÐI
Lungnadeild
LANDSPÍTALI ... ALLRA HAGUR!
Við sækjumst eftir faglegum hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum til
starfa á meltingar og nýrnadeild 13E við Hringbraut. Deildin er 19 rúma
legudeild og þjónar sjúklingum með bráða og langvinna sjúkdóma í
meltingarfærum og nýrum. Lögð er áhersla á að skapa uppbyggjandi
starfsumhverfi og veita einstaklingshæfða hjúkrun.
Á deildinni starfa um 60 manns í þverfaglegu teymi. Mjög góður
starfs andi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við
vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri og fögnum nýjum
hugmyndum.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
SJÚKRALIÐI
Meltingar- og nýrnadeild
Vegna skipulagsbreytinga óskar Landspítali eftir að ráða starfsfólk
í býtibúr á Landakoti. Við sækjumst eftir liðsmönnum sem hafa góða
þjónustulund, eru stundvísir og liprir í samskiptum.
Á Landakoti eru endurhæfingardeildir fyrir aldraða þar sem megin
markmiðið er að auka lífsgæði og færni til athafna daglegs lífs. Lögð er
áhersla á góða umönnun og umhyggju í rólegu umhverfi þar sem
þjónusta við sjúklinga og fjölskyldu byggir á þekkingu og fjölfaglegri
nálgun.
STARFSFÓLK Í BÝTIBÚR
Landakot
Við óskum eftir stuðningsfulltrúa/ráðgjafa sem hefur áhuga á að
starfa með ungu fólki. Á sérhæfðri endurhæfingargeðdeild (SEG)
Kleppi starfa um 28 manns og ríkir þar einstaklega góður starfsandi
sem einkennist af vinnugleði, metnaði, skipulagi og sveigjanleika og
ótal tækifæri eru til að vaxa í starfi. Vaktabyrðin er hófleg og því
óhætt að segja að starfsumhverfið sé fjölskylduvænt.
Deildin er 1011 rúma legudeild og sinnir meðferð ungmenna á
aldrinum 1830 ára sem flest eru greind með geðrofssjúkdóma og
fíknivanda. Rík áhersla er lögð á að styðja vel nánustu aðstandendur.
Markmið endurhæfingar er að endurhæfa skjólstæðingana aftur út í
samfélagið. Mikið er lagt upp úr því að virkja sjúklingana á allan
mögulegan hátt á deildinni, úti í samfélaginu og í samstarfi við
iðjuþjálfun og Batamiðstöðina á Kleppi.
RÁÐGJAFI/ STUÐNINGSFULLTRÚI
Sérhæfð endurhæfingargeðdeild
Við óskum eftir metnaðarfullum og faglegum sjúkraliðum með
framúrskarandi samskiptahæfni til starfa á blóðlækningadeild.
Deildin er 14 rúma legudeild þar sem fer fram sjúkdómsgreining
og krabbameinsmeðferð sjúklinga með blóðsjúkdóma auk
stuðningsmeðferðar í tengslum við aukaverkanir.
Á deildinni starfa um 50 manns og leggur starfsfólk deildarinnar
áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Góður
starfsandi er ríkjandi og tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við tökum
vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
SJÚKRALIÐI
Blóðlækningadeild
Ertu hugmyndaríkur og tilbúinn að takast á við ný og krefjandi verkefni?
Við leitum eftir jákvæðum og metnaðarfullum lífeindafræðingi í krefjandi
starf. Um er að ræða nýtt starf í tengslum við nýjan hringhraðal og
framleiðslu geislavirkra efna fyrir jáeindaskanna og verður viðkomandi
mikilvægur hlekkur í öflugu starfi á þessu sviði.
Röntgendeild Landspítala sinnir læknisfræðilegri myndgreiningu
og geislavörnum á spítalanum.
LÍFEINDAFRÆÐINGUR
Röntgendeild
Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi með framúrskarandi samskipta
og samstarfshæfileika í starf deildarstjóra á móttökugeðdeild 32A. Á
deildinni starfa um 30 manns. Hjúkrunardeildarstjórinn er yfirmaður
hjúkrunar á deildinni, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um
hjúkrunarfræðileg málefni innan deildarinnar.
Á deildinni eru 17 rými fyrir sjúklinga sem þurfa greiningu og meðferð
vegna geðrænna vandamála. Sérhæfing deildar er m.a. meðferð vegna
átröskunar. Lögð er áhersla á góða samvinnu og endurskoðun á störfum
og verkferlum á deildinni með hugmyndafræði geðhjúkrunar og
bata miðrar þjónustu að leiðarljósi.
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
Geðsvið
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á HEIMASÍÐU LANDSPÍTALA;
WWW.LANDSPITALI.IS/MANNAUDUR OG
STARFATORGI; WWW.STARFATORG.IS
1
0
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
7
-F
9
9
0
1
A
8
7
-F
8
5
4
1
A
8
7
-F
7
1
8
1
A
8
7
-F
5
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
9
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K