Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Page 51

Víkurfréttir - 19.12.1985, Page 51
VÍKUR-fréttir JÓLABLAÐ 1985 Það líður að jólum. Dagurinn styttist og dags- birtan dvín. Jól. I mínum huga er allur desembermán- uður jól. Ég hlakka til jól- anna eins og barn. Já, við segjumst halda jólin fyrir börnin, það er rétt. En við höldum jólin líka fyrir okkur fullorðna fólkið. Við njótum jólanna ekki síður en þau. Við skynjum ekki fyrr en að við erum orðin fullorðin, hvað dásamlegt það var, að vera barn. Því ættum við að gera allt sem hægt er til að gleðja börnin. Ekki bara á jólun- um, heldur alla daga ársins. Það vill oft gleymast í amstri hversdagsleikans, að gefa börnunum tíma. Ræða við þau og sýna þeim þolin- mæði, svara spurningum þeirra o.fl. o.fl. Börn fá yfirleitt alltof lítinn tíma hjá foreldrum sínum. I mörgum tilfellum eru þau eins og aukapersónur, sem hafa óvænt skotið upp koll- inum Flastir foreldrar átta sig ekki á þessu fyrr en um seinan. Þess vegna láta afar og ömmur oft mikið með barnabörnin, því þau gáfu sér ekki tíma til að leika við sín eigin böm. Því er það á jólunum sem foreldrar og aðrir reyna að bæta börnunum sínum upp hugsunarleysið. Þá gera þau allt sem þau geta til að gleðja börn sín. En betra væri það minna ogjafnara. Jólin eru vissulega hátíð 'barnanna. Öll börn hlakka til jólanna. Ef ég mætti gefa ungum foreldrum heilræði, ættu þau að gefa sér tíma til að kenna börnum sínum nokkrar bænir á kvöldin. Og segja þeim oft, að þau elski þau og þyki vænt um þau. Þá öðlast börnin öryggi í þessum hverfula heimi. Aldrei er eins mikið að gera hjá húsmæðrum með mörg börn, en fyrir jólin. En hver dagur sem líður gefur gleði og eftirvænt- ingu. „Eg þarf að gera þetta og ég þarf að gera hitt“ fyrir jólin. Allt miðast við að vera búin með verkin fyrir jól. Saumaskapur, bakstur, hreingerning og fleira, allt kallar á. Þá er komið að jólagjöf- Rúnar Þór Pétursson með sólóplötu Annan desember s.l. sendi Rúnar Þór Pétursson, Innri-Njarðvík, frá sér sína fyrstu sólóhljómplötu; Auga í vegg. A plötunni eru sjö lög, öll eftir Rúnar Þór. Textarnir eru einnig allir eftir hann, utan tveir, sem eru eftir Jónas Friðgeir Elíasson, skáld frá Bolung- arvík. Þrír af þekktustu rokk- söngvurum landsins koma fram sem gestasöngvarar á plötunni, þeir Eiríkur Hauksson, söngvari Drís- ils, Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi söngvari í Eik og loks Bubbi Morthens sem óþarfi er að kynna. Rúnar Þór sér um nær allan undirleik sjálfur effrá er talið að Kjartan Baldurs- son sér um allan bassaleik og Grétar Örvarsson leikur á hljómborð í nokkrum lögum. Upptökur fóru fram í Stúdíó Mjöt sem einnig sér um dreifingu. Upptöku- maður var Björn Vilhjálms- son. Hönnun umslags var í öruggum höndum Sigur- þórs Hallbjörnssonar (Spessa) og er þar smekkleg vinna á ferðinni. Rúnar Þór gefur plötuna út sjálfur ásamt Davíð Karli Andréssyni. Þeir sjá einnig um dreifinguna ásamt Mjöt og er hægt að panta hana hjá þeim í sím- um 92-6164 og 91-13215. (Fréttatilkynning) unum. Hvað á að gefa fjöl- skyldunni í jólagjöf? Það er hugsað, skrifað niður og reiknað út, eftir efnum hvers og eins. Margir segja að jólin þjóni engum til- gangi. Frá mínu sjónarmiði eru jól ekki aðeins trúarleg hátíð, heldur draga jól og jólaundirbúningur allt það besta fram í manneskjunni. Jól eru eins og ljós í myrkr- inu. Við hugsum til margra um jólin og sendum vinar- kveðjur. Gleðjum með gjöf- um, sem við gerum ekki á öðrum tímum ársins. Við segjum gleðilegjól og mein- um það. A jólunum er alls staðar bjart og fallegt, úti sem inni, líka í sál og sinni. Jólaskreytingar lífga upp svartasta myrkrið í skamm- deginu. Það er gaman að aka um og skoða jóla- skrautið í gluggum heimil- anna, verslunum og sjá jóla- trén víðs vegar um bæinn. Við vitum að margir eiga bágt um jólin, ekki síður em aðra daga ársins, vegna veikinda, slysa eða annarra válegra atburða. En jólin eru samt lýsandi fyrir alla menn. Meira að segja skotgröfunum á striðsárunum reyndu menn að gera sér dagamun. A jól- unum hugsar fólk meira um Guð og frelsarann en aðra daga ársins. Kærleikur er sterkasta afl sem í mann- inum býr, en alltof fáir eiga, bænin er líka stókostlegt afl. Þegar talað er um kraftaverk heldur fólk að það tilheyri þeim tíma, sem frelsarinn var uppi. En ég segi: Kraftaverk gerast enn ýdag. það er mín reynsla. Ég er hvorki betri né verri en fólk er flest. En ég hef verið bænheyrð, svo ég undrast sjálf, eins óverð- skuldug og ég er. Fólk kemst ekki í gegnum lífið nema með bæn og hjálp frá Guði. Mér er minnisstætt, það sem gömul kona sagði mér einu sinni. Hún sagð- ist oft vakna á nóttunni, þá var hana að dreyma fólk sem hún þekkti. Hún bað fyrir þessu fólki. Seinna komst hún að því, að þetta fólk þarfnaðist hjálpar á þeirri stundu sem hana dreymdi það. Það er hægt að senda bæði góðar og illar hugsan- ir til annarra. Það er sama hvar við erum í heiminum. Þetta er staðreynd. Því ætt- um við að gæta að hvað við hugsun. Gleðjumst yflr að undirbúa jólahátíðina og látum ljós Guðs lýsa okkur í myrkrinu. NÓTT Nóttin hylur hljóðan grát frá mæddu hjarta. Lokar þreyttum augum leiðir í birtu bjarta. Skilur eftir í myrkrinu sorgina svarta. María Karvelsdóttir Hin árlega kaffisala Lionsklúbbsins Óðins verður haldin í húsi Verslunarmannafélags- ins, Hafnargötu 28, á Þorláksmessu frá kl. 14-23. Allur ágóði rennur til líknarmála. LIONSKLÚBBURINN ÓÐINN JÓLASKYRTUR í miklu úrvali. ÝMISLEGT TIL JÓLAGJAFA: Buxur, skyrtur, bolir, sokkar, leðurhanskar, skór og margt fleira. Fjölbreytt vöruval. - Lágt verð. Verið velkomin. FATABÚÐIN Hafnargötu 30 - Sími 1501

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.