Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 35
4.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 S máhesturinn á það til að vera dálítið barnalegur og hvatvís. Alveg sama hvað árin bætast við og hrukkurnar (tölum ekki um þær) þá hverfur hvatvísin aldrei. Smáhesturinn sem hér skrifar veit að þetta hefur nokkrum sinnum komið honum í vandræði. Mis- mikil og misdýr en oft skapað óþarflega mikið vesen. Á dögunum var smáhesturinn staddur í útlöndum og þegar hann komst í outlet fór blóðþrýstingurinn upp úr öllu valdi. Um tíma var smá- hesturinn orðinn eins og öskrandi sparigugga þegar verst lét. Rjóður í kinnum og allt. Smáhesturinn gjörsamlega ryk- sugaði upp spjarirnar af slánum og þrykkti þeim inn í mátunarklefa. Það að finna bundna kjóla á afslætti getur framkallað allskonar jaðar- hegðun sem ekki er gott að leika eftir – allavega ekki í fjölmenni og alls ekki fyrir framan börn. Smáhesturinn getur nefnilega breyst í barnalegan smáborgara þegar hann hefur það á tilfinning- unni að hann sé um það bil að ganga frá kaupum lífs síns. Þetta element sem á sér stað þegar hann finnur á sér að hann sé að græða er eitthvað sem hann ræður hreinlega ekki við. Í þessari utanlandsferð náði hann þeim áfanga að fara fjórum sinnum á kassann í ónefndu outletti. Alltaf þegar hann var kominn að kass- anum og búinn að borga kom hann auga á eitthvað annað sem hann varð að máta og því urðu ferðirnar á kassann þrjár eða fjórar. Alltaf tóku skælbrosandi og næs starfsmenn á móti smáhestinum þar sem hann renndi Vísa-kortinu í gegn – svona líka alsæll með lífið og tilveruna. Það versnaði þó í því þegar smá- hesturinn kom heim og hóf sitt dag- lega líf á ný. Fór að éta sinn hafra- graut og sína grænu sjeika og fara í sínar daglegu ferðir í miðbæ Reykjavíkur að morgni til. Eitt af daglegum störfum smáhestsins er nefnilega að drekka almennilegt kaffi (með almennilegum stóðhest- um) og þegar hann sótti bolla af einu slíku og ætlaði að renna sínu glansandi fína og vandaða Vísa- korti í gegn þá kom bara SYNJUN. Smáhesturinn skildi ekkert í þessu og kortinu var rennt aftur í gegn og aftur gerðist nákvæmlega það sama. SYNJUN. Sem betur fer var smáhesturinn með nokkra gullpeninga í veskinu og gat því borgað sig út úr þessum vandræðum. Þegar smáhesturinn hringdi í sinn uppáhaldsþjónustufulltrúa sem starfar í Íslandsbanka við Kirkjusand vorum þau bæði alveg jafn hissa á þessum ósköpum. Þegar þjónustufulltrúinn góði renndi í gegnum korta- færslur kom í ljós að heimildin var miklu meira en búin því í versl- unarleiðangrinum ógurlega hafði færsla upp á tæplega fjórar milljónir farið í gegn. Smáhesturinn fékk hland fyrir hjartað enda aldrei verið með slíka heimild á kortinu sínu. Svo fékk smáhesturinn öran hjartslátt og fór að hugsa hvað hann þyrfti að fá sér margar aukavinnur til að borga þessar milljónir til baka. Góður þjónustufulltrúi er klárlega betri en enginn og áður en langt um leið var þessi elskulega manneskja búin að hafa samband við Vísa og á nokkrum dögum var færslan afturkölluð. Um mannleg mistök var að ræða þarna í outlettinu. Smáhesturinn gat því haldið brokkinu áfram – sigldari en nokkru sinni fyrr og mögulega 57% var- kárari. Fjögurra milljóna kjóllinn verður samt alltaf í sérstöku uppáhaldi. Annað væri vanvirðing við frú Furstenberg. martamaria@mbl.is Kendall Jenner sýndi haust- línu Diane von Furstenberg. Fjögurra millj- óna kjóllinn Gullkjóll frá Diane von Furstenberg. Haustlína Diane von Furstenberg. Furstenberg er málið. Nú er komið að fjórða bílnum sem við gefum á þessu ári í áskriftarleik Morgunblaðsins. Þann 22. október drögum við út stálheppinn áskrifanda sem eignast sjálfskiptan Suzuki Vitara GLX sportjeppa að verðmæti 5.440.000 kr. Sjáðu meira á mbl.is/askriftarleikur mbl.is/askriftarleikur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.