Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 22
JÓLABLAÐ 1985 VÍKUR-fréttir „Sá sem nennir að vinna, þarf ekki að kvarta - segir Jói á Lindinni Ef einhver minnist á Jóhann Ólafsson er ekki víst að allir viti hvern um er talað. Ef aftur á móti er minnst á Jóa á Lindinni þá vita allir við hvern er átt. Jói hefur rekið sjoppu við Hafnargötuna svo lengi sem elstu menn muna. Hann er frægur fyrir pylsurnar sinar, sinnepið og tíkallakassana, en frægastur er hann þó fyrir konfektið. Við tókum Jóa tali um þetta og ýmis- legt annað sem ber á ^óma við sjoppurekstur. Fyrst spurðum við hann út 1 konfektið. „Ég legg áherslu á það að vera alltaf með konfektið nýtt, gott og ferskt“ og því til frekari sönnunar rétti hann blm. konfektkassa með þeim orðum að við á ritstjórninni gætum bara smakkað það sjálfir. FÉLAGSBÍÓ kynnir jólamyndina í ár: Frábær gamanmynd Gleðileg jól En hvar og hvenær hóf Jói reksturinn? „Ég byrjaði á Hafnar- götu 19 og var þá á milli tveggja stórkaupmanna þeirra tíma, Ingimundar í Ingimundarbúð ogjósafats í Kyndli. Þaðan flutti ég svo um áramótin 70-71, hingað nr. 39 þar sem ég er enn þann dag í dag. Hvernig var að vera á milli þessara stórkarla? „Það var fínt, mjög gott og það var virkilega gaman að versla við Ingimund. Það var einhvern veginn mikið t>ersónulegra og skemmti- egra að versla við þessa karla eins og Ingimund og Stebba í Breiðabliki, heldur en í þessum stórmörkuðum í dag.“ En svo varstu líka með al- menningssalerni við hlið- ina á þér. Já, það er mikið rétt. Þarna nöfðu karlar eins og Jóel gamli götusópari, og Reynir „Barón“ aðsetur sitt. Þetta var eiginlega heimili rónanna í pá tíð. Svo var þessu lokað um haustið ‘70 og þá fékk ég lagerpláss þarna. Það ma eiginlega segja að þá hafi öll almennile^ almennings- þjónusta a Suðurnesjum norfið.“ Svo við vendum nú okkar kvæði í kross þá hefur það heyrst að þú sért með sér- stakt sinnep o.fl. slíkt. „Nei, nei, þetta er allt saman beint frá SS. Ég er með pylsur og sinnep eins og það kemur „original“ frá SS. En það er mikilvægt atriði að setja passlega mik- ið í pottinn." Svo áttu mikið af föstum kúnnum. „Já, það er alveg rétt, þeir eru margir. Það er gam- an að fylgjast með því hvernig þetta þróast. Ég man eftir börnum sem í gamla daga komu með feðr- um sínum til mín að fá sæl- gæti. Nú eru þessi börn orðin uppvaxin og koma nú með sín börn hingað til mín. Svona þróast þetta frá börnum í feður og allt upp í afa.“ En hefur sjoppurekstur ekki breyst mikið þessi ár sem þú ert búinn að vera í þessu? „Jú, það hafa orðið gífur- legar breytingar. Þetta er ekki svipur hjá sjón í dag, miðað við það sem þetta var. I gamla daga voru sjoppurnar samkomustað- ur fólksins og í raun sér- stakir menningarstaðir, því hingað komu vinirnir að hittast. I dag er þetta allt öðruvísi. Það liggja allir heima yfir vídeói og fólk rétt skýst út í sjoppu til að fá sér eitthvað með sjón- varpinu en ekki til að hitta kunningjanna." Að lokum Jói. Hverni[» gengur „businessinn“ í dag? „Það má segja að þetta gangi ágætlega, ef maður er í þessu sjálfur og passar upp á þetta þá gengur vel. Sá sem nennir að vinna þarf ekki að kvarta.“ Við látum þetta vera lokaorðin í spjalli okkar. Jói var búinn að vera á þön- um fram og til baka á með- an spjalli okkar stóð því það var stöðugur straumur viðskiptavina. Við þökk- uðum fyrir okkur, og því má bæta við að konfektið bragðaðist með ágætum. „Nýtt, ferskt og gott“ eins og Jói sagði. æi Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viöskiptin á árinu sem er að liöa. STEINSTEYPUSOGUN Margeirs Elentínussonar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.