Víkurfréttir - 29.05.1986, Page 6
6 Fimmtudagur 29. maí 1986
VÍKUR-fréttir
Njarðvíkurbær 10 ára
Sýning grunnskólanema
ORÐVAR SKRIFAR - ORÐVAR SKRIFAR - ORÐVAR SKRIFAR
„Vaggar eins og
upptrekkt leikfang“
í síðustu viku héldu grunn-
skólanemendur í Njarðvík
sýningu á ýmsum munum sem
tengdir eru bænum. Tilefnið
var 10 ára afmæli bæjarins, en
Njarðvík öðlaðist kaupstaðar-
réttindi 1976.
Á sýningunni voru ýmsir
munir tengdir sögu bæjarins,
atvinnu, menningu o.fl.
Þama mátti sjá kanínur,
Njarðvíkur- og Víkverjabún-
inga, líkan af landshöfninni
og síðast en ekki síst Njarð-
víkurgátuna, en það er spil
líkt og Trivial Pursuit, sem
eingöngu eru í spumingar
um Njarðvík.
Til að auglýsa sýninguna
fóm börn úr Grunnskóla
Njarðvíkur í skrúðgöngu um
bæinn og hvöttu fólk til að
mæta. Meðfylgjandi myndir
vom teknar af göngunni og á
sýningunni. -gæi.
Hvítasunnan er mesta
ferðahelgj ársins hér sunn-
anlands, næst á eftir Versl-
unarmannahelginni. Segja
má að fólki sé hreinlega ýtt
út úr bænum þessa helgi,
því allt er lokað, bensinaf-
greiðslur, sjoppur og allir
afþreyingarstaðir. Fáir
eru á ferli, enda ekkert um
að vera og enn færri bíiar á
götunum.
Hvert fara Suðurnesja-
menn í sunnudagsökuferð?
Auðvitað í Hveragerði að
skoða apana. Þar er allt
opið upp á gátt, Eden, Tí-
volí, bensínafgreiðslur,
gróðurhúsin og sundlaug-
in. Þegar komið er á stað-
inn er bíla- og fólksmergð-
in slík að helst minnir á
landsleik í Laugardalnum.
Það skipta margar krónur
um eigendur í Hveragerði
um Hvítasunnuna. Þama
er eitthvað áhugavert fyrir
alla aldurshópa og veður-
blíðan bíður upp á létt-
klædda Tívoh' stemmingu
yngri gestanna, meðan
ráðsettar eiginkonur vaka
um gróðurhúsin og kaupa
pottablóm, tómata og
hverabrauð. Hamborgara-
kynslóðin safnast saman í
hominu hjá Tomma og
virðist bara una sér vel þar.
Það er furðulegt hvað
gamalmennin sækja í pen-
ingakassana, sem em aUt-
af að fjölga þarna. En
flestir eru hér eingöngu til
að sýna sig og sjá aðra.
Iðulega hittast hér gamlir
kunningjar og vinnufélag-
ar, sem em löngu hættir að
hittast við önnur tækifæri.
Tveggja tíma viðdvöl er vel
við hæfi, þá er ekið austur í
Þrastarskóg, sumarhúsa-
nýlendu Suðurnesja-
manna. Rétt er að heilsa
aðeins upp á einhvern
kunningjann, annars eiga
þeir það til að móðgast,
þegar þeir frétta seinna um
ferðir manns um sumar-
paradísina þeirra. Þaðan
er haldið á Þingvöll í enda-
lausri bílalest og þykkum
moldarmekki. Við Valhöll
er sama fjölmennið og var í
Hveragerði, 20-30 bfla
biðröð sitt hvoru megin við
brúna og hátt í 100 manna
biðröð utan við sjoppuna,
þjónustumiðstöðin er ekki
komin í gagnið ennþá. En
nú er hitinn og sólskinið
komið í hámark og flestir
famir að fækka fótum all
ískyggilega. Fólkið liggur í
smáhópum á víð og dreif í
sólbaði eða vagrar um
svæðið. Mörgum verður
starsýnt á ungt par, sem
gengur um meðal fólksins
og minnir í flestu á líkams-
ræktarsýningargripi. Karl-
maðurinn er stuttur en
óhemju sver og þvílíkt
vöðvabúnt, að hann kemur
handleggjunum alls ekki
að síðunum og standa þeir
45° út frá kjötskrokknum.
Hann gengur einkennilega
gleiður og útskeifur og
vaggar eins og upptrekkt
leikfang. Hann minnir
óneitanlega á uppblásinn
gúmmívettling, þó er mað-
urinn örugglega ódrukk-
inn. Vín sést ekki á nokkr-
um manni, nema á þrcrnur
konum vel yfír miðjum
aldri, þær sitja í grasinu
framan við nýrri álmuna og
staupa sig óspart og láta
dólgslega við þá sem fram-
hjá ganga. Eftir klukku-
tíma í biðröðinni við sjopp-
una eru flestir búnir að fá
sig fullsadda af sveitasæl-
unni í Þingvöllum. Heim-
ferðin næst þjóðgarðinum
jafnast alveg á við eina
bunu í kolkrabbanum í Tí-
volíinu, ekkert nema
hryggir og hvörf. En þrátt
fyrir allt er þetta góður
dagur, allir koma heim
þreyttir en ánægðir, ekkert
íand í heiminum jafnast á
við ísland. Túristarnir
bresku sem stóðu í þéttri
röð á hafnargarðinum i
morgun að veiða kola,
standa þar ennþá með
færin sín, þegar við kom-
um heim um kvöldmatar-
leytið. Já, misjafnt er
mannanna gaman.
ORÐVAR
Grunnskólanemar gengu um bæinn og auglýstu sýninguna.
„Njarðvíkal Pursuit“ vakti athygli.
AUGLÝSING
GÓDIR KEFL VÍKINGA R!
TOMAS TOMASSON
Nú ueljum uið okkur enn forystumenn í mál-
efnum bœjorins okkor.
Um leið og ég þokko ykkur órofo stuðning og
troust uið Sjálfstœðisflokkinn og mig á liðn-
um árum, þá er ég þess fulluiss, oð þoð
dugnaðar- og hœfiieikofólk, sem hefur stoð-
góðo þekkingu og reynslu á bœjormálum,
suo og öðrum félagsmálum, og nú skipo
efstu sœti listo Sjálfstæðisflokksins, D-
listons, muni ekki bregðost trousti ykkor, ef
þið ueitið þeim áfromholdondi stuðning til
forystu oð fromgongi góðro málo í bœnum
okkor.