Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 32

Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 32
JÓLABLAÐ 1985 VIKUR-fréttir ---------------------------. Brottfluttir Suðurnesjamenn Brottfluttir Suðurnesjamenn skipa stóran sess í jólablaðinu í ár. Þetta fólk á það sam- eiginlegt að vera alið upp á Suðurnesjum. Af nógu er að taka, því Suðurnesjamenn hafa getið sér góðs orstírs á mörgum sviðum. Þessi viðtöl sem hér fara á eftir eru því engan veginn tæmandi, en sýna vonandi að við eigum sveitunga vioa ner a landi, sem er- lendis. V___________________________ Brynjólfur hf. óskor storfsfólki sínu og sjómönnum á uiðskiptobátum GLEDILEGRA JÓLA og þokkor þeim uel unnin störf, á liðnu ári. Gleðileg jól Gott og farsœlt komandi ár. Þökkum uiðskiptin á liðna árinu. Samvinnubankinn og Samvinnutryggingar Keflavík Við óskum öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. SAMBAND SVEITARFÉLAGA Á SUÐURNESJUM „Ég veit þú leikur á kvöldin, en hvað gerir þú á daginn?44 Jólaviðtal við Hönnu Maríu Karlsdóttur, leikkonu úr Keflavík Margir af frœgust leikurum landsins eru ættaðir af Suðurnesjum. Nœgirþar að nefna Gunnar Eyjólfsson, Helga Skúlason, Gísla Alfreðsson og Kristbjörgu Kjeld. Enn aðrir klífa hratt upp þennan frœgðarstiga og einn þeirra kynnum við nú. Sá leikari er Hanna María Karlsdóttir sem nú er fastráðinn leikari í Iðnó. Hún hefur slegið þar í gegn svo og ísjónvarpinu og víð- ar. Hún er fœdd 19. nóv. 1948 að Vesturbraut 9 í Kefla- vík, dóttir hjónanna Karls Guðjónssonar útvarpsvirkja sem síðast starfaði við Keflavíkurradíó og konu hans Dagrúnar Friðfinnsdóttur. Hanna María á ekki langt að sœkja leikhæfileika sína, því Karl var á sínum yngri árum mikill leikari hér á Suðurnesjum. Fyrstu spurn- inguna sem við leggjum fyrir Hönnu Maríu var þessi: Hvað varst þú gömul er þú fórst frá Keflavík og mannstu eitthvað skemmtilegt frá þínum uppvaxtar- árum þar? Keflavík alveg fram í rauð- ann dauðann, mínar yndis- legu æskustöðvar. Og með- an báðir foreldrar mínir og bæði systkini mín búa þarna, hlýt ég að hafa sterka strengi til Keflavík- ur.“ Gekkstu með leikarabakt- eríuna á þínum yngri árum? „Það tala allir um þetta sem bakteríu, en mér fmnst það svo hallærislegt. Ég hef alltaf haft þetta í undirmeð- vitundinni. Pabbi var leik- ari í gamla daga og hafði mikið gaman að því að Hanna María Karlsdóttir „Ég var 21 árs er ég flutti burt. En ef maður byrjar á byrjuninni þá er ég fædd í húsi nr. 9 við Vesturbraut og á mínum uppvaxtarár- um fannst mér Vestur- brautin dásamlegasti stað- ur á jarðríki. Þetta var lítil gata, lokuð í annan end- ann, slippurinn rétt handan við, bryggjan stutt frá, þar sem við veiddum marhnút og kola. Þá var oft farið út á Berg, labbað út að vita, nú öll túnin og skreiðarhjallar- nir. Stutt að fara upp í heiði í berjamó og þar voru líka tjarnirnar sem hægt var að skauta á yfir veturinn. Vesturbrautin var ævin- týraheimur; þar lærði mað- ur allt, en 10 ára flutti ég þaðan upp á Hringbraut." Mannstu eftir einhverju skemmtilegu atviki frá þess- um tíma? „Já, ég man að mér fannst alltaf snjórinn á Vesturbrautinni vera svo mikill. Maður fór upp á bíl- skúrinn, þar sem pabbi var með viðgerðarverkstæðið og þaðan var hoppað ofan í skaflana, djúpa, yndislega skafla. Maður sér aldrei svona skafla í dag, enda var maður miklu minni þá. Þetta er kannski eins og þegar maður kom fyrst inn í Þjóðleikhúsið, þá var eins og að koma inn í muster, nú er þetta eins og leikhús af normal stærð.“ Nú ert þú búin að vera 16 ár fyrir utan þína heimabyggð. Telur þú þig vera Suður- nesjamann? „Já, tvímælalaust og verð aldrei annað.“ Nú eru ekki nema 50 km. til Keflavíkur, fylgistþú með þinni gömlu heimabyggð eft- ir öll þessi ár? „Ég get nú ekki sagt það. Náttúrulega les ég blöðin og allt sem kemur í blöðun- um viðkomandi Keflavík, les ég að sjálfsögðu, það eru óhjákvæmilega alltaf ein- hverjar taugar til Keflavík- ur. Þegar ég fer og heimsæki foreldra mína, sem er nú alltof sjaldan, þá les ég t.d. alltaf Víkur-fréttir. Ræðstá bunkann og ét hann alveg í mig!“ Fólk lokar bara ekki fyrir þetta æviskeið og hættir að fylgjast með æskuslóðunum? „Nei, alls ekki. Ég kynni mig alltaf sem Suðurnesja- manneskju og er bara stolt af því; það er mikið af góðu fólki sem hefur komið af Suðurnesjum. Iðulega er fólk úr ýmsum stéttum s.s. pólitíkusar, sem eru alltaf með pillur t.d. á Keflavík eða Keflvíkinga. Þegar ég heyri þetta, ver ég yfirleitt segja mér sögur af því og mér fannst alveg óskaplega gaman að /ara og sjá leik- sýningar. Ég var mjög ung, er ég man fyrst eftir mér í hlutverki hjá Stúkunni í leikritinu „Grámann í Garðshorni“, semþærsyst- ur, Guðlaug og Jóna, settu upp. Síðan tróð ég oft upp hjá Skátunum í tíma og ótíma. Þá man ég eftir því að í sumarbúðum Þjóð- kirkjunnar á Löngumýri í Skagafirði, var leikið annað hvert kvöld og var ég þátt- takandi, að ég held, í hverri sýningu. Man ég að ég lék oft Chaplin þar.“ En svo fluttir þú burt 21 árs? „Já, þá tók ég á leigu þakherbergi uppi í hlíðum í Reykjavík og fór að vinna hjá utanríkisráðuneytinu. Vann ég hjá þeim í þrjá mánuði í Reykjavík og þá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.