Víkurfréttir - 19.12.1985, Page 27
JÓLABLAÐ 1985
VIKUR-fréttir
„Þá fengu flest börn reið-
hjól í fermingargjöf*
- segir Henning Kjartansson, sem hefur starf-
að við reiðhjólaviðgerðir í 42 ár
Eigendaskipti hafa orðið á Reiðhjólaverkstæðinu í
Keflavík. Henning Kjartansson hefur nú látið af störf-
um og við því tekið nýr eigandi, Sigurður Eiríksson.
Fiest allir kannast við Henning og hafa einhvern tíma
átt viðskipti við hann um ævina, hvort sem er með
sprungið dekk eða reiðhjólakaup.
í tilefni af þessum tímamótum fengum við hann í
stutt spjall, og spurðum hann fyrst, hvenær hann hafi
hafið starfsemi við reiðhjólaverkstæðið:
„Ég hóf rekstur árið 1966
þegar Margeir Jónsson
hætti. Áður en Margeir
hætti vann ég hjá honum og
árin sem ég hef eytt við reið-
hjólaviðgerðir eru nú orðin
fjörutíu og tvö“.
Er þér ekki eitthvað minn-
isstætt frá þinni starfsemi?
„Jú, það er alltaf
eitthvað minnisstætt. Ég
man alltaf eftir stríðsárun-
um, þá var lítið til af vara-
hlutum í hjólin og þá þurfti
maður að bjarga sér með
ýmsum hlutum sem var
búið að henda til hliðar.
Einnig reyndi maður að
sauma dekkin saman eftir
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiplin á árinu.
Heilsugæslustöð
Suðurnesja
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiplin á árinu.
Skóvinnustofa
Sigurbergs
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Teppahreinsun
Suðurnesja
qSBBgSSBfl8flSflBflgagfflSlgSgSg
jinfcitJÉjiDöin
— GLEÐILEG JÓL —
Úrvals gjafavara frá
ROSENTHAL
Úrval grafíkmynda eftir þjóðkunna listamenn.
Inn’Römmun
SuBURnesun
Vatnsnesvegi 12 - Keflavfk
Siml 3598
Henning Kjarlansson hefur haldið um marga gjörðina í gegnum árin,
iMivm ' -
r *
Hii
bestu getu. Svo eru þaðlíka
öll börnin sem hafa um-
gengist mann í kringum
starfið og hafa það verið
ánægjuleg samskipti".
Þú gerðir meira en að
selja og gera við reiðhjól?
,,Já, ég var með
barnavagna og þá aðeins
notaða. En aðalatriðið voru
reiðhjólaviðgerðir og var
oftast nóg að gera í því“.
Hjóla Suðurnesjamenn
meira nú á dögum en áður
fyrr?
„Já, þeir gera það, en
fyrst er ég byrjaði með verk-
stæðið fengu flest allir
krakkar reiðhjól í ferming-
argjöf, og var það viss at-
burður í nokkuð mörg ár“.
Kom ekki hjólreiðaæði
fyrir þrem til fjórum árum?
„Það má segja það, jú, og
hafa þau verið nokkur í
gegnum tíðina. Það var um
tíma sem unglingar voru
aldrei á hjóli og svo kom
hálfgert æði ynr þennan
hóp. Allir fóru að kaupa
hjól og var mikið hjólað í
hópum. Fyrst var það 10
gíra reiðhjólaæðið, og þá
vildi enginn öðruvísi hjól.
Þó að til væru á heimilum
sæmilega góð hjól, þá var
ekki hægt að nota þau, því
allir vildu 10 gíra. Síðan
komu hin svokölluðu
„Grifter“-hjól til sögunn-
ar og voru vinsæl í nokkur
ár, og nú þessa dagana eru
það BMX-hjólin sem slá í
gegn“.
Hvernig hefur reksturinn
gengið í gegnum árin?
„Hann hefur gengið
svona upp og ofan. Það
hefur alltaf verið lítið að
gera yfir veturinn, nema þá
þegar nærdregur jólum, þá
er alltaf þokkaleg traffík.
Yfir sumartímann hefur
alltaf verið nóg að gera og
er það besti tíminn".
Hvers vegna ákvaðst þú
að hætta rekstrinum?
„Margir voru hissa á því
að ég hætti. Það voru allir
mjög hlynntir mér og ber
mér að þakka það. Ég er
bara ekki nógu heilsu-
hraustur til að halda starf-
seminni áfram, og einnig er
gott að breyta til og fá nýtt
andlit í þetta“.
Að lokum, Henning, átt
þú reiðhjól?
„Já, ég hef alltaf átt hjól,
en það hefur gengið ákaf-
lega illa að nota það í seinni
tíð. Þegar ég hef ætlað að
hjóla, þá hefur komið
rigning eða rok. Annars
hjólaði ég alltaf í vinnuna
hér áður fyrr“, sagði Henn-
ing, og vildi að lokum fá að
bæta við smá þakklæti til
allra sem hefðu haft við-
skipti við hann í gegnum
tíðina og mjög ánægjuleg
samskipti. - ghj.
Sigurður Friðriksson, hinn nýi reiðhjólaviðgerðarmaður. „Ég vona
að ég eigi eftir að halda uppi merki Hennings. Þetta hefur verið vel
rekið hjá honum í gegnum árin“.
SUÐ URNESJAMENN!
Verslum heima
Víkur-fréttir