Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Síða 41

Víkurfréttir - 19.12.1985, Síða 41
VÍKUR-fréttir JÓLABLAÐ 1985 „Varð frahverfur efna- fræðinni og for í guðfræðina“ Séra Davíð Baldursson á Eskifirði, fæddur Kefl- víkingur, í Víkur-fréttaviðtali í hóp brottfluttra Suðurnesjamanna eru örfáir sem gert hafa preststarfið að ævistarfi. Hæst ber þar að sjálfsögðu á Olafi Skúlasyni, dómprófasti. En í hópi yngri presta er m.a. sá sem við ætlum að ræða við nú oe heitir DA VTFí BALDURSSON, fæddur í Keflavík 10.3. 1949, sonur hjónanna Margrét- ar Friðriksdóttur og Baldurs Guðmundssonar. Séra Davíð þjónar Eskifjarð- ar- og Reyðarfjarðarsókn á Austurlandi, auk þess sem hann hefur tekið mjög virkan þátt í félags- og æskulýðsstarfi á staðnum. í upphafi viðtalsins báðum við hann að segja okkur frá uppvaxtarárum sínum í Keflavík. „Fimm fyrstu árunum eyddi ég á Vesturbrautinni. Þar var leikvöllurinn gamla bryggjan, slippurinn og Bergið. Var maður afskap- lega iðinn við bryggjuna og sótti mikið þangað, algjör- lega í óleyri foreldranna, dettandi ofan í báta og í sjóinn. Man ég að þetta hafði óskaplegt aðdráttar- afl. Einn atburður frá þessum árum er mér mjög minnisstæður. Þá var gerð dauðaleit að okkur (Davíð og undirrituðum - innsk blm.). Man ég eftir þessu vegna alls tilstandsins og látunum í fullorðna fólkinu fir þessu. Enda skynjaði ég á ekki hættuna sem við vorum í, fannst frekar að verið væri að gera aðför að friðhelgi okkar. Við vorum þarna í heim- spekilegum umræðum úti á skeri sem var framan við eða úti af bryggjunni. Flæddi yfir sker þetta á flóði, en hægt var að komast út í það á fjöru. Höfðum við sennilega verið þarna klukkutímum saman, fjögurra ára strák- arnir og orðið áliðið dags. Vissi enginn af okkur og var því kallað út allt til- tækt lið til að leita okkar. Þegar einhver kom auga á okkur var farið að flæða að skerinu og við sóttir í of- boði Svo flutti ég frá Vestur- brautinni og á Vatnsnesveg 36 og þá breyttist nokkuð leikvöllurinn, í höfnina og heiðina í tengslum við flug- völlinn“. Hvenær fórst þú frá Keflavík? „16 ára fer ég til náms, var þó alltaf í Keflavík^ á sumrin fram eftir aldri. E| var þó í sveit á sumrin a mínum yngri árum og varð því ekki þátttakandi í fót- boltanum eins og margir mi'nir jafnaldrar. Skólaver- an frá þessum árum er mér minnisstæð. Man ég eftir mörgum góðum mönnum, s.s. Hermanni skólastjóra í Barnaskólanum, Rögnvaldi skólastjóra Gagnfræða- skólans. Voru þeir báðir minnisstæðar persónur. Nú, fyrsta vinnan mín þarna var fiskvinna í Stóru- milljón, 14-15 ára var ég kominn á flugvöllinn og þar með alveg dottinn inn í það umhverfi. Vann égbæðihjá hernum, Aðalverktökum, Loftleiðum og í Tollinum, og eitt sumarið var ég til sjós“. Hvenær fórstu alfarið frá æskuslóðum? „Um tvítugt, til Reykja- víkur í Háskólann. Þá má segja að maður hafi búið allt árið utan Keflavíkur. En ég hafði náttúrlega verið með annan fótinn í Kefla- vík, meðan ég var í Mennta- skólanum". Manstu eftir einhverju merkilegu á þessum árum? „Já, það var gífurlega merkileg starfsemi sem varð að veruleika á þessum árum, það var þegar Tón- listarskólinn hóf starfsemi sína og tilkoma Herberts H. Ágústssonar sem kenn- ara við skólann. Þáttur hans er örugglega einn stærsti í sögu tónlistarlífs í Keflavík, einfaldlega vegna þess að hann var ekki aðeins góður kennari og hæfileika- maður, heldur hafði hann óþrjótandi áhuga. Og með mikilli atorku kom hann þarna af stað lúðrasveit. Var ég í sveitinni með mörgum góðum mönnum, eins og Stefáni Ólafssyni, Magnúsi Kjartanssyni og fleirum. Hófu þeir starf með lúðrasveitinni þarna um leið og ég, og vorum við saman í henni í fimm ár“. Var þetta fyrsta lúðra- sveitin? Fyrir var gömul lúðra- sveit sem endurlífgaðist með komu Herberts. Vorum við fyrst í tvö ár í drengjalúðrasveitinni, en síðan sameinuðumst við karlalúðrasveitinni og er það mjög merkur þáttur í sögu Keflavíkur og að sjálf- sögðu í mínu lífi. Minnist ég þess með mikilli ánægju að hafa einmitt verið þátt- takandi í þessu og taldi það vera æskulýðsstarfi okkar til framdráttar að hafa Her- bert þarna. Tónlistarskól- inn var sjálfsagt byrjaður eitthvað áður, en með komu Herberts var blað brotið í tónlistarmálum á staðnum". Svo við snúum okkur frá æskulýðsmálum, hvenær tókstu vígslu? „Eg var svolítið óráðinn í fyrstu að fara út í þetta nám, ég ætlaði mér að fara út í efnafræðinám og vann því á Rannsóknarstoru fisk- iðnaðarins í 1 ár. I millitíð- inni kvæntist ég og er kona mín Inger L. Jónsdóttir, lögfræðingur, en hún er dóttir Jóns Þorsteinssonar, skókaupmanns í Keflavík. Eftir guðfræðinámið starfaði ég eitt ár hjá Rann- sóknarlögreglunni í Reykjavík sem lögreglu- maður. Stóðu þá sem hæst Guðmundar- og Geirfinns- málið, og var þetta út af fyrir sig mikill reynslutími. Nú, 1977 tók ég svo vígslu“. Fórstu þá beint austur? „Já, ég fór beint hingað og er búinn að vera hér síðan. Prestakallið heitir Eskifjarðarprestakall, en samanstendur af tveimur sóknum, Eskifjarðarsókn og Reyðarfjarðarsókn, og er mannfjöldinn á báðum þessum stöðum til samans fast að tvö þúsund manns“. Kennir þú með prests- starfinu? „Mjög lítið, hins vegar er ég skólastjóri Tónlistar- skólans á báðum stöðum. Þá flækist maður auðvitað í ýmis konar störf, ég er m.a. formaður Prestafélags Austurlands, nú, og for- maður Styrktarfélags van- gefinna á Austurlandi". Þú tekur þá heilmikinn þátt í félagslífinu? „Maður gerir það, auð- vitað, kannski meira en góðu hófi gegnir“. Er vinnutíminn þá ekki langur og óreglu- legur? „Hann er auðvitað enda- laus og allir dagar eru Það var mikil eftirvænt- ing hjá krökkunum þegar kveikt var á jólatrénu frá vinabæ Keflavíkursl. föstu- dag. Þessi tilhlökkun var yfir því að fá jólasveinana í heimsókn. En þegar þeir loks létu sjá sig, kom í ljós að þeir voru ekki starfi sínu vaxnir, enda fór svo, að fleiri krakkar fóru von- sviknir heim en þörf hefði verið á. Gerðist það vegna þess að eplin sem þeir út- hlutuðu lentu að mestu í hópi stóru og freku krakk- anna, en hin litlu fengu ekki virkir. Eini uppbrotstím- inn er þegar maður tekur sér sumarfrí, en að öðru leyti er þetta alveg sam- fellt“. Hvernig líkar þér að búa svona úti á landi? „Mér líkar það mjög vel að mörgu leyti, vegna þess að það er margt að gerast hér og mikill uppgangur er á þessum stöðum, óþrjót- andi verkefni og skapandi. Tel ég það vera höfuðmál, ekki síst svona í kirkjulegu starfi, en þar hefur verið mikið að gerast í þeim mál- < < um . Þá er spurningalistinn tæmdur, Davið, aðeins hin klassíska spurning: Hvað segir þú að lokum? „Þegar maður lítur aftur á bak á maður að mörgu leyti fjölmargar góðar minningar frá þessum tímum. Af því að það er nú ár æskunnar, þá minnist maður þess sem æskan sýsl- aði við í þá daga. Man ég eftir harðvítugum skylm- ingaflokkum sem hétu ,,Rauði drekinn“ og „Svarti riddarinn“ og þessum stóru fylkingum æskumanna laust saman í miklum og hörðum bar- dögum. Og síðan þegar Roy og fleiri voru í bióunum og menn sóttu bíóin með miklu harðfylgi. Þá voru þessir kúrekaleikir alveg endalausir. Þetta er mér mjög minnisstætt frá essum tímum, því það tók uga minn allan, að reyna að líkjast þessum stjörnum sem ég sá í kvikmyndum. Voru þetta lifandi félög, þar sem menn komu saman og æfðu sig á allan hátt. Þá fór það mjög fyrir brjóstið á mér þessi andlegi siðferðilegi slappleiki sem tengdist nærveru amerík- ana á flugvellinum, sem kom m.a. fram í því, að það þótti ekki tiltökumál að smygla, og var fremur litið á það sem sjálfsbjargarvið- leitni, enda þótt maður hafi látið vélast til þess sjálfur. En þannig var einhvern veginn tíðarandinn. Von- andi er það nú liðin tíð“, sagði séra Davíð Baldurs- son að lokum. - epj. neitt. Þá kom í ljós að jóla- sveinarnir gátu ekkert sungið eða sprellað, og virtust lítið geta nema stað- ið í einni kös uppi á pallin- um. Þeir sem taka að sér að leika jólasveina verða að vita hvað af þeim er ætlast, en það virðast þeir JC-fé- lagar ekki hafa vitað í þetta sinn, nema það sé rétt eins og ein stúlkan orðaði það. „Þessir menn kunna ekki að vera jólasveinar, því þeir eru kannski svo miklir jóla- sveinar", eða þannig. Faðir Jólasveinarnir í JC

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.