Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Side 58

Víkurfréttir - 19.12.1985, Side 58
JÓLABLAÐ 1985 VÍKUR-fréttir Lögreglan í Keflavík 50 ára fengu menn fyrir sig ef þuiíti. Samkvæmt reikningum sem hér eru birtir, virðist Lárus hafa tekið til starfa um miðjan júlí 1935. En fyrsta kaupgreiðslan tii hans miðast við seinni hluta júlímánaðar. En undirbún- ingur að starfi lögreglunnar hófst 1. júlí. Þá voru teknir út í Þorsteinsbúð 2 kassar af teiknibólum og 5 arkir af pappír. Ef til vill notað til að hengja upp og flytja opinberar auglýsingar. Eftir það var ýmislegt tekið út til ársloka 1935. Aðal- lega pappír, blek, lakk og merkispjöld. Alls nam kostnaður við þetta „skrif- stofuhald“ tæpurn 13 kr. En nýráðinn lögreglu- þjónn þurfti líka nýjan ein- kennisbúning. Búningur- inn var saumaður hjá And- ersen & Lauth í Reykjavík. Hann hefur sennilega verið staðgreiddur við afhend- ingu. Reikningurinn er dagsettur 18. júlí. Daginn eftir hefur Lárus verið kominn í búninginn og far- inn að spranga um rykugar götur Keflavikur. Einkenn- isfötin kostuðu 190 kr., húfan 34,50 og belti 34 kr. Yfirfrakkinn hljóp á 195 kr. Alls 453,50 kr. Þegar dimma tók þurfti lögregluþjónn vasaljós. A þessum árum loguðu ekki götuljós allan þann tíma, sem dimmt var. Heldur aðeins á kvöldin. 15. sept. snaraði Lárus sér inn á Hæð og keypti hjá Margeiri Jónssyni 3 rafhlöður og eina peru í vasaljós. 7. okt. keypti Lárus aðra rafhlöðu. Fyrir 10 til 12 árum fann ég á Þjóðskjalasafni nokkra reikninga frá Keflavíkur- hreppi. Við fyrstu sýn virt- ust þeir ekkert frábrugðnir öðrum reikningum sem þeir lágu innanum. En við nánari athugun sá ég, að hér voru á ferð merkar heim- ildir. Hér var sem sagt yfir- lit yfir stofnkostnað við fasta löggæslu í Keflavík og Njarðvík. Árið 1934 voru það margir íbúar í Keflavíkur- hreppi, að hreppsnefnd taldi nauðsynlegt að fá hingað lögreglustjóra. Alfreð Gíslason var^ þá skipaður í embættið. Árið eftir, 1935, kom Lárus Salómonsson hingað til starfa sem löpregluþjónn. Hinn fyrsti her um slóðir. Áður gegndu hreppstjórar störfum lögregluþjóna eða Lárus Salómonsson, fyrsti lögregluþjónninn í Keflavík, í fyrsta einkennisklæðnaðinum. Sjóefna- vinnslan hf. sendir starfsmönnum sínum og öðrum Suðurnesjamönnum bestu jóla- og nýársóskir. Enginn lögregluþjónn starfar án launa. Fyrir hálf- an júlímánuð fékk Lárus greiddar 120 kr. En alls 1500 kr. til ársloka. Alls nam kostnaður við lögregl- una fyrsta árið 2.170,67 kr. Mér er sagt að þegar Lárus kom her fyrst væri aðsetur hans á loftinu hjá Guðjóni Guðmundssyni við Túngötu. Fróðlegt væri að heyra frá gömlum Kefl- víkingum um þetta atriði. Lárus Salómonsson var ekki lengi lögregluþjónn hér. Fóru ýmsar sögur um samskipti hans við hrepps- búa. Þóttust sumir eiga honum grátt að gjalda eins og gengur. Hér er þó ekki hægt að tíunda þá atburði, enda er hætt við að ýmsar missagnir gætu slæðst þar með. I sunnudagsblaði Tímans frá árunum 1962- 66, er grein, þar sem Lárus tíundar ýmislegt, sem gerð- ist í viðskiptum hans við Keflvíkinga. I Byggðasafn- inu er til ágæt mynd af Lárusi. Eg var næstum búinn að gleyma þessum gömlu reikningum á Þjóðskjala- safninu, en mundi skyndi- lega eftir hvar þeir lágu. Þess vegna birtast þeir svona seint. Eg hef ekki tíma til að bregða upp myndum úr 50 ára sögu lög- reglunnar í Keflavík. Tii dæmis er mjög fróðlegt að skyggnast eftir því hvenær hún fékk fyrsta bílinn. En það var mjög seint. Eftir 1953 að ég held. Til að minna á þetta merkisafmæli fannst mér rétt að birta þessa gömlu reikninga. Þeir tala sinu máli þó í tölum séu. Skúli Magnússon Reikningur yfir kostnað vegna kaupa á einkennisbúningi.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.