Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Side 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Side 42
Úttekt 42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2015 L okaeinkunnir 10. bekkinga næsta vor verða í bók- stöfum og hæfniviðmið verða höfð að leiðarljósi við einkunnagjöf. Fyrir- komulagið hefur staðið til í aðal- námskrá grunnskóla frá 2011 þar sem grunnurinn að þeim var lagður en breytingarnar verða innleiddar nú í vetur og þróaðar að fullu. Breytingar- ferlið og hvernig staðið hefur verið að því hefur verið gagnrýnt og sumir telja að skólakerfið hefði í heild þurft lengri tíma til að aðlagast algerlega nýrri hugsun að baki því að gefa einkunnir í grunnskólum. Þá hafa hæfniviðmiðin og framsetn- ing þeirra, sem liggja að baki ein- kunnagjöfinni, verið gagnrýnd og kenn- urum og skólastjórnendum þótt óljóst hvernig hæfni nemenda skuli metin. Menntamálastofnun hefur frá því í sumar haft umsjón með innleiðingu námskrár. Skýrt hefur verið frá því að ein- kunnakvarðinn eigi að vera sambæri- legur einkunnagjöf PISA, þar sem eru sex hæfniþrep og á þetta að vera skref til aukinnar samræmingar. Hins vegar hafa nokkrir framhalds- skólar óskað eftir því að fá að halda sérstök inntökupróf. Þeir telja nýtt ein- kunnakerfi í 10. bekk ekki gefa full- nægjandi upplýsingar um stöðu ein- stakra nemenda. Ekki hefur verið ákveðið hvort orðið verði við þeim ósk- um en þá þyrfti að breyta reglugerð um innritun í framhaldsskóla. Þeir sem gagnrýna nýtt námsmat hafa meðal annars áhyggjur af því að það boði verðbólgu í einkunnum og að það sé of loðið og huglægt. Aðrir segja að þrátt fyrir þessar áhyggjur hafi það alla burði til að vera áreiðanlegt, óhlut- drægt, heiðarlegt og sanngjarnt. Það sé kominn tími til að hætta að einblína á það sem er auðvelt að mæla og temja sér nútímalegan hugsunarhátt með því að fara að leggja rækt við og meta nemendur á sanngjarnan hátt út frá hæfni þeirra en ekki bara því sem þeir læra utanbókar. Eða sem sagt; hvernig þeir nýta sér þekkingu sína. Í lok síðasta árs var 30 milljón króna styrk úthlutað til sveitarfélaga á grund- velli nemendafjölda hvers skóla. Hon- um var ætlað að styrkja sveitarfélög til að taka upp upplýsingakerfi sem styddi við innleiðingu námskrárinnar og nýtt námsmat. Þróun á rafrænu skírteini sem samræmir framsetningu einkunna úr skólum landsins og nýtist við inn- ritun verður notað í vor en það er enn í þróun. Því er ætlað að veita fyllri upp- lýsingar um námsstöðu nemenda. Fyrirkomulag hæfniprófanna sem öll umræðan beinist að er enn í þróun og ekki hefur endanlega verið ákveðið hvernig það verður en því er stýrt af Menntamálastofnun. STÓR HLUTI ÞJÓÐARINNAR Á EÐA MUN EINN DAGINN EIGNAST BÖRN SEM ERU Í GRUNN- SKÓLA. ÞÆR BREYTINGAR SEM FYRIRHUGAÐAR ERU Á NÁMSMATI Í 10. BEKK SNERTA ÞVÍ MARGA OG HAFA VAKIÐ MARGAR SPURNINGAR. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Kennarafélag Reykjavíkur,Skólastjórafélag Reykjavík-ur og Félag grunnskólakenn- ara hafa lýst yfir áhyggjum af stöðu innleiðingar á nýju námsmati í skól- um landsins. Í bókun á fundi skóla- og frí- stundaráðs Reykjavíkur 23. sept- ember síðastliðinn sem kennara- og skólastjórafélagið lögðu fram kom fram að hvorki lægi fyrir með hvaða hætti nemendur útskrifast úr 10. bekk næsta vor né hvernig meta ætti nemendur inn í framhaldsskóla næsta haust. Það ylli áhyggjum að á sama tíma væri verið að innleiða nýja aðalnámskrá í skólum landsins, nýtt vinnumat grunnskólakennara og einnig breyta einkunnagjöf nemenda. Stjórn Félags grunnskólakennara skoraði á nýja Menntamálastofnun að taka málið föstum tökum og setja það í forgang og hefja formlegt samstarf við félög kennara og stjórnenda og fá þannig fagleg sjónarmið þeirra sem vinna í grunnskólum landsins. Þeir segja að með slíku samstarfi hefði verið hægt að koma í veg fyrir þá óvissu sem ríkir um innleiðingu við lokamat úr grunnskóla. „Það eru fjögur ár síðan ný aðal- námskrá grunnskóla var sett og það er búið að taka tíma að innleiða hana,“ segir Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður Skóla- stjórafélags Ís- lands. Upphaflega átti að taka nýja námsmatskerfið upp í skólum á síð- asta ári en menntamálaráðherra ákvað á þar síðasta ári að fresta inn- leiðingu fram á þetta ár. „Við fengum frest fyrir rúmu ári, um eitt ár og sumir skólar eru komnir langt með að vinna þetta en að okkar áliti átti menntamálaráðuneytið að nota þennan tíma til að innleiða þess- ar hugmyndir frekar en það var ekki gert. Nú hefur nýrri Menntamála- stofnun verið falið að vinna það inn- leiðingarferli áfram og farið verður í að kynna frekar fyrir skólastjórn- endum og kennurum nýtt námsmat og vinna með það.“ Svanhildur María segir að með þessari glænýju hugsun á námsmati sem kemur fram í nýrri aðalnámskrá þurfi mikla og góða forystu í innleið- ingarferli. „Það eru til dæmis bara fyrst núna að koma fram hugmyndir um rafrænt skírteini og vefur um námsmatið; um þessi hæfniviðmið og hæfnieinkunn. Þannig að það er ekki seinna vænna en að fara í að kynna það frekar. Við ósk- uðum eftir því að þessar upplýsingar kæmu fyrr en þær gerðu það ekki og þá verðum við bara að bretta upp erm- arnar og vinna í þessu það sem eftir er af þessum vetri. Ég veit að Mennta- málastofnun ætlar að kalla til hóp af kennurum, stjórnendum og hags- munaaðilum til að skoða málið betur og fara í það og skoða hvað er hægt að gera á þessu ári. En auðvitað hefðum við þurft meiri tíma, það er ekki spurn- ing. Það þarf að fara í markvissa kynn- ingu og fræðslu til skólastjóra og kennara. Þetta er ekki bara spurning um að verið sé að breyta tölum í bók- stafi; þetta er ný hugsun í námsmati.“ Svanhildur María segir að unnið verði með þetta eins vel og hægt sé, en eins og gefur að skilja séu skólar komnir mislangt með þá vinnu. SVANHILDUR M. ÓLAFSDÓTTIR, FORMAÐUR SKÓLASTJÓRAFÉLAGS REYKJAVÍKUR Hefðum þurft meiri tíma * Þetta er ekki baraspurning um aðverið sé að breyta töl- um í bókstafi; þetta er ný hugsun í námsmati. Það eru í gangi átök um hvernigskal túlka námsmatið oghvaða tilgangi það þjónar. Ég byrjaði að kenna aftur í haust eftir hlé og fór í að rifja þetta upp og lesa yfir og margt virkar sem mjög al- mennar lýsingar. Það eina sem er til dæmis haldbært í námskránni sjálfri til að greina á milli bókstafanna er einhver röð innan hóps,“ segir Ragn- ar Þór Pétursson kennari. „En þessi hæfninálgun í staðinn fyrir bara prófeinkunn er nauðsyn- legt og samevrópskt viðbragð við því að það þurfi að stokka skólakerfið upp frá grunni. En því fylgir að það þarf að stórauka frelsi skóla til að út- færa nám. Markmiðið er að nemand- inn búi yfir ákveðinni hæfni í stað þekkingarforða sem menn líta á að sé úreltur.“ Ragnar Þór segir að stór hluti vandamálsins sé að gert hafi verið ráð fyrir að skólarnir byggju yfir nógu mikilli hæfni til að útfæra þetta og þróa sig úr einu kerfi í annað. „Því að þessar breytingar sáu menn ekki fram á að geta leitt ofan frá og niður. Skólarnir sjálfir þyrftu að þróa sig inn í 21. aldar skóla og opna miðlunar- leiðir þannig að það besta frá hverjum og einum myndi smitast í gegnum kerfið og kerfið myndi taka þessa uppfærslu.“ Ragnar Þór telur að slíkt hafi ekki gerst af ýmsum ástæðum. „Fimm ára kennaranám klúðrast út af lélegri aðsókn og þar blönd- uðust kjaramálin inn í. Kennarar segja að í raun og veru hafi sveit- arfélögin í stórum stíl afþakkað þró- unarvinnu því að það þurfti að borga fyrir hana sérstaklega og sveit- arfélögin hafa ekki haft efni á því og ótal margt fleira mætti telja sem hef- ur gert þetta flókið.“ Ragnar Þór segir það vonda stöðu að þeir skólar sem hleypa aðeins nemendum með hæstu einkunnirnar inn séu á þessari stundu að koma fram og andæfa einu af grundvall- aratriðum námskrárinnar sem sé það RAGNAR ÞÓR PÉTURSSON KENNARI Skólakerfið of tætt fyrir verkefnið Hæfniviðmið: Hæfniviðmiðin eru sá grundvöllur sem kennsluhættir og námsmat byggjast á. Hæfniviðmið tengjast grunnþáttum en eru skrifuð fyrir hverja og eina námsgrein og mætti líkja þeim við markmið hvers náms- sviðs. Hæfnieinkunn: Með námskrá sem byggist á hæfni- viðmiðum færist áhersla á námsmati yfir á hæfnina sem nemandi býr yfir og eru ein- kunnir í nýjum námsmatskvarða nefndar hæfnieinkunnir. Þá þýðir einkunnin A að nemandi hafi náð þeirri hæfni sem lýst er í matsviðmiði viðkomandi námsgreinar undir hæfnieinkunninni A. B þýðir að nemandi hafi náð færni sem lýst er sem B, og svo framvegis. Matsviðmið: Matsviðmið eru lýsing á, hversu vel nem- andi hefur skilgreinda hæfni, á valdi sínu. Í aðalnámskrá grunnskóla með greina- sviðum sem kom út 2013 eru sett fram matsviðmið fyrir 10. bekk. Matsviðmið lýsa hæfni á kvarða, notaður er kvarðinn A, B+, B, C+, C og D. Þessi kvarði kallast hæfniein- kunn Matsviðmið í B er þannig byggð á hæfni- viðmiðum í aðalnámskrá og má segja að matsviðmið sé lýsing á því hvað B stendur fyrir. Heimild: vefir.nams.is ÚTSKÝRINGAR Á HUGTÖKUM: Ný og umdeild viðmið í námsmati

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.