Víkurfréttir - 19.12.1985, Síða 12
JÓLABLAÐ 1985
VÍKUR-fréttir
l-X-2
l-X-2
„Oldham
er mitt lið
tt
Körfubolti, 1. deild:
Jafn leikur í Grindavík
Sá sem tippar þessa vikuna er enginn annar en hinn fjall-
hressi, ungi og upprennandi knattspyrnukappi, Einar Þór
Kristjánsson. Hann hafði þetta að segja um deildina:
„Oldham hefur alltaf verið mitt lið. Ég dvaldst þar í
æsku og öðlaðist mest alla mína knattspyrnukunnáttu hjá
þeim. Ég get að sjálfsögðu ekki spáð þeim sigri í 1. deild-
inni, því þeir leika í annarri deild. Strákarnir í Stoke eru
allir ungir og upprennandi og ég býst við að þeir verði
komnir á toppinn ’87“
Ertu mikill tippari?
„Já, það er óhætt að fullyrða það. Ég er að meðaltali
með 6 gula á viku. Mesta sem ég hef eytt í seðla er sennilega
i kringum 10.000 kr., en það var nú fyrir myntbreyting-
una“.
Hvað hefurðu verið með best?
„Ég er nú yfirleitt með tvo rétta en næ þó stundum
þremur. Núna ætla ég mér aftur á móti meira og stefni
beint á Wembley“.
Hver sýnist þér mesti spennuleikur þessarar umferðar?
„Það er tvímælalaust leikur Arsenal og Man. Utd.
Arsenal er topplið og þeir eiga eftir að knýja fram sigur
gegn United“.
Meira varð ekki fengið upp úr Einari, enda maður alveg
dæmalaust hlaðinn verkefnum. Það þarf jú að skúra og
skreyta jólatréð. Við kveðjum í bili og bjóðum gleðileg jól
og farsælt komandi ....
Gunnar Már með 5 rétta
Gunnar Már hafði ekki heppnina með sér á síðasta seðli,
náði aðeins 5 réttum. En hvað ætlar Oldham-áhangandinn
að gera?
Heildarspá Einars:
Leikir 21. desember:
Birmingham - Chelsea .. 2
Coventry - Everton .... 2
Liverpool - Newcastle .. I
Luton - West Ham .... 2
Man. Utd. - Arsenal ... 2
Sheff. Wed. - Man. City I
Tottenham - Ipswich ... I
Charlton - Grimsby ... X
Fulham - Middlesboro X
Huddersfield - Oldham . 2
Stoke - Barnsley ....... 1
Wimbledon - Sheff. Utd. 2
UMFG - Reynir 58:55
UMFG sigraði nágranna
sína úr Sandgerði í sl. viku,
er liðin áttust við í Iþrótta-
húsi Grindavíkur, með
58:55. Var þetta mjög
spennandi leikur og gátu
stigin endað á báða bóga.
Staðan í leikhléi var 26:24
fyrir Grindavík.
Leikurinn var í járnum
allan tímann og var jafnt á
stigum mest allan fyrri hálf-
leikinn. Um miðjan hálf-
leikinn náðu Grindvíkingar
góðum kafla, en Reynir lét
þá ekki fara of langt frá sér
og minnkuðu muninn í tvö
stig fyrir leikhlé.
í seinni hálfleik náðu
Reynismenn fljótlega for-
ystunni og héldu henni
mest allan seinni hálfleik-
inn og virtist sem þeir
ætluðu að sigra í þessum
leik. En Grindvíkingar gáf-
ust ekki upp og náðu að
komast yfir rétt fyrir leiks-
lok og sigruðu með naum-
indum. Þetta var sannkall-
aður spennuleikur og voru
úrslitin ekki ráðin fyrr en
flautað var til leiksloka.
Eldur frá
rafmagni
Síðdegis sl. sunnudag var
Slökkvilið Brunavarna
Suðurnesja kvatt út að
vörulager íslensks Mark-
aðar að Iðavöllum 14b í
Keflavík. Hafði eldur
komist í þakskegg út frá
rafmagnsljósi og var hann
fljótt slökktur án teljandi
tjóns. - epj.
VÍKUR-fréttir
Málgagn
Suðurnesjamanna
VÖRUR Á
TILBOÐI
Úrbeinaðir svínahamborgarhryggir
Svínahamborgarhryggir með beini
Svínahnakki ...................
Kindahamborgarhryggir..........
810,00 pr. kg
556,00 pr. kg
549,00 pr. kg
318,00 pr. kg
Hangiframpartar, úrb. ... 250,00 pr. kg
Hangiframpartar.......... 180,00 pr. kg
Hangilæri ............... 298,00 pr. kg
Úrbeinað hangilæri ...... 398,00 pr kg
298,00 pr. kg
366,00 pr. kg
287,00 pr. kg
420,00 pr. kg
295,00 pr. kg
London lamb
Kryddlæri ..
Krydd frampartar
Aligæs .........
Aliendur .......
; SfAÚUZ.
hamborgán...
Jólakjötið á jóla-afslætti
Verð sem þolir samanburð, enda í
mörgum tilfellum lægra en í fyrra.
NONNI & BCIBBI
Hringbraut 92