Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2015 Græjur og tækni Hugsanleg finnst einhverjum að meira en nóg sé aðgerast á farsímamarkaði og má til sanns vegarfæra því sífellt bætist við í símaflóruna, maður er varla kominn með nýja símann í hendurnar þegar hann er orðinn úreltur hvað varðar tækni eða útlit. Í eina tíð var þó miklu meira um að vera á símamarkaði, í raun er málum svo háttað í dag að tveir stærstu framleiðendur á símamarkaði eru svo miklu stærri en þeir sem næst koma að samkeppnin er oft meiri í orði en á borði. Forðum daga, áður en snjallsíminn kom til sögunnar, var öllu líflegra á símamarkaði, fleiri sem kepptu og jafnræðið meira, þó að Nokia hafi síðan lagt undir sig markaðinn – tímabundið. Í símaauglýsingum frá miðjum tíunda áratug síð- ustu aldar má þannig sjá sím- tæki frá Alcatel Ascom, AT&T, Beocom, Bosch, Ericsson, Hag- enuk, Mobira, Orbitel, Philips, Pioneer og Simonsen, svo dæmi séu tekin. Mörg þessi fyrirtæki eru ekki til lengur og ekki nema eitt enn að framleiða farsíma svo ég viti: Alcatel. Alcatel One Touch, sem sjá má hér fyrir neðan, naut mikillar hylli á sínum tíma, en svo hvarf hann af markaði hér þó að fyrirtækið hafi haldið áfram að framleiða síma og sé enn að, sem sannast á nýjum snjallsíma, Alcatel OneTouch Idol, sem birtist hér á landi um daginn. Þó að það sé nánast strípað Android á símanum hafa Alcatel-bændur gert ýmsar breytingar á stýrikerfinu til að síminn skeri sig aðeins úr og sumt er mjög snjallt, til að mynda það að ekki skiptir máli hvernig síminn snýr, þ.e. hægt er að hafa endaskipti á honum og skjárinn mun samt snúa rétt. Þetta kemur til að mynda í góðar þarfir þegar maður tekur símann upp úr vasanum til að svara símtali, því hann snýr þá alltaf rétt til að tala í hann, enda er einn hátalari á hvorum enda og sömuleiðis eru hljóðnemarnir tveir. Þetta hljómar ekki eins og merkileg viðbót, en er eitt af því sem gerir símann eins skemmtilegan og raun ver vitni. Annað í þá áttina er að til þess að læsa símanum, þ.e. slökkva á skjánum, er nóg að drepa tvívegis snöggt á skjáinn og þá slokknar á skjánum og síðan er hægt að kveikja á skjánum á sama hátt. Alcatel er líka með eigin hugbúnaðarsafn, OneTouch Play, sem dregur dám af Google Play, ekki ósvipað og forritasafn Samsung, Samsung Apps. Þar er ýmsan hug- búnað að finna sem er ýmist sniðinn fyrir OneTouch- símana eða ókeypis fyrir þá gerð síma, Reyndar geta all- ir eigendur Android-síma sett OneTouch Play upp hjá sér, því hægt er að sækja forritið á bak við það á vef- setur símans, http://www.alcatelonetouch.com/, eða með því að leita að OneTouch Play á Google. Þess má geta að Alcatel framleiðir ekki bara margar gerðir af OneTouch-símum, heldur líka snjallúr, tvær gerðir af spjaldtölvum, nokkrar gerðir af hefðbundnum farsímum og heimasímum og ferðabeina af ýmsum stærð- um og gerðum. Svo má líka nefna að Alcatel hefur fram- leitt síma fyrir símafyrirtæki eins og Vodafone víða um heim. Síminn er annars 152,7 x 75,1 x 7,4 mm að stærð og 141 g að þyngd, nettur og léttur. Hljómur í símanum er óvenjugóður enda eru tveir JBL-hátalarar á framhlið hans, en einnig fylgja JBL-heyrnartól. Miðað við útfærslu er síminn á mjög góðu verði, svo ekki sé meira sagt. Hann kostar 62.990 kr. hjá Opnum kerfum, en verður örugglega ódýrari hjá símafyrirtækj- unum. ALCATEL SNÝR AFTUR ÞÓ AÐ MIKIÐ SÉ UM AÐ VERA Á SÍMAMARKAÐI HÉR Á LANDI ERU FRAMLEIÐENDUR MUN FLEIRI EN OKKUR GRUNAR SEM SANNAST Á NÝJUM ANDROID-SÍMA FRÁ ALCATEL, ALCATEL ONE- TOUCH 3 IDOL, EN SÍMAR ÞAÐAN HAFA EKKI SÉST HÉR ÁRUM SAMAN. * Myndavélin á baki er 13 MP með Sonylinsu, en 8 MP myndavél er framan á sím- anum. Báðar eru þær góðar og því er hag- anlega fyrir komið að taka sjálfsmynd, eftir að kveikt er á skjánum er flýtihnappur fyrir þá sjálfsmyndaóðu, en á skjánum er líka flýtihnappur fyrir hefðbundna myndatöku. * SIM-kortið er Micro-SIM og í sleðanum fyrir SIM-kortið er líka gertráð fyrir MicroSD-minniskorti og því hægt að auka minni símans umtals- vert eða allt upp 128 GB. Gagnaminni í símanum er annars 16 GB og vinnsluminni 2 GB. Til er útgáfa af símanum sem gerð er fyrir tvö SIM- kort, en þá er ekki pláss fyrir minniskort. Ekki veit ég hvort sú útgáfa verður til sölu hér. Græjan ÁRNI MATTHÍASSON Þennan kannast væntanlega margir við, enda var hann vinsæll fyrir tveimur áratugum. Nýi sím- inn er heldur tækni- legri. * Síminn fer einkar vel í hendi, hann er þunnur og létt-ur og bakið á honum þægilega stamt viðkomu þó að það sé úr plasti. Ekki er hægt að losa það af. Skjárinn er 5,5", bjartur og góður, með upplausnina 1080 x 1920 dílar sem gefur 401 ppi. Á símanum er Android Lollipop 5.0, reynd- ar 5.0.2 Örgjörvinn er átta kjarnar samanlagt. Með Nike Training Club er hægt að gera sitt eigið líkamsræktar- plan eða hlaða niður tilbúnum æfingakerfum og stilla eftir getu hvers og eins. Smáforritið er til fyrir Apple og Android. Einkaþjálfun í símann Morgunblaðið gefur út sérblað um Tísku & förðun föstudaginn 9. október Fjallað verður um tískuna haust/vetur 2015 í förðun, snyrtingu, fatnaði og fylgihlutum auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. PÖNTUN AUGLÝSINGA: til kl. 16 mánudaginn 5. október. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.