Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Side 24

Víkurfréttir - 19.12.1985, Side 24
JÓLABLAÐ 1985 VÍKUR-fréttir „Það togar alltaf í mann, að fá að spila fyrir ÍBK4í - segir Bjarni Sigurðsson, atvinnuknattspyrnu- maður hjá Brann í Noregi Einn af okkar bestu knattspyrnumönnum leikur nú sem atvinnu- knattspyrnumaður í Noregi. Hann hefur getið sér gott orð þar ytra og staðið sem mjög vel. Þetta er Bjarni Sigurðsson, markvörður úr Keflavík, og leikur hann nú með liði Brann í Noregi. Blaðamaður hafði samband við Bjarna nú fyrir skömmu, á heimili hans í Noregi. Hann var fyrst spurður frétta frá Noregi. LINDIN - Alltaf í leiðinni JÓLAKONFEKT í miklu úrvali. SKAFÍS, PAKKAÍS, ÍSBLÓM, átsúkkulaði, suðusúkkulaði og margt annað góðgæti. VERIÐ ÁVALLT VELKOMIN LINDIN er alltaf í leiðinni Hafnargötu 39 - Keflavík - Sími 1569 „Héðan er allt gott að frétta af okkur og höfum við það mjög gott. Það er lítið að gera í fotboltanum núna, ekkert um æfingar eða keppnir, og til þess að halda mér í einhverju formi spila ég veggtennis einu sinni til tvisvar í viku til að safna ekki aukakílóum“. Hvenær hefjast æfing- arnar hjá ykkur? ,,Þær eiga að byrja núna seinni partinn í desember og er ráðgert að æfa 2-3var í viku. En í janúar þegar Tony Knapp kemur að þjálfa, munum við æfa 6-7 sinnum í viku í íVi mánuð. Eftir það æfum við 4-5 sinnum í viku, þannig að það verður nóg að gera“. Hvernig heldurðu að næsta tímabil verði? „Ég á von á því að það verði gott tímabil hjá okkur, og er JOLATRES- SALA Kiwanisklúbbsins KEILIS er hafin. ______________ Kæru viðskiptavinir! Athugið breyttan sölustað, sem er nú ÁHALDAHÚS KEFLAVÍKURBÆJAR VIÐ VESTURBRAUT Opið frá kl. 17-20 mánud.-fimmtud. og frá kl. 14-22 föstud.-sunnud. JÓLATRÉ - GRENI - KROSSAR, 4 BORÐSKRAUT - JÓLAPAPPÍR JÓLATRÉSFÆTUR ég bjartsýnn á framhaldið bæði hjá mér og Brann“. Hvernig hefur námið gengið? ,,Það hefur gengið ágætlega. Núna eftir áramótin fer ég í háskóla sem er staðsettur hérna í Bergen og stunda ég nám í tölvufræði. Þetta þýðir það, að ég ^et skipulagt minn tíma sjálfur og þar af leiðandi æft knattspyrnu miklu meira og einbeitt mér alveg að fótboltanum í sumar, því þá verð ég alveg í fríi frá náminu“. Hvað hefurðu hugsað þér að dvelja lengi í Noregi? ,,Ég verð alla vega í Noregi næstu tvö tímabil, og þá verð ég búinn að fá lágmarks réttindi í tölvu- fræði og þá er spurningin hvort maður kemur heim eða heldur áfram að læra“. Hefurðu ekkert saknað heimahaganna síðan þú fluttir til Noregs? „Að sjálfsögðu hugsar maður annað slagið heim, en hér í Noregi er mjög gott að vera og allir mjög elsku- legir. Það togar alltaf í mann að fá að spila fyrir Keflavík seinna meir, ef maður kemst þar að, og er það aldrei að vita“, sagði Bjarni að lokum og bað fyrir góða kveðju heim. ghj- Lausafjáruppboð I síðustu viku fór fram uppboð á lausafé við Tollvörugeymslu Suður- nesja. Buðu þar fulltrúar bæjarfógeta og sýslumannsembættisins upp ýmsa muni sem teknir htífðu verið upp í skuldir. Ýmsir bílar í mis- munandi ásigkomulagi freistuðu uppboðsgesta. sem voru fjtílmargir. epj.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.