Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Page 17
4.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Það er um að gera að reima á sig gönguskóna eða fara í stígvélin og skella sér í
gönguferð til að virða fyrir sér haustlitina um helgina. Laufin á trjánum eru byrj-
uð að gulna og roðna og því kjörið að heimsækja skógivaxið útivistarsvæði á
borð við Heiðmörk eða Rauðavatn eða annað svæði í nágrenni þínu.
Gönguferð í haustlitunum
* Lestur er fyrir hugann það semhreyfing er fyrir líkamann. Richard Steele
S
ænsk rannsókn á fimm
milljón manns virðist styðja
þá kenningu að það séu
tengsl milli hæðar og hættu
á að fá krabbamein. Rannsókn vís-
indamannanna frá Karolinska
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi leiddi í
ljós að hávaxnir ættu það frekar á
hættu að fá meðal annars brjósta-
krabbamein og húðkrabbamein.
Niðurstöðurnar leiddu í ljós að
fyrir hverja tíu sentimetra af hæð
fullvaxta manneskju jókst áhættan
á krabbameini um 18% hjá konum
og 11% hjá karlmönnum. Sérfræð-
ingar segja þó að ekki sé tekið til-
lit til margra annarra áhættuþátta
og því þurfi hávaxið fólk ekki að
örvænta.
Fylgst var með stórum hópi full-
orðinna Svía í meira en 50 ár.
Þátttakendur voru fæddir á ár-
unum 1938-1991 og var hæð þeirra
á milli 98 og 228 cm.
Hávaxnar konur voru 20% lík-
legri til að þróa með sér brjósta-
krabbamein og hávaxnari karlar og
konur 30% líklegri til að fá húð-
krabbamein.
„Ástæður krabbameins eru
margþættar og því er erfitt að
segja fyrir um hvaða áhrif niður-
stöðurnar hafa á krabbameinslíkur
hjá einstaklingum,“ sagði Emelie
Benyi, sem stjórnaði rannsókninni.
Meiri húð og fleiri frumur
Eitt af því sem getur valdið þessu
er að hávaxið fólk er hreinlega
með fleiri frumur í líkamanum út
af stærð sinni og þar af leiðandi
auknar líkur á að ein þeirra breyti
sér í krabbameinsfrumu.
„Líkur á húðkrabbameini geta
líka aukist með stærra svæði, meiri
húð, sem tengist hæð,“ hefur BBC
eftir prófessor Dorothy Bennett
frá University of London.
Sarah Williams, hjá krabba-
meinssamtökum í Bretlandi, benti
á að rannsóknin tæki ekki tillit til
annarra þátta eins og reykinga eða
hvort konur færu í brjóstaskoðun
eða ekki. „Alveg sama hver hæð
þín er þá geturðu gert ýmislegt til
að minna líkurnar á krabbameini.
Ekki reykja, minnkaðu áfengis-
drykkju, borðaðu hollt, hreyfðu
þig, vertu í kjörþyngd og njóttu
sólar á öruggan hátt,“ bætti hún
við.
Hávaxnar konur voru 20% líklegri til að þróa með sér brjóstakrabbamein og
hávaxnari karlar og konur 30% líklegri til að fá húðkrabbamein.
Getty Images/iStockphoto
NÝ RANNSÓKN KAROLINSKA SJÚKRAHÚSSINS
Hávaxnir í meiri hættu
á að fá krabbamein Sykurmagn í vinsælum gosdrykkjumgetur verið mjög mismunandi eftirlöndum. Tegundir á borð við Coca-
Cola og Sprite voru á meðal þess sem
kannaðar voru en munað gat allt að
sjö teskeiðum af sykri í dós.
Dós af Coca-Cola í Taílandi inni-
hélt hálfri teskeið minna af sykri en í
Bretlandi. Sprite í Austurríki og Pól-
landi innihélt minni sykur en bresk
útgáfa drykkjarins og má sama segja
um 7Up í Bandaríkjunum og Dr.
Pepper í Þýskalandi.
Mesta magn sykurs var í Sprite í
Taílandi, 12 teskeiðar í einni dós.
Mesti munurinn á sama drykknum
var í Schweppes-tóniki en magnið
var 45 g í 330 ml dós í Bandaríkj-
unum en 16 g í Argentínu.
Góðgerðarsamtökin Action on
Sugar í Bretlandi stóðu fyrir rann-
sókninni sem tók til 274 sætra gos-
drykkja sem framleiddir eru víðs
vegar um heiminn. Samtökin vilja að
framleiðendur setji sér alþjóðlegt
takmark um að minnka sykur í gos-
drykkjum.
Sykurmagn mismun-
andi eftir löndum
Mesti sykurinn var í Sprite í Taílandi,
12 teskeiðar í einni dós.
Sumir láta sér ekki nægja að vita
af tengslum reykinga við krabba-
mein og finnst það ekki næg hvatn-
ing til að hætta, ekki síst ungu
fólki. Þetta sama fólk tekur ef til
vill nær sér að reykingar eru mjög
slæmar fyrir húðina. Já, það þarf
ekki mörg ár þangað til það sést
utan á þér að þú reykir.
Telegraph fékk Bresku húðsam-
tökin til að telja upp nokkra ókosti
þess að reykja fyrir húðina.
„Húðin, rétt eins og önnur líffæri
í líkamanum getur skemmst vegna
reykinga. Ef þú vilt eldast vel og
koma í veg fyrir að ýmis húðvanda-
mál verði verri, er best að reykja
ekki. Ef þú reykir, íhugaðu vand-
lega að hætta ef þú vilt að húð þín
líti út fyrir að vera heilbrigð og sé í
góðu standi,“ sagði húðlæknirinn
Anjali Mahto, talsmaður samtak-
anna.
Hún útskýrir að reykingar flýti
fyrir öldrun húðarinnar með því að
framleiða ensím og minnka súrefni
sem hvorttveggja minnkar teygjan-
leika húðarinnar. Margar hrukkur í
kringum munn eru þekkt einkenni
reykingafólks.
Til viðbótar geta reykingar vald-
ið því að sár séu lengur að gróa,
svo eitthvað sé nefnt.
Reykingar hafa áhrif á húðina eins
og önnur líffæri.
AFP
Reykingar eru slæmar
fyrir húðina
Þann 22. október drögum við út
heppinn áskrifanda sem hlýtur að gjöf
sjálfskiptan Suzuki Vitara GLX sportjeppa
að verðmæti 5.440.000 kr.
í áskriftarleik Morgunblaðsins.
mbl.is/askriftarleikur