Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Qupperneq 31
4.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Álfrún Helga Örnólfsdóttir kennir á jóganámskeiðum fyrir 8-11 ára
börn í Jógasetrinu sem nú er flutt í Skipholt. Nýtt námskeið í þeim
aldurshópi hófst á föstudag kl. 16.20. Á þriðjudaginn kl. 16.10 byrjar
síðan námskeið fyrir 12-14 ára. Kennari er Estrid Þorvaldsdóttir.
Jóganámskeið fyrir börn*Að geta hugsað öðruvísi í dag en ígær skilur á milli þess vitra ogþess einþykka.
John Steinbeck
Hanna Kristín og Hjalti Kr.Melsted eiga saman tvodrengi og er yngri son-
urinn, Mikael Björn, með sértæka
málhömlun. Um tveggja ára aldur
var hann greindur með talsverða
sértæka málhömlun og hófst þá
talþjálfun. Foreldrarnir lærðu að
nota tákn með tali en fannst lítið
til af kennsluefni sem væri bæði
auðvelt í notkun og skemmtilegt.
Þau brugðu á það ráð að fara af
stað með útgáfu bóka og eftir
mikla vinnu varð til sjö bóka sería
um fígúruna MiMi, en Hjalti hann-
aði og teiknaði bækurnar en
Hanna Kristín skrifaði textann og
eru þær einnig fáanlegar sem raf-
bækur.
Fór með MiMi til USA
Hanna Kristín er nýkomin heim
frá Stanford-háskóla í Kaliforníu
þar sem hún lagði stund á nám
sem tengdist heildrænni sam-
skiptafærni og hagfræði en hún
hefur stundað nám í heilsu-
hagfræði. Í Bandaríkjunum kynnti
hún MiMi fyrir bandarískum fag-
aðilum og fékk frábærar und-
irtektir. Hún fékk til liðs við teymi
sitt prófessora við Stanford-háskóla
og bandarískan fagfjárfesti sem
ætla að vinna með þeim í áfram-
haldandi þróun og kynningu á
verkefninu. MiMi hefur því og mun
áfram koma að gagni fleiri
börnum en íslenskum í
framtíðinni.
Lærum af börnunum
Hanna Kristín segir mikilvægt að
læra af börnunum. „Við sköpum
sögur í kringum táknin, en áður en
þetta kom til var notast við efni frá
Greiningarstöð ríkisins sem miðaði
að mestu að því að kenna for-
eldrum. Það sem ég lærði síðan úti
og fékk staðfestingu á í náminu er
að við eigum ekki endilega bara að
kenna börnunum samskiptaferlið,
heldur eigum við að læra af þeim.
Við þurfum að lesa í hvað þau eru
að segja okkur, frekar en að við
segjum þeim hvernig þau eiga að
tjá sig. Börnin læra með því að
kanna umhverfið og upplifa og
skynja þannig að ég kenni for-
eldrum meira að lesa í börnin,
skynja hvernig börnin eru að tjá
sig án orða,“ segir Hanna Kristín.
Mikilvægt að byrja snemma
Málhömlun spannar stóran hóp
barna og hvert barn er auðvitað
sérstakt og oftar en ekki er mál-
hömlun hluti af eða fylgifiskur ann-
arra vandamála útskýrir Hanna
Kristín. „Við sjáum málhömlun hjá
börnum sem eru á einhverfurófinu,
börnum með Downs-heilkenni, fjöl-
fötluðum börnum, tvítyngdum
börnum og ívið fleiri hópar barna
þurfa virkilega á sértækri mál-
örvun að halda. En mik-
ilvægt er þó að muna
að tæknin nýtist öll-
um börnum sem
gagnlegt og
skemmtilegt tól til málörvunar. Til-
gangurinn með að kenna tákn með
tali er að talið muni með tímanum
taka við og þá verði hægt að sleppa
táknunum,“ segir hún. Hanna Krist-
ín segir mikilvægt að byrja sem
fyrst að kenna tákn með tal-
i.„Snemmtæk íhlutun er mikilvæg,
því fyrr sem gripið er inn í til að
aðstoða börn, því betra,“ segir hún.
Í tilfelli sonar þeirra var lítil sem
engin hljóðmyndun við þriggja ára
aldur. Foreldrarnir hafa unnið
markvisst með honum og kenndu
honum tákn með tali. Hann er nú
fimm ára og altalandi og kominn
með mikinn orðaforða þó svo að
hann rugli saman sumum hljóðum.
Hanna Kristín er ekki í nokkrum
vafa um að þessi aðferðafræði hafi
hjálpað syni hennar.
Námskeið úti um allt land
Hanna Kristín fer nú um allt land
og heldur námskeið fyrir leikskóla-
kennara, leiðbeinendur og foreldra
þar sem hún kennir þessa nýju leið
til að kenna tákn með tali sem
byggð er á aðferðafræðinni sem
hún hefur þróað. Á námskeiðunum
eru samskipti æfð með því að not-
ast við náttúruleg tákn, bendingar,
látbragð og svipbrigði til að bæta
máltjáningu og samskipti við börn.
MiMi vaknar til lífsins
Næsta skref hjá MiMi Creations er
samstarf við Skema þar sem unnið
er að gagnvirkum tölvuleikjum fyr-
ir börn. Hjá Skema eru börn á
aldrinum 6-16 að læra að forrita og
Hanna Kristín og Rakel Sölvadótt-
ir hjá Skema telja að börn viti bet-
ur hvernig sé best að byggja upp
tölvuleiki fyrir 2 til 5 ára, en við
sem eldri erum. Því verði samstarf
milli Skema og MiMi Creations í
raun börn að kenna fullorðnum
hvernig eigi að kenna börnum.
„Næsta skref er að vekja MiMi
til lífsins og jafnvel að persónugera
hann þannig að hvert barn hefur
sinn MiMi,“ segir Hanna Kristín.
MIMI VAKNAR TIL LÍFSINS Í GAGNVIRKUM TÖLVULEIK
MiMi gerir
tákn með tali
skemmtilegt
Hanna Kristín bendir á að snemmtæk íhlutun sé mikilvæg, því fyrr sem gripið sé inn í til að aðstoða börn, því betra.
FYRIRTÆKIÐ MIMI CREATIONS HEFUR GEFIÐ ÚT SJÖ BÆKUR
SEM KENNA TÁKN MEÐ TALI. BÆKURNAR ERU HUGAR-
FÓSTUR FORELDRA BARNS MEÐ SÉRTÆKA MÁLHÖMLUN.
ÞÆR AUÐVELDA FORELDRUM OG FAGAÐILUM AÐ KENNA
BÖRNUM TÁKN MEÐ TALI Á SKEMMTILEGAN OG AUÐ-
VELDAN MÁTA. FYRIRHUGAÐ ER AÐ BÚA TIL GAGN-
VIRKAN TÖLVULEIK Í SAMSTARFI VIÐ SKEMA.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
* Tilgangurinnmeð að kennatákn með tali er að
talið muni með tím-
anum taka við og
þá verði hægt að
sleppa táknunum.
gefur út sérblaðið
Vertu viðbúinn vetrinum
fimmtudaginn 16. október
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
til kl. 16, mánudaginn 12 okt.
Vetrarklæðnaður á börn og fullorðna
Skórfatnaður fyrir veturinn • Snyrtivörur
Flensuvarnir. • Ferðalög erlendis
Íþróttaiðkun og útivist • Vetrarferðir
innanlands • Bækur, spil og fl.
Námskeið og tómstundir • Leikhús,
tónleikar og ýmisleg afþreying.
Skíðasvæðin hérlendis. • Mataruppskriftir
Ásamt fullt af öðru spennandi efni!
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is