Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.09.2016, Qupperneq 63

Fréttablaðið - 10.09.2016, Qupperneq 63
Kristmann hefur aukið innflutn- ing og rekur nú öfluga verslun samhliða því að veita góða skerpi- þjónustu. „Ég hef breytt aðeins um áherslu og býð nú upp á yfir- gripsmikið úrval af hjólsagarblöð- um í mörgum gerðum og stærðum, sagarblöð, handfræsitennur, band- sagarblöð, tifsagarblöð, formtenn- ur, dósabora, þrepabora, haka og margt, margt fleira. Allt á ein- staklega góðu verði,“ segir hann. „Einnig bjóðum við alhliða skerp- ingar.“ RótgRóið fyRiRtæki Skerping ehf. er rótgróið fyrir- tæki sem stendur við Smiðju veg 11 í Kópavogi. Þar hefur Krist- mann staðið vaktina í rúm þrjá- tíu ár. „Ég er bæði lærður húsa- smiður og húsgagnasmiður og tók meistarann fyrir fjörutíu árum, eins og menn gerðu þá, með fullri vinnu,“ segir Kristmann, sem stofnaði Skerpingu árið 1982. „Ég hef alltaf haft gaman af málm- smíði og þar sem skerping á blöð- um er þjónusta við þær iðngrein- ar, húsgagna- og húsasmíði, sem ég er menntaður í, gat ég sam- einað þessi áhugamál mín,“ segir hann. Kristmann byrjaði smátt en færði svo út kvíarnar. „Ég leigði 40 fm skúr fyrst í Skeifunni þar sem Víðir er í dag og byrjaði með eina vél og flutti svo í Kópavoginn sjö árum seinna.“ Skerping er í dag rekin í 240 fm húsnæði og helstu verkefnin felast í að þjónusta tré- og málmiðnaðinn með skerpingu á blöðum úr vélum. Í vinnslusalnum má finna yfir 20 vélar. „Í sjálfvirkri segulplanvél skerpum við allt að þrjú hund- ruð og fimmtán sentimetra lang- ar tennur og svo er ég að smíða alls konar tennur fyrir tréiðnað og við sinnum ýmsum verkefnum sem koma inn á borð til okkar,“ segir Kristmann og bætir við að tennur frá honum hafi verið not- aðar til að gera skrautlista í Iðnó og Ráðhúsið svo dæmi séu tekin. Hann bætir við að nokkurs mis- skilnings gæti þegar fyrirtækið ber á góma. „Fólk virðist halda að við séum eingöngu í því að brýna garðklippur og handverkfæri og eitthvað slíkt en það er misskiln- ingur. Fyrirtækið fæst við svo miklu meira.“ Stærsti hluti starf- seminnar snýst um að brýna og skerpa enda er fyrirtækið í föst- um viðskiptum við nokkra stóra viðskiptavini. „Við brýnum blöð fyrir ALCOA til dæmis og erum eina fyrir- tækið á landinu með vél sem getur brýnt svo stór blöð, en þau eru upp í 110 sentimetra í þver- mál. Svo erum við með vélar sem brýna blöð allt niður í sjö senti- metra svo það er mikil breidd þarna á milli. Ég er búinn að vera í þessu hálfa ævina og veit alveg hvað ég er að gera þegar ég vel inn þessa vöru,“ segir Kristmann. Hann hefur einnig látið fram- leiða fyrir sig blöð erlendis, sem byggja á reynslu hans og þekk- ingu á faginu. Hann er þó hóg- vær þegar það ber á góma. „Þetta eru engin geimvísindi. Ef maður þarf að langskera efni þá er 20 gráðu halli, ef það á að búta niður efni er hallinn 12 gráð- ur, ef það eru álblöð þá er nega- tífur halli,“ segir Kristmann og bætir því við að hann þaulprófi hverja vöru áður en hún fer í sölu í búðinni. „Ég prófa þetta allt og það er enginn gæðamunur, bara verðmunur.“ til sölu Kristmann hefur hug á því að selja fyrirtækið. „Ég er kominn á þann aldur að mig langar að einbeita mér að áhugamálunum mínum og barnabörnunum,“ segir hann, en bætir við að hann muni auðvitað sakna þess að sinna fyrir tækinu. „Það er samt gaman að skilja við fyrirtækið í vexti og blóma og vonandi að einhver finni sig í því að taka við keflinu.“ Kristmann Þór Einarsson, eigandi Skerpingar í Kópavogi, heldur hér á sagarblaði en hann flytur inn mikið magn slíkra blaða af öllum stærðum og gerðum. MYND/GVA Anuphoung Khandong er frá Taílandi en hefur starfað hjá Skerpingu í 15 ár. MYND/GVA Dósaborar sem koma í handhægum töskum og fást í Skerpingu. MYND/GVA skeRping vex hRatt og dafnaR SKERPING EHF KYNNIR Kristmann Þór Einarsson, eigandi Skerpingar í Kópavogi, byrjaði í skúr í Skeifunni en rekur nú umsvifamikið fyrirtæki sem sérhæfir sig meðal annars í innflutningi á sagarblöðum, handfræsitönnum og bandsagarblöðum auk þess að veita sérhæfða og persónulega þjónustu. Fyrirtækið hefur vaxið mikið á undanförnum árum. F ó l k ∙ k y n n i n g a r b l a ð ∙ X X X X X X X X 7l a U g a r D a g U r 1 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F ó l k ∙ k y n i n g a r b l a ð ∙ h e l g i n 1 0 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :2 1 F B 0 9 6 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 7 -F 4 A 0 1 A 8 7 -F 3 6 4 1 A 8 7 -F 2 2 8 1 A 8 7 -F 0 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.