Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Side 33
4.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
* Tækni er bara tæki. Til að hvetja börnáfram og fá þau til að vinna saman erkennarinn mikilvægastur.
Bill Gates
B
andaríska geim- og tækni-
fyrirtækið SpaceX komst í
sögubækurnar árið 2012
þegar fyrirtækið var
fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta
á loft birgðum til Alþjóðlegu geim-
stöðvarinnar, ISS.
SpaceX ætlar ekki að láta þar
við sitja og stefnir enn og aftur á
spjöld sögunnar. Eigandi fyrir-
tækisins, Elon Musk, hefur gefið
það út að mannaðri geimflaug
verði skotið á loft árið 2017. Geim-
flaugin sem ber heitið Crew Dra-
gon er hönnuð til að ferja geimfara
til og frá Alþjóðlegu geimstöðinni
og yrði þá sú fyrsta sem alfarið er
hönnuð af einkafyrirtæki til að
gera það.
Frá því að Musk tilkynnti áætl-
anir SpaceX um mannaðar geim-
ferðir hafa geimáhugamenn beðið
spenntir eftir því að sjá hvað fyr-
irtækið ætlar að bjóða upp á en
Musk er þekktur fyrir allt annað
en klunnalegan og gamaldags stíl.
Núna þurfa áhugasamir ekki að
bíða lengur, en SpaceX hefur sent
frá sér tvö myndbönd og nokkrar
myndir af því hvernig geimfar fyr-
irtækisins mun líta út að innan og
verður að segja að geimfarar fram-
tíðarinnar eiga eftir að ferðast um
í þónokkrum stíl.
Crew Dragon er ekki bara
draumur um að einhvern tímann
muni geimfarar ferðast um í geim-
flaug sem er hönnuð, smíðuð og
skotið á loft af einkafyrirtæki.
NASA, geimferðastofnun Banda-
ríkjanna, hefur nú þegar gert
samning við SpaceX um að flytja
geimfara til Alþjóðlegu geimstöðv-
arinnar.
Prófanir á flauginni standa enn
yfir og er áætlað að hún fari í
ómannað tilraunaflug á næsta ári.
Gangi allt eftir má búast við mönn-
uðum geimferðum í Crew Dragon
árið 2017.
GEIMFERÐIR MEÐ EINKAFYRIRTÆKI
Ferðast
með stæl
í geimnum
Geimflaugin Crew Dragon minnir helst á eitthvað sem við erum vön að sjá
úr vísindaskáldsögum enda hönnunin framúrskarandi.
Áætlað er að Crew Dragon fari í ómannað tilraunaflug strax á næsta ári
og fljótlega eftir það má vænta þess að mannaðar ferðir hefjist.
SPACEX HEFUR GEFIÐ FORSMEKKINN AF ÞVÍ HVERNIG
MÖNNUÐ GEIMFLAUG FYRIRTÆKISINS MUN LÍTA ÚT AÐ
INNAN OG SATT BEST AÐ SEGJA ER LJÓST AÐ HÚN VERÐ-
UR ALLT ANNAÐ EN GAMALDAGS OG KLUNNALEG.
Gífurlegar framfarir hafa orðið í
þróun gervilima á undanförnum ár-
um. Þannig hefur vélbúnaður tekið
við af föstu móti, sem gerir ein-
staklingum kleift að taka utan um
hluti, heilsa með handabandi og al-
mennt hreyfa fingur eins og um
raunverulega hönd sé að ræða.
DARPA, rannsóknarstofnun
bandaríska hersins, hefur nú stigið
skrefinu lengra en stofnunin hefur
upplýst um jákvæðar niðurstöður
rannsóknar á því hvort hægt sé að
láta notanda gervilims finna tilfinn-
ingu í gegnum gerviliminn.
„Með því að tengja skynjara frá
vélarmi/gervilim í heilann er hægt að
kalla fram tilfinningu eins og um
raunverulega hönd sé að ræða,“
segir Justin Sanchez, verkefnastjóri
verkefnisins hjá DARPA, í frétta-
tilkynningu sem stofnunin hefur sent
frá sér. Tæknin er enn á þróunarstigi
en gefur vísbendingu um hvað koma
skal á næstu árum og áratugum.
NÆSTA SKREFIÐ
Tilfinning
í gervilim
Hvað ætli sé langt í gervilim sem líkist
alvöru handlegg eða fæti?
Rafmagnsbílar hafa verið að sækja í
sig veðrið en hækkandi olíuverð og
aukin umhverfisvitund neytenda
hafa komið af stað kapphlaupi meðal
bílaframleiðenda sem vilja hlutdeild
í stækkandi rafbílamarkaði.
Fæstir komast þó með tærnar þar
sem Tesla hefur hælana en bilið er
að minnka og sumir bílaframleið-
endur telja sig nú geta gert jafn vel
eða betur.
Porsche hefur kynnt neytendum
Mission E en bíllinn er hreinn raf-
magnsbíll með 600 hestafla mótor og
kemst tæpa 500 km á einni hleðslu.
Þá segja forsvarsmenn Porsche að
það taki eingöngu 15 mínútur að ná
80 prósent hleðslu á bílinn. Hafa
verður þó í huga að hér er um svo-
kallaðan konsept-bíl að ræða og
óvíst að hann fari nokkurn tímann í
framleiðslu.
RAFMAGNSBÍLL
Porsche kynnir glæsilegan sport-rafmagnsbíl sem gæti slegið út hinn vinsæla
Tesla, sem um þessar mundir leiðir rafmagnsbílamarkaðinn.
Rafmögnuð framtíð
Varast skyldi að sitja eða liggja lengi með fartölvu í fanginu. Ekki er talin
hætta á geislun heldur geta fartölvur valdið varanlegum húðroða ef þær
liggja of lengi við lítt varða húð, samkvæmt Vísindavefnum.
Fartölvur geta valdið húðroða
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
25ÁRA
1988-2013
PIPER
Piper er ný gerð
eftirlitsmyndavéla
og öryggiskerfa fyrir
heimili, sumarhús og
smærri fyrirtæki
•Vaktar heimilið
• Kveikir ljósin
• Fylgist með hita- birtu- og rakastigi
• Fylgist með allri hreyfingu og hljóði
Allt þetta er hægt að skoða hvaðan sem
er úr heiminum í snjallsímanum þínum!