Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Qupperneq 45

Víkurfréttir - 19.12.1985, Qupperneq 45
VÍKUR-fréttir JÓLABLAÐ 1985 „Betur má ef duga skal“ (í beinu framhaldi af „Atvinnu - ekki forsjá“) Konan átti sér einskis ills von; hafði enda starfað vel fyrir þjóðarhag, og ef til vill betur en margur annar sem naut þó ávaxtanna í ríkari mæli; hafði unnið við næst mikilvægustu atvinnugrein þjóðarinnar á eftirfiskveið- um, sjálfa vinnsluna sem er þó hvað minnst metin í verki (launum), en mest í orðum þeirra sem njóta af- rakstursins. Hún hafði helgað sig uppeldi þeirra fjögurra barna sem hún hafði í þennan heim borið; ásamt með lífsförunauti sínum, trúum og traustum eiginmanni er einnig starf- aði við undirstöðuatvinnu- greinina hafði hún unnið baki brotnu til að sjá sér og börnum sínum farborða. En þá dundi reiðarslagið yfir. Unga konan hafði nýlega fyllt þriðja áratuginn í dagatali lífs síns; þau hjón- in höfðu af einskærum dugnaði og samviskusemi sem einkennir margan Isl- endinginn, en litlum efnum komið sér upp eigin hús- næði í Garðinum, þar sem þau bjuggu börnum sínum fallegt heimili á árinu 1974. Undanfarið höfðu ágerst verkir í höfði hennar, nokk- uð sem hún kippti sér lítt upp við, en linaði verkina með magnyl, er verst lét; eins og svo altítt er meðal Islendinga. En áfyrrnefndu herrans ári urðu verkirnir slíkir að þessi undratafla dugði lítt betur en vatn á olíueld; þannig varð henni sífeilt minna úr verki, annarsvegar vegna höfuð- meinsins, en ekki síður vegna hins, að vinstri hand- legg og hönd þvarr æ meir hinn fyrr máttur. Hún lenti undir hnífnum, eftir að hafa farið hina hefðbundnu göngu milli hinna ýmsu sér- fræðinga. Undan höfuð- skel hennar var fjarlægt svonefnt æxli er læknar kváðu góðkynja. Af hvaða gæðakyni æxlið var er erfitt um að segja, en eitt er víst, að ef aðgerðin hafi verið framkvæmd til að auðvelda henni fyrri störf urðu læknum á ein af mis- tökum aldarinnar, því að í dag er þessi fluggreinda kona 75% öryrki; vinstri handleggur og hönd mátt- laus, hefur gengist undir nokkrar augnaaðgerðir (og hefur nú sjón á við hvern meðalmann) og gengur við hækju vinstra megin, en að einu leyti má mæla aðgerð- inni bót: Höfuðverkirnir hafa stórlega linast. Ef til vill mætti segja, að hún hafi það betra en margir aðrir, því að hún hafi þó skilning- arvitin öll í sæmilegu lagi og svo skýra hugsun að flest- um þætti af mikill sómi væru 3eir þannig gerðir. En það er einmitt gallinn á þeirri Njarðargjöf í lífi margra fatlaðra. Margt fatl- að fólk líður miklar nugar- kvalir vegna sinnar skýru hugsunar. Hugsunar sem það fær aðeins notið í ein- veru sinni við að öðlast dýpri lífsskilning, atvinnu- laust heima við. Það þráir að fá eitthvað að gera, að öðlast tilgang í lífinu, að verða viðurkennt eins og hver annar samfélagsþegn, að geta orðið að liði við uppbyggingu þessa sameig- inlega þjóðfélags okkar allra. Það þráir að fá ein- hverja launaða vinnu við hæfi, þó ekki væri nema hluta ur degi. Atvinnurek- endum væri eflaust flestum í lófa lagið að leita uppi eitt- hvert viðvik sem þeir treys- ta fötluðum að inna af hendi fyrir fyrirtækið, þá jafnvel heima við fyrir fatl- að fólk sem ætti ekki heim- angengt. Arangur af áskoruninni. í grein er birtist í Víkur- fréttum hinn 5. des. sl. skoraði undirritaður á alla atlaða atvinnuleysingja og já sem vissu af slíkum að áta vita í síma 3834, en því miður varð lítið um skrán- ingar þann daginn. Konan sem um hefur verið fjallað hér á undan hringdi að kveldi þessa fimmtudags. Daginn eftir sótti ég hana heim og afrakstur þeirrar ferðar er meðal annars þessi grein. Onnur skráning barst mér síðan á föstudegi, var þar kominn karl um miðjan aldur, fyrrum mat- reiðslumaður ofan af Velli. Hann kvaðst hafa orðið að hætta vegna veikinda sem hrjáðu hann og þeirrar skertu starfsorku sem af þeim leiddi. Hann hefði hreinlega ekki þrek til átta stunda vinnudags, eins og tíðkaðist alla jafna þar efra. Hinsvegar gæti hann vel hugsað sér að hafa vinnu- daginn skemmri, svo framarlega sem slíkt starf væri í boði. Ef einhver atvinnurek- andi setur manngildi ofar auðgildi gæti sá hinn sami fundið eitthvert 3að verk sem hann teldi að þessi karl eða konan gætu innt af hendi fyrir fyrirtæki sitt, bið ég, undirr. hann (eða hana) að lyfta simtóli að tal- anda og heyranda sínum og hafa samband við mig í síma 3834. I framhjáhlaupi mætti ef- laust geta þess, að við mat- reiðsíumaðurinn fyrr- nefndur ræddum hverskon- ar störf hann gæti hugsað sér og kom þá fram að kokkmennskan væri honum hugleiknust, því að í eldhúsinu væyi hann sem heima hjá sér. I þessu sam- bandi skora ég því á þig Axel á Glóðinni að athuga gaumgæfilega innan þíns fyrirtækis, hvort ekki mætti finna eitthvert pláss við pottana þína, þar sem þessi fatlaði maður gæti orðið að liði í stað þess að þurfa að hírna í einverunni heima við. Meira um frúna í Garðinum. Margar hugsanir sínar og reynslu færði frúin í tal við mig í heimsókninni. Hún sýndi mér og grein sem hún ritaði í Bæjarpóstinn fyrir nokkrum árum, sem og >etta upphaf að grein sem oirtist hér með hennargóð- lúslega leyfi: „Vernduð vinna“ ,,t>að er sjálfsögð skylda hvers stéttarfélags að ábyrgjast verndaða vinnu, alla þætti vinnumiðlunar og á annan hátt að gæta hagsmuna meðlima sinna. Verkalýðssamtökin telja að vernduð vinna eigi að vera í sem nánustum tengsl- um við hinn almenna vinnumarkað, til að mynda séu verndaðir vinnustaðir í beinu sambandi við venju- leg fyrirtæki, jafnvel á sama stað. Það má þó ekki verða til þess að gerðar séu óeðli- legar kröfur til þeirra sem hafa skerta starfsgetu.“ Þessa grein laganna leit- aði konan uppi, er henni þótti sitt stéttarfélag, Verkalýðs- og sjómannafél- ag Keflavíkur og nágrennis gera full Iítið til að finna sér vinnu við hæfi, en kom aldrei í, verk að gera lýðum heyrinkunnugt. Fyrir þá atvinnurekend- ur sem gætu hugsað sér að veita fötluðum atvinnu, en víla það fyrir sér vegna þess aukna kostnaðar er alla jafnan verður vegna starfs- þjálfunar hins fatlaða, má geta þess, að 1978 voru samþykkt á Alþingi lög til að auðvelda föt uðum þátt- töku í atvinnulífinu: „Hinu opinbera ber að endur- greiða útlagðan launa- kostnað þeim fyrirtækjum sem ráða fatlað fólk í vinnu; á fyrsta ári endurgreiðast 75% launa, helmingur á því næsta, fjórðungur á þriðja og síðan ekki söguna meir, enda megi þá ætla að hinn fatlaði hafi þá hlotið fulla starfsþjálfun til að geta sinnt sínum skyldustörf- um, jafnt á við hvern þann sem ófatlaður er. í samræðum okkarfrúar- innar lét hún í ljós þá skoð- un sína að allt of mikið væri um að óvandað fólk sem ekki nennti að vinna en gæti það. Lygi upp á sig nina ýmsu fötlun og kæmist þannig inn á trygg- ingarkerfið og fengi greidd- ar mánaðarlegar bætur. Nefndin tekur undir orð hennar og lýsir yfir hneykslan á slíku óheiðar- legu framferði, og telur það spilla fyrir málstað þeirra sem virkilega eru fatlaðir, auk þess sem þetta rýri • óhjákvæmilega afkomu- möguleika þeirra sem á bót- um þurfa að halda. Einnig kom hún inn á jafnréttisbaráttu kvenna og sagði það alveg forkastan- legt hvernig móttökur þær konur fengju á vinnumark- aði sem helgað hefðu sig heimilinu, karli og börnum, en frestuðu öllu framhalds- námi eftir skylduna. Þessar konur væru alveg réttinda- lausar á vinnumarkaðinum, rétt eins og fatlaðir. Lífs- starf þeirra væri einskis metið. Til skamms tíma hefðu þær auðveldlega get- að gengið í önnur vanmetin störf við fiskvinnslu, en slíkt gerðist nú sífellt örð- ugra. Samgönguerfið- leikar fatlaðra. Fyrir nokkrum árum var frúin í Garðinum búin að fá vilyrði fyrir starfi hjá skrif- stofu bæjarfó^etaembætt- isins í Keflavik og hugði gott til glóðarinnar. En þá kom baBb í bátinn. Hana vantaði flutningatæki til að komast frá heimili sínu í Garðinum á fyrirhugaðan vinnustað í Keflavík, þann- ig að sá draumur var úti. Á höfuðborgarsvæðinu er starfandi flutningaþjón- usta fyrir fatlaða og er hún mikið notuð, en hér er eng- in slík þjónusta. Því beini ég þeirri fyrirspurn til stjórna sveitarfélaga á Suðurnesjum, hvort það væri ekki kjörið verkefni fyrir samband þeirra að standa að stofnun slíks þjónustufyrirtækis á svæð- inu. Efast ég ekki um, að það yrði góð búbót fyrir þábíl- stjóra sem eru meira og minna atvinnulausir þessa dagana. „Mottó“ Hvernig ætli fólk sem hefur mætt miklu and- streymi, eins og fötlun og stendur skyndilega frammi yrir útskúfun frá eðlilegri játttöku í atvinnulífinu, ari að því að halda jafnað- argeði og í vonina um vinnu við hæfi? „A tólfta ár hef ég verið bjartsýn og haldið í vonina um að fá vinnu. Eg hef unn- ið þau heimilisstörf sem ég mögulega get sinnt með annarri hendi. Einnig hef ég lesið mikið. „Mottó“: Bjartsýni og kjarkur.“ Baráttukveðjur, Ólafur Þór Eiríksson

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.