Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Síða 18
H
jólreiðamenn athugið,
sérstaklega hjólandi
áhugamenn um mynd-
list á leið til Eindho-
ven í Hollandi! Nú er hægt að
beita hjólstigna fáknum á einn
kílómetra myndlistar; túlkun ungs
hollensks listamanns á Stjörnu-
nótt (The Starry Night), snilld-
arverki meistara Vincents Van
Goghs.
Van Gogh dvaldi eitt ár, af
fúsum og frjálsum vilja, á geð-
veikrahæli í bænum Saint-
-Rémy-de-Provence í Suður-
Frakklandi og gerði útsýnið úr
austurherbergi íbúðar sinnar
ódauðlegt. Fullyrt er að hann
hafi málað myndina 16. til 18.
júní 1889.
Tveimur mánuðum eftir útskrift
af hælinu stytti málarinn sér
reyndar aldur en það er auka-
atriði í þessari umfjöllun.
Daan Roosegaarde, listamað-
urinn ungi, vill með þessum
hætti heiðra minningu landa síns
og starfsbróður. Þeir sem hjóla
spölinn verða að sjálfsögðu að
meta hvort það hafi tekist vel en
upplýst leiðin virkar óneitanlega
stórbrotin á ljósmyndum. Hleypt
var inn á listaverkið á síðasta ári
og eftir því sem fréttir herma er
staðurinn vinsæll meðal hjólreiða-
manna.
Vígsla þessa magnaða hjólreiða-
stígs markaði í raun upphaf sér-
staks Van Goghs-árs, en í ár eru
liðin 125 ár frá því skáldið hvarf
úr heimi hér og hélt með pensil-
inn og trönurnar til himna. Hald-
ið er upp á tímamótin með
margvíslegum hætti í Hollandi,
Belgíu og Frakklandi.
Í hjólför meistarans: Stígurinn í Eindhoven þar sem hægt er að hjóla og hugleiða Van Gogh um leið.
EINSTÖK HJÓLALEIÐ
Hjólað í pensilför Van Goghs
UNGUR HOLLENSKUR MYNDLISTARMAÐUR HEIÐRAR
MINNINGU LANDA SÍNS, MEISTARA VAN GOGHS, MEÐ
ÓVENJULEGUM EN SKEMMTILEGUM HÆTTI.
Stjörnunótt (The Starry night) sem Van Gogh er sagður hafa málað í júní 1889.
Ferðalög
og flakk *Flugvöllurinn í Newcastle hefur verið valinnbestur þeirra stóru á Bretlandi, þriðja árið íröð af tímaritinu Which? Travel. Blaðið kann-aði hug farþega sem voru beðnir um að metaýmsa þætti. Alls voru rúmlega 11 þúsundspurðir. Fjórar milljónir fara um völlinn í New-castle og voru 77% ánægð. Flugstöð númer 5 á
Heathrow varð í öðru sæti, Stanstead- og Lu-
ton-völlur í London þóttu lakastir.
Newcastle-flugvöllur sá besti
Talsvert ónæði getur skapast af því þegar ferðatöskur eru dregnar
um stræti, sérstaklega ef hópar fólks ganga um á öllum tímum sólar-
hrings með háværar töskur.
Í Feneyjum var um það rætt á síðasta ári að hreinlega banna töskur
með hörðum dekkjum sem valda mestum hávaða og leyfa aðeins
töskur með loftfylltum dekkjum eða dekkjum úr mjúku gúmmíi eða
plasti. Ekki varð þó úr að þetta yrði bannað, en borgaryfirvöld þar
hafa þó vakið máls á þessum vanda.
Hljóðmengun vegna rúllandi farangurs er líklega óvíða meiri en í
Feneyjum enda talið að 60 þúsund manns sæki borgina heim á hverj-
um degi. Sífelldur niður sem fylgir ferðamönnum með töskur á leið
til og frá hótelum veldur íbúum borgarinnar hugarangri og raskar
jafnvel svefni. Borgaryfirvöld hafa einnig af því töluverðar áhyggjur að
töskurnar eyðileggi marmaratröppur, gamla steinlagða stíga og
göngubrýr í gamla borgarhlutanum.
Borgarstjórinn í Berlín hefur einnig lýst áhyggjum sínum í þýskum
fjölmiðlum af hljóðmengun vegna háværra ferðatöskuhjóla í borginni.
Berlín er þó aðeins hálfdrættingur á við Feneyjar í ferðamannafjölda
en um 11 milljónir ferðamanna koma til Berlínar ár hvert á móti 22
milljónum sem heimsækja Feneyjar.
FENEYJAR OG BERLÍN
Háværar ferðatöskur óvinsælar
Ferðatöskur með mjúkum, loftfylltum
gúmmídekkjum gætu orðið allsráðandi í
framtíðinni enda finna fjölmennir ferða-
mannastaðir æ meira fyrir hávaða.
Morgunblaðið/Eggert
GOLF Á KANARÍ 16.FEB. – 1 MARS. 2016
Skemmtileg golfferð með hinum
vinsæla Sr. Hjálmari Jónssyni. Spilað
er á Meloneras og Maspalomas golf-
völlunum. Gist á IFA Buenaventura
á ensku ströndinni. 336.500 KR.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
VERÐ FRÁ
14 NÆTUR