Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2015
Ferðalög og flakk
M
exíkóbúar segjast búa í miðju heimsins, og benda á að
landið sé þannig staðsett að nokkurn veginn jafnlangt er
til allra heimshluta. Þrátt fyrir þetta virðist Mexíkó vera
ögn utan alfaraleiðar, í það minnsta fyrir íslenska ferða-
menn, og er það miður því Mexíkó er mergjað land sem býr að
heillandi menningu og hlýlegu fólki.
Mexíkóborg ein og sér er vel þess virði að leggja á sig langt ferða-
lagið. Þessi risastóra milljónaborg, sem situr í rösklega 2.200 metra
hæð yfir sjávarmáli, er sannkölluð menningarborg þar sem má gæla
við öll skilningarvitin.
Ekki bara kaktusar og bandítar
Í kvikmyndunum og fréttum er oft dregin upp frekar drungaleg
mynd af Mexíkó og mætti halda að þar sé lítið annað að finna en
eymd og glæpi. En það er helst í suður- og norðurhluta landsins að
glæponarnir eru að gera óskunda. Mexíkóborg, sem er í landinu
miðju, er í dag jafn örugg og friðsöm og aðrar stórborgir og svo
lengi sem ferðalangar sýna hæfilega aðgát þurfa þeir ekkert að óttast.
Á nokkrum dögum má sjá það helsta, og þó að borgin sé mikið
flæmi þá eru helstu viðkomustaðir ferðamanna á frekar litlu svæði.
Upplagt er að byrja heimsóknina á Zócalo, miðbæjartorginu stóra í
elsta og mest sjarmerandi hluta borgarinnar. Alltaf er eitthvað um að
vera á torginu, og með heppni má þar finna særingamenn sem dansa
í fullum skrúða og galdra burtu ógæfu og vesen fyrir nokkra pesósa.
Við einn enda torgsins er dómkirkjan, heillandi mannvirki þar sem
evrópski kirkjubyggingastíllinn blandast mexíkóskum áhrifum. Mexíkó-
arnir eru bæði rammkaþólskir en líka miklir lífsnautnamenn svo alltaf
er fólk í kirkjunni, tilbúið að fara með nokkrar Maríubænir fyrir
uppátækin síðast þegar ástríðurnar náðu yfirhöndinni.
Seint á 8. áratugnum gerðist það að menn sem voru að leggja raf-
magnsleiðslur norðaustur af Zocalo grófu sig niður á rústir, sem
reyndust vera leifar Tenochtitlan-píramídans. Í framhaldinu var allt
svæðið grafið upp og er nú stórt opið safn sem vel er vert að skoða.
Gott er að gefa sér tíma til að rölta um gamla miðbæinn í róleg-
heitum, kaupa nokkra minjagripi og njóta götulífsins. Mörgum finnst
það setja punktinn yfir i-ið að kíkja á Gran Hotel, við suð-vesturenda
Zocalo, og tylla sér á verönd veitingastaðarins á efstu hæð hótelsins.
Þaðan er óviðjafnanlegt útsýni yfir torgið og gott að slaka á í smá
lúxus.
Frá Zócalo, eftir að hafa skoðað dómkirkjuna og Tenochtitlan-safnið,
er best að þræða göturnar í vesturátt, að óperuhúsi borgarinnar,
Palacio de Bellas Artes. Er ógalið að kaupa miða á óperuuppfærslu
og enda daginn á að sjá hvernig Mexíkóarnir túlka Puccini eða Moz-
art.
Söfn og hallir
Vestar í borginni er þjóðminjasasfnið, Museo Nacional de Antropologia
við breiðstrætið Reforma. Safnið skartar einstökum fornminjum um
merkilega sögu þjóðarinnar og viðkomustaður sem ekki má sleppa.
Þaðan er svo stutt að fara yfir til Castillo de Chapultepec, sem
stendur á lítilli hæð umkringdur stórum og fallegum almenningsgarði.
Þessi 230 ára gamli kastali hefur gegnt ýmsum hlutverkum, s.s. sem
keisarahöll Maximillians I, sem stjörnuskoðunarstöð og hermannaskóli.
Til norðvesturs er eitt nýjasta safn borgarinnar, Soumaya-safnið.
Byggingin sjálf er fallegt dæmi um nútíma arkitektúr, en safnið var
byggt af auðjöfrinum Carlos Slim, einum af ríkustu mönnum heims,
til minningar um konu sína Soumaya Domit sem lést árið 1999. Safn-
kosturinn þykir vera á heimsklassa með ógrynni af verkum eftir flesta
merkustu listamenn sögunnar.
Frida og Trotsky
Síðan þarf að taka frá eins og einn dag til að skoða þrjú merkileg
hús í suðurhluta borgarinnar. Fyrir það fyrsta er Caza Azul, Bláa
húsið, þar sem Frida Kahlo bjó. Þar er í dag safn um líf og list
listakonunnar og gaman að sjá hvernig hún bjó.
Ekki langt þar frá er Anahuacalli-safnið, sem eiginmaður Frídu,
Diego Rivera, lét byggja en var ekki klárað fyrr en að listamanninum
látnum. Í safninu eru mexíkóskir menningargripir sem og sýning til-
einkuð Rivera.
Leon Trotsky-safnið er á svipuðum slóðum. Safnið er í húsi þar
sem marxíski byltingarsinninn bjó í útlegð eftir að hafa lent í ónáð
hjá Stalín. Eins og frægt er var Trotsky ráðinn bani á þessum stað
af útsendara Stalíns sem beitti ísexi til verksins.
LITRÍK SAGA Í FORTÍÐ OG NÚTÍÐ
Galdrar
Mexíkóborgar
HÖFUÐBORG MEXÍKÓ ER MIKIL MENNINGARBORG,
FULL AF EINSTÖKUM SÖFNUM OG MEÐ GÖTUR
SEM IÐA AF LÍFI OG GLEÐI.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Ef þess er nokkur kostur ættu ferðalangar að tímasetja heimsókn-
ina til Mexíkó þannig að þeir geti upplifað Día de los Muertos.
Þessi merkilega hátíð blandar saman asteskum og kristnum hefð-
um og lendir á sömu dögum og kaþólska kirkjan heldur allraheil-
agramessu, í lok október eða byrjun nóvember.
Íslendingum gæti þótt undarlegt, við fyrstu sýn, að sjá með hve
mikilum galsa og gleði Mexíkóarnir minnast þess hvað lífið er
hverfult. En við nánari skoðun kemur í ljós að hátíðin snýst ekki
um að fagna dauðanum, heldur gleðjast fyrir lífinu – á meðan það
endist.
Verslanir fyllast af hauskúpusælgæti og heimili eru skreytt með
styttum og skrauti sem minnir á dauðann. Börnin fara í grímubún-
inga og unglingarnir hafa það fyrir sið að mála á sig hauskúpugrím-
ur og skemmta sér á torgum og skemmtistöðum.
Merkilegast af öllu er að fylgjast með mannlífinu i kirkjugörð-
unum. Þar hópast stórfjölskyldurnar saman og halda veislu ofan á
gröfum látinna ættingja. Heimalöguðum mat af bestu sort er raðað
á legsteininn og tekílað teigað. Maríachi-bönd eru á ferðinni og
syngja og spila líflega tónlist yfir matnum, gegn hóflegri þóknun.
HÁTÍÐ TIL HEIÐURS ÞEIM LÁTNU
Dia de los Muertos er hátíð sem gæti komið Íslendingum spánskt fyrir sjónir.
Ljósmynd / Wikipedia - Tomascastelazo (CC)
Flugleitarvélarnar mæla með því
að fara með Icelandair til New
York eða Toronto og áfram
suður til Mexíkóborgar með
Aeromexico eða Delta. Má þó
reikna með góðum tengingum
til Mexíkóborgar frá flestum
áfangastöðum Icelandair og
WOW Air á austurströnd
Bandaríkjanna.
Upplagt væri, og ætti ekki að
bæta miklum kostnaði við ferða-
lagið, að lengja ferðina í annan
endann með því t.d. að taka
nokkurra daga stopp í New
York, Boston eða Orlando.
HVERNIG KEMSTU
TIL MEXÍKÓ?