Fréttablaðið - 16.07.2016, Side 8
sem höfðu umkringt bifreiðina, en
hitti engan. Svo féll hann fyrir byssu-
skotum frá lögreglunni, sem skaut
tugum skota á bifreiðina.
„Hryllingur, hryllingur hefur
enn á ný lostið Frakkland,“ sagði
Hollande forseti í ávarpi sínu til
þjóðarinnar í fyrrinótt, fáeinum
klukkustundum eftir árásina. Hann
sagði engan vafa leika á því að þetta
væri hryðjuverk, runnið undan
rifjum íslamista, og rifjaði upp árás-
irnar tvær í París á síðasta ári, fyrst í
janúar og svo aftur í nóvember.
Hann sagði Frakkland greinilega
helsta skotmark íslamista í Evrópu.
Frakkar muni bregðast við með því
að auka enn frekar hernaðarumsvif
sín í Sýrlandi og Írak.
Neyðarástandið í Frakklandi, sem
stjórnvöld lýstu yfir eftir árásina í
París í nóvember og átti að falla úr
gildi innan skamms hefur nú verið
framlengt um að minnsta kosti þrjá
mánuði.
Nokkur mannskæð-
ustu hryðjuverkin
síðan í byrjun árs 2015
7. - 9. janúar, 2015
16 manns myrtir í árásum í París,
flestir á ritstjórnarskrifstofum
skoptímaritsins Charlie Hebdo.
10. október, 2015
103 myrtir í sjálfsvígsárás á friðar-
samkomu í Ankara, Tyrklandi.
13. nóvember, 2015
130 manns myrtir í sjálfsvígsárás-
um og skotárásum á sex stöðum
í París.
22. mars, 2016
32 myrtir í sjálfsvígsárásum
þriggja manna á flugvelli og
lestarstöð í Brussel.
12. júní, 2016
49 myrtir í skotárás á skemmti-
stað hinsegin fólks í Orlando í
Flórída, Bandaríkjunum.
29. júní, 2016
41 myrtur í sjálfsvígs- og skotárás
á Ataturk-flugvellinum í Istanbúl,
Tyrklandi.
2. júlí, 2016
250 manns myrtir í sprengju-
árásum í Bagdad.
Frakkland „Tímarnir hafa breyst og
nú þarf Frakkland að læra að lifa með
hryðjuverkum,“ sagði Manuel Valls
forsætisráðherra í gær. Bæði hann og
François Hollande forseti fullyrtu að
árásin í Nice væri hryðjuverk.
Engar upplýsingar höfðu þó verið
birtar um tengsl árásarmannsins við
hryðjuverkahópa né skoðanir hans
í þjóðfélagsmálum. Engin hryðju-
verkasamtök höfðu heldur lýst yfir
ábyrgð á árásinni, en margir stuðn-
ingsmenn þeirra hafa samt fagnað
henni á samfélagsmiðlum.
Árásarmanninum, hinum 31 árs
gamla Mohammed Lahouaiej Bou-
hlel, tókst að drepa 84 vegfarendur
með því að aka flutningabifreið á
fjölda fólks á strandgötu í Nice, þar
sem mannfjöldinn hafði verið að
fylgjast með flugeldasýningu í tilefni
þjóðhátíðardags Frakklands.
Sorg og reiði
„Hér er bara mikil sorg og fólk er í
sjokki. Fólk er að vinna úr þessu og
athuga með vini sína, finna út hvort
allir séu heilir,“ segir Berta Guðjóns,
íslensk kona sem búið hefur í Nice í
13 ár.
Sjálf var hún heima hjá sér þegar
árásin var gerð og enginn úr hennar
vinahópi skaddaðist. „Við erum þó
búin að heyra að einn vinur okkar
missti systur sína og maðurinn
hennar er á sjúkrahúsi.
Fólk er líka reitt,“ segir hún og
nefnir vinkonu sína, skoska, sem
varð vitni að atburðunum. Hún hafi
sagt öryggisráðstafanir hafa verið
afskaplega litlar. Fólk skilji ekkert í
því af hverju viðbúnaðurinn hafi ekki
verið meiri.
„Hún bað mig um að koma með sér
að horfa á flugeldasýninguna, en ég
mátti ekki vera að því að fara.“
Þekktur fyrir heimilisofbeldi
Bouhlel var franskur ríkisborgari
ættaður frá Túnis, þriggja barna faðir
og bjó í Abattoir-hverfi. Hann hafði
komist í kynni við lögregluna vegna
heimilisofbeldis og annarra afbrota
en enginn grunur hafði vaknað um
að hann væri líklegur til að fremja
hryðjuverk.
Hann er sagður hafa leigt flutn-
ingabílinn tveimur dögum fyrir
voðaverkið. Hann var með skamm-
byssu og í bílnum fundust eftirlík-
ingar af skotvopnum og sprengjum.
Nágrannar segja hann hafa verið
frekar óhugnanlegan í framkomu.
Hann hafi hangið mikið á knæpu þar
í götunni, þar sem hann bæði drakk
og stundaði fjárhættuspil.
„Hann svaraði aldrei þegar við
yrtum á hann eða köstuðum á hann
kveðju, hann bara starði á okkur ill-
úðlega,“ hefur breska dagblaðið The
Guardian eftir einum þeirra.
„Það eina sem ég vissi er að hann
átti í vandræðum með konuna sína,
en við sáum hana aldrei og krakkana
þeirra ekki heldur.“
Fimmtíu í lífshættu
Síðdegis í gær voru fimmtíu manns
enn í lífshættu, til viðbótar þeim 84
sem létu strax lífið.
Meðal þeirra sem létust var kona
að nafni Fatima Charrihi. Fjölmiðlar
hafa eftir syni hennar að hún hafi
verið ein þeirra fyrstu sem urðu fyrir
flutningabílnum: „Það eina sem ég
get sagt er að hún var með slæðu,
lagði stund á íslam og gerði það með
réttum hætti. Það var raunveruleg
íslamstrú, ekki sú útgáfa sem hryðju-
verkamenn stunda.“
Lögreglunni tókst ekki að stöðva
bifreiðina fyrr en maður nokkur
tók upp á því að stökkva framan á
bílinn. Ökumaðurinn stöðvaði þá
bílinn og reyndi að skjóta manninn.
Hann skaut einnig á lögreglumenn
Frakkar í uppnámi eftir voðaverk í Nice
Rúmlega þrítugur sendibílstjóri myrti að minnsta kosti 84 í Nice að kvöldi 14. júlí, þegar hátíðarhöldum var að ljúka. Franskir ráða-
menn segja árásina greinilega hafa verið hryðjuverk. Íslensk kona í Nice segir að andrúmsloftið í borginni einkennist af sorg og reiði.
Hryllingur, hryll-
ingur hefur enn á ný
lostið Frakkland.
François Hollande,
forseti Frakklands
Hann svaraði alrei
þegar við yrtum á
hann eða köstuðum á hann
kveðju, hann bara starði á
okkur illúðlega.
Ónafngreindur nágranni
fjöldamorðingjans
Hér er bara mikil
sorg og fólk er í
sjokki. Fólk er að vinna úr
þessu og athuga með vini
sína, finna út hvort allir séu
heilir.
Berta Guðjóns, búsett í Nice
Over 80 people have been killed in the French city of Nice after a terrorist
ploughed a truck into a large crowd during Bastille Day celebrations
Bastille Day terror attack in Nice
MEDITERRANEAN
SEA
Site of
fireworks display
Hôtel
de Ville
PR
OM
ENA
DE D
ES AN
GLAIS
N I C E
Palais de la
Méditerranée
OLD
TOWN
Negresco
Musée Place
Masséna
Harbour
Thursday, 23:00 local time (21:00 GMT):
Large lorry turns onto famed Promenade
des Anglais, slamming into spectators
watching fireworks
Driver shot dead after driving truck 2km through
crowd. Guns and grenades found inside lorry
250m
155 miles
parís
Nice
FRAKKLAND
Flugeldasýning
Ráðhúsið
ADE
DES
ANG
LAIS
Nic
l is de la
Gamla
borgin
Negresco
Hótelið
a sena-
safnið
M ssena-
torgið
Barnaspítali
Höfnin
Lestarstöð
250m
155 mílur
✿ Fjöldamorð á Bastilludeginum
Flutningabílstjóri varð að minnsta kosti 84 manns að bana í Nice þegar hann ók á fjölda fólks í
fyrrakvöld þegar hátíðarhöldum var að ljúka í tilefni af Bastilludeginum, þjóðhátíðardegi Frakka.
Bifreiðin stöðvuð og ökumaðurinn
drepinn eftir að hann hafði ekið 1,8
kílómetra og myrt að minnsta kosti
84 og sært tugi.
Fimmtudagur, kl. 23.00 að staðartíma
Stórum flutningabíl ekið inn á strandgöt-
una Promenade des Anglais, þar sem fólk
var að fylgjast með flugeldasýningu.
Fréttablaðið/Graphic News
Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að vettvangi voðaverksins til að minnast þeirra sem létust. NordicphotoS/AFp
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
1 6 . j ú l í 2 0 1 6 l a U G a r d a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
1
6
-0
7
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
0
4
-F
0
3
0
1
A
0
4
-E
E
F
4
1
A
0
4
-E
D
B
8
1
A
0
4
-E
C
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K