Fréttablaðið - 16.07.2016, Page 50

Fréttablaðið - 16.07.2016, Page 50
AfgAngsnAmmi komið í not Á góðum sumardögum er hress- andi að fá sér heima gerðan frostpinna sem dýft er í pro- secco eða annan freyðandi drykk. Uppskrift in miðast við 8 pinna. frostpinni með hindberjum 150 g sykur 1 dl vatn 500 g hindber 1 msk. sítrónusafi Sjóðið saman vatn og sykur. Látið sykurblönduna malla í 5 mínút- ur. Kælið. Setjið hindber, sítrónu- safa og sykurlöginn í matvinnslu- vél. Látið vökvann í gegn um síu ef þið viljið losna við fræin. Setjið í íspinna form og síðan í frysti. frostpinni með mAngó 200 g sykur 3 dl vatn 2 þroskaðir mango 2 límónur 4 ástríðuávextir Sjóðið saman vatn og sykur og látið malla áfram í 5 mínútur. Kælið. Hreinsið mangó og setjið í matvinnsluvél ásamt límónusafa og sykurlegi. Þá er ástríðuávexti bætt saman við og allt hrært í smástund. Fræin í ástríðuávextin- um eiga ekki að kremjast. Setjið í íspinnaform og síðan í frysti. Berið pinnana fram í glösum með freyðivíni. frostpinni í freyðivíni Á R N A S Y N IR Á R N A S Y N IR Einstakt bragð sem þú verður að prófa! Síríus súkkulaði hefur fylgt íslensku þjóðinni í gegnum súrt og sætt - og auðvitað sérstaklega sætt - síðan 1933. Þannig hafa Íslendingar notið Síríus súkkulaðis lengur en þeir hafa notið sjálfstæðis og gripið til þess við hátíðleg tilefni jafnt og hversdagsleg. Síríus súkkulaði hefur því átt þátt í að sameina ólíkar kynslóðir og skapa ljúfar minningar sem lifa með þjóðinni. Síríus Pralín súkkulaði er einstaklega ljúf viðbót við Síríus súkkulaði línuna. Þegar létt og lungamjúkt súkkulaðið blandast gómsætri myntu fyllingu verður til einstök bragðupplifun sem þú munt njóta í hverjum einasta bita. Því Síríus súkkulaði er svo gott. ... svo gott Afgangssælgæti gæti hljómað fjarstæðukennt en þó getur komið upp sú staða að inni í skáp safn- ist upp haugur af nammi. Þá gæti verið gaman að gera tilraunir. Af- hverju ekki að brytja afgangs- súkkulaði út í pönnukökudeigið í bland við bláberin á laugardags- morgni til dæmis? djúpsteiktAr beikon/ súkkulAðirúllur Kaupið tilbúið smjördeig, fletjið ú tog skerið í heppilega ferninga. Leggið beikonsneið í miðjuna og svo slatta af súkkulaði, til dæmis snickers eða mars en í raun ætti hvaða súkkulaði sem er að duga. Vefjið svo deiginu saman í rúllu og steikið í olíu í djúpri pönnu eða í djúpsteikingarpotti. betrumbætt brúnhildur Einhverjum gæti þótt svardökk og seig brownie alveg nóg af því góða en hana má þó bæta, með nammi. Súkkulaði, lakkrís, og karamellur er hægt að skera niður og bæta út í deigið. Og ef sætutönn in hefur ekki fengið nóg er hægt að strá sykurpúðum yfir áður en kakan fer í ofninn. brjóstsykurssnúðAr Dísætir kanilsnúðar eru yfirleitt fylltir með kanilsykri og smjöri. Það má vel nýta hverskonar brjóst- sykurmola og sleikjóa annaðhvort í staðinn fyrir kanilsykurinn eða með. Setjið molana og sleikjóana í plastpoka, vefjið viskustykki utan um og myljið með buffhamri. Stráið svo yfir deigið áður en því er rúllað upp og skorið niður og bakað. Piparbrjóstsykur gæti verið áhugaverð tilraun. Nammidagur Kynningarblað 16. júlí 20164 1 6 -0 7 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 0 4 -E 1 6 0 1 A 0 4 -E 0 2 4 1 A 0 4 -D E E 8 1 A 0 4 -D D A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.