Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Page 14
Viðtal
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2015
heilmikil undirbúningsvinna sem á
sér stað hérna heima,“ segir hann.
Safnað var saman þúsundum ljós-
mynda frá Everest sem notaðar
voru til að búa til þrívíddarmynd af
fjallinu í tölvu. „Við erum með
hugbúnað sem vinnur þannig að ef
þú ert með margar ljósmyndir af
sama hlut frá mörgum vinklum þá
getur hann ímyndað sér hvernig
yfirborðið er í laginu,“ segir hann.
Þrívídd fyrir upplifunina
Ég spyr hvers vegna kvikmyndin
sé í þrívídd. „Baltasar var mjög
hrifinn af hugmyndinni og ég held
það sé alveg hárrétt nálgun. Ég er
í rauninni ekki talsmaður þrívídd-
arbíós yfir höfuð en í örfáum til-
vikum finnst mér vera góð ástæða
fyrir því og að það bæti einhverju
verulegu við upplifunina,“ segir
hann og telur þessa mynd tilvalda
sem þrívíddarmynd. „Tilgangur
myndarinnar var að segja þessa
sögu en nálgunin var upplifunin.
Að fólkið myndi finna fyrir því að
vera þarna, myndi átta sig á
stærðinni á fjallinu og umhverfinu.
Þegar við Balti vorum þarna fljúg-
andi um Everest í þyrlu sat það í
okkur og við hugsuðum, Jesús,
hvað þetta er stórt! Maður sér það
ekki á ljósmyndum hvað þetta er
stórt,“ segir hann en því vildu þeir
miðla til áhorfandans og hentaði þá
þrívíddin vel.
Náladofi í fingurna
Hann segir að ferðalög þangað hafi
verið mikla upplifun en þangað fór
hann að afla gagna og átta sig á
aðstæðum. Myndin sjálf var svo að
mestu tekin upp í ítölsku ölpunum.
Senurnar í Katmandú eru þó tekn-
ar þar og senurnar þegar gengið
er í átt að grunnbúðum eru einnig
teknar í Nepal. „Þegar ég flaug
þarna upp í þyrlu gat ég bara ver-
ið í grunnbúðunum í hálftíma en
þær eru í 5.400 hæð. Ég var farinn
að fá náladofa í fingurna og sjá
stjörnur og þá þurfti að drífa sig
til baka áður en við fengjum há-
fjallaveiki,“ segir hann.
Næsta verkefni erfiðast
Daði er sáttur við útkomuna á
Everest. „Ég er alveg gríðarlega
þakklátur að viðtökurnar séu svona
góðar og höfum við fengið alveg
lygilegt hrós,“ segir hann. Ég spyr
hvort sé hægt að toppa Everest.
„Já, já, það er alltaf ný og ný
áskorun. Næsta verkefni er alltaf
erfiðasta verkefnið. Nú er þetta
búið og erum við aðeins að fylgja
þessu eftir með því að svipta hul-
inni af því sem við gerðum,“ segir
hann en þau vinna að fimm mín-
útna myndbandi sem mun afhjúpa
tölvuvinnuna við Everest.
Nú vinnur hann að sjónvarpsþátt-
unum Trapped, eða Ófærð, og ým-
islegt annað er í deiglunni sem hann
segir of snemmt að segja frá. „Við
erum að lesa í gegnum handrit og
erum aftur komin á það stig að
brjóta niður og finna verð. Það er
stór ákvörðun að skella sér á eina
bíómynd. Þú sérð að það getur tekið
á bilinu 1-3 ár í vinnu,“ segir hann.
Magnað í Feneyjum
Þegar kom að frumsýningu á Eve-
rest var Daði búinn að sjá hana
nokkrum sinnum áður í heild sinni
en myndin var opnunarmynd á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
fyrir skömmu. „Það er allt öðruvísi
þegar maður mætir og það er kom-
in tónlist og fólk en við höfðum
gott tækifæri því við prófuðum
hana áður með áhorfendum. Það
voru 2-3 svoleiðis tækifæri. Við
Balti lágum yfir þessu við öll tæki-
færi fram að frumsýningu,“ segir
hann. Daði segir að ferðin til Fen-
eyja hafi verið stórkostleg. „Það
var alveg ótrúlegt þarna í Fen-
eyjum, að fara þangað og sjá
myndina í þessum sal og sjá fólk
standa upp og klappa. Það var al-
veg magnað. Þá fór maður að
hugsa til baka og þakka fyrir stöð-
una sem maður var í,“ segir hann.
Verður ekki moldríkur
Daði hefur ekki setið auðum hönd-
um síðustu árin en hann hefur
unnið við gerð margra annarra
stórmynda. „Það eru kannski ekki
margir sem átta sig á því að það er
búið að gera tæknibrellur fyrir 17
Hollywood myndir hér á Íslandi,“
en Daði segir samkeppnina vera
mikla. RVX er með umboðsmann í
Los Angeles sem kynnir þau úti í
hinum stóra kvikmyndaheimi.
Þannig geta borist tilboð víða að
en það eru einungis 40 manns að
staðaldri sem vinna hjá RVX.
Ég spyr hvort hann verði mold-
ríkur af vinnu sinni við Everest.
„Nei, nei,“ segir hann og hlær.
„Við fáum greitt fyrir okkar vinnu
en svo fáum við mikið hrós fyrir
okkar hlut og vonandi man fólk
eftir því.“
Dreymir ekki Óskarinn
Ég spyr hvort hann sjái Óskarinn
uppi í hillu hjá sér í framtíðinni.
„Nei, nei, en bara það að þetta er
komið í umræðuna þá upplifi ég
það að okkur tókst vel upp og það
er í raun bara besta staðan,“ segir
hann hógvær og segir sig ekki
dreyma um þessi eftirsóttu verð-
laun. „Ég bara hugsa sem minnst
um það. Það er ótrúlegt hrós þegar
maður heyrir að við erum nefnd
sem kannski ein af tíu sem koma
til greina og er það gríðarlegt
klapp á bakið fyrir verkið.“
Daði bar ábyrgð á öllum tæknibrell-
um í myndinni Everest. Myndin er að
miklu leyti unnin í tölvu og mátti ekk-
ert klikka. „Ef það hefði ekki skilað
sér væri myndin ónýt,“ segir Daði.
Í mynd Baltarsars 2 Guns með Mark Wahlberg og Denzel Washington í aðal-
hlutverkum er fjöldinn allur af atriðum unnin í tölvum og stýrði Daði þeirri
vinnu. Leikarar voru aldrei í hættu því sprengingar voru allar tölvugerðar.
Óskarsverðlaunamyndin Gravity með Söndru Bullock og George Clooney í
aðalhlutverkum er nánast öll tölvugerð. Daði sat í herbergi í sex mánuði með
leikstjóranum Alfonso Cuarón við að stýra öllum myndavélahreyfingum.
The Golden Compass er 250 milljón dollara mynd og stútfull af tæknibrellum
sem Daði hafði yfirumsjón með.
* Það þarf aðrífa verkefniðúr höndunum á mér
til að setja það á
tjaldið. Maður er að
vinna við það dags
daglega að stíga til
baka og skoða skotin
og leita að tækifær-
um til að betrum-
bæta. Og stundum
er erfitt að sleppa.