Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 26
Morgunblaðið/Eggert
„Margir gleyma því að
hollustan hefst raun-
verulega heima,“ segir
Sigrún Þorsteinsdóttir.
S
igrún Þorsteinsdóttir, jafnan kennd við matar-
blogg sitt Café Sigrún, segir chilipottréttinn sem
hún hefur uppskrift að vera einkar bragðgóðan,
mildan og drjúgan en sjálf gerir hún yfirleitt
stóran skammt af honum og á í allavega tvo daga eða
frystir til að eiga síðar. Réttinn eiga allir að geta borðað
þar sem hann inniheldur ekkert sem veldur ofnæmi og
er einnig vegan og mjólkurlaus.
Uppskriftin er úr glænýrri bók Sigrúnar sem kallast
einfaldlega Café Sigrún – hollustan hefst heima. „Í bókinni
eru um 200 nýjar uppskriftir af öllum stærðum og gerð-
um, allt frá plokkfiski og upp í hráfæðiskökur. Þær inni-
halda skýrar leiðbeiningar og henta því þeim sem eru að
byrja í eldhúsinu. Einnig er fróðleikur um óþol og ofnæmi,
og hver uppskrift er merkt hvað ofnæmi/óþol varðar og
eftir því hvort hún er vegan. Uppskriftirnar eru sumar frá
Afríku, þeim löndum sem ég hef ferðast til, en annars eru
þær samansafn af þróun síðustu ára,“ segir Sigrún.
Af uppskriftum bókarinnar segist Sigrún halda mikið
upp á chilipottréttinn sem hún gefur uppskrift að. „Og
súpu sem fólk hefur ferðast allt frá Kenía í Afríku til að
bragða á aftur! Svo er einnig að finna súkkulaðiköku
sem ætti að koma með varúðarorðum því hljóðin sem
koma úr fólki við að borða hana eru beinlínis dónaleg,“
segir Sigrún og hlær.
Sigrún er einn elsti matarbloggari landsins og hefur
ávallt verið með hollustuna í fyrirrúmi. Finnst henni
fólk vera almennt orðið meðvitað um gildi þess að
snæða hollan mat? „Mér finnst fólk almennt nokkuð
meðvitað um mataræði en allt of margir gleyma því að
hollustan hefst raunverulega heima. Of margir kaupa
tilbúinn mat og hita hann upp í flýti og borða jafnvel yf-
ir sjónvarpinu. Þó að ekki sé verið að elda þriggja rétta
máltíð að kvöldi, eðlilega, þegar allir eru þreyttir, þá er
betra að henda í einfalda eggjaköku, eða jafnvel útbúa
grænmetispottrétt eða súpu um helgi til að hita upp síð-
ar í vikunni. Mér finnst líka gott að sjá að meira er tal-
að um að alls konar útlit sé bara jákvætt, við erum von-
andi að færast úr því að aðeins ein líkamsgerð sé „hin
eina rétta“. Við verðum að læra að tala jákvætt um
holdafar fólks. Þó að sumir þurfi að létta sig heilsunnar
vegna er aldrei í lagi að tala niður til þeirra sem líta út
svona eða öðruvísi.“
Sigrún bætir við að það sem einna helst trufli sig við
mataræði fólks séu öfgar sem og átak hvers konar sem
fólk fer í. „Ég hef lagt mikla áherslu á það alveg frá
upphafi að orðin megrun, átak, feitur og mjór eru ekki
til á vefnum mínum. Enda eiga þau ekkert skylt við
heilbrigt mataræði eða heilbrigða sál í hraustum lík-
ama.“
VETRARMATUR Í STÓRUM SKAMMTI
Réttur til að gera mikið af og frysta
Matur
og drykkir
Stórar uppskriftir
*Sigrún Þorsteinsdóttir bendir á hér fyrir neðanað oft er lítill tími til að elda á virkum dögumog sniðugt að gera stórar uppskriftir um helgarog frysta. Meðal þess sem þægilegt er að eldamikið af og skella í frystinn eru alls kyns súpur,grænmetis- sem kjötsúpur, stórar lasanjaupp-skriftir, nautagúllas og hvers kyns pottréttir;
grænmeti og kjöt; kjötbollur líka og grænmet-
isbollur sem tímafrekt er að gera.
Fyrir 3-4
Reiknið þyngd niðursoðinna bauna áður en
vökvinn er síaður frá.
1 græn paprika
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
1 hvítlauksrif
1 msk. kókosolía
1 dós (400 g) plómutómatar
1 dós (400 g) augnbaunir (blackeye beans)
1 dós (230 g) maískorn
1 dós (400 g) nýrnabaunir
(ekki sía vökvann frá)
1 tsk. timían
1 tsk. broddkúmenfræ (cumin seeds)
1 tsk. kóríander
½ tsk. paprika
¼ tsk. chilipipar
½ gerlaus grænmetisteningur
2 dropar stevía, án bragðefna,
eða 1 msk. agavesíróp
1 dós kókosmjólk
salt (Himalaya- eða sjávarsalt)
svartur pipar
Skerið paprikurnar í helminga og fræhreinsið.
Skerið þær svo í fremur litla bita. Afhýðið rauð-
laukinn og hvítlauksrifið og saxið smátt. Hitið
kókosolíuna í pottinum og léttsteikið hvítlaukinn,
rauðlaukinn og paprikurnar í 5-7 mínútur eða
þar til grænmetið fer að mýkjast. Síið vatnið frá
augnbaununum og maískorninu og hellið í pott-
inn ásamt plómutómötunum. Bætið einnig
nýrnabaununum ásamt vökvanum úr dósinni í
pottinn. Látið malla við vægan hita í um 30 mín-
útur undir loki og bætið þá timíani, broddkú-
menfræjum, kóríander, papriku og chilipipar út í
ásamt grænmetisteningnum. Bætið einnig kókos-
mjólk og stevíu út í og bragðbætið með salti og
pipar. Látið malla áfram í um 30 mínútur í opnum
potti. Smakkið og bragðbætið með salti og pipar
eftir þörfum.
Nota má svartar baunir (black beans/black
turtle beans) í staðinn fyrir augnbaunir.
Chilipottréttur
MATARBLOGGARINN GÓÐKUNNI SIGRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR, HEILINN Á BAK VIÐ CAFÉ SIGRÚN, GEFUR ÚT SÍNA FYRSTU
MATREIÐSLUBÓK UM ÞESSAR MUNDIR. HÚN SEGIR ALLAR ÖFGAR ÓÞARFAR Í MATARÆÐI ÞÓTT HOLLT SÉ.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is