Víkurfréttir - 29.05.1986, Blaðsíða 7
Me$a(/c)VtO / hí/5. (rró
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 29. maí 1986 7
Starfsmannafélag Keflavíkurbæjar:
Skorar á bæjarráð að lítilsvirða
ekki störf bæjarstarfsmanna
Á fundi bæjarráðs Kefla-
víkur þann 13. maí síðastlið-
inn var gerð samþykkt þar
sem ráðið ítrekar bókun um
að starfsfólk bæjarins sé ekki
ver launað en víðast annars
staðar.
Þessari samþykkt hefur
Starfsmannafélag Keflavík-
urbæjar nú mótmælt harð-
lega og á föstudaginn sendi
■ 3oo
það bæjarráðinu
andi bréf:
svohljóð-
Stjóm og samninganefnd
Starfsmannafélags Keflavík-
urbæjar mótmœlir harðlega
þeim fullyrðingum sem fram
komu í fundargerð bœjarráðs
Keflavíkur þann 13. maí sl.
Þar er ítrekuð bókun um að
starfsfólk bæjarins sé ekki
verr launað en tíðkast í sam-
2oo
toa
h
^ .?
Jtil
í-'
i
u
I
O
4
Í ra
4^4
Á súlu þessari sjást meðallaun starfsmanna sveitarfélaga árið
1984. Birtist súlan í Frjálsri verslun seinni part árs 1985,
unnin úr skýrslum Hagstofu Islands. En nýrri upplýsingar
liggja ekki fyrir.
bærilegum störfum hjá öðrum
bæjar- og sveitarfélögum.
Stjórn og samninganefnd
S. T.K.B. lítur svo á að bæjar-
ráð kynni sér lítið sem ekkert
samningamál annarra bæjar-
félaga til viðmiðunar, en
bæjarstarfsmenn í Keflavík
eru lægst launuðu bœjarstarfs-
menn á landinu og er mikill
munur þar á
Stjóm og samninganefnd
S.T.K.B. bendir á að umrædd
bókun á hvergi rök við að
styðjast. Við skorum því á
bæjarráð að lítilsvirða ekki
störf bæjarstarfsmanna og
draga umrædda bókun til
baka.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar og samninga-
nefndar Starfsmannafélags
Keflavtkurbæjar,
Hólmar Magnússon form.
VIÐSKIPTAVINIR
ATHUGIÐ!
Breyttur opnunartími í sumar:
Frá og með laugardeginum 7. júní til 30. ágúst
verður opið á laugardögum frá kl. 10-14.
HAGKAUP
Njanðvík.simi 3655
útimálning
25% sláttur
Bæjarstjóri harmar þann tón sem
fram kemur í bréfi STKB
Vegna bréfs Starfsmanna-
félags Keflavíkurbæjar hefur
Steinþór Júlíusson bæjar-
stjóri í Keflavík, sent félag-
inu svohljóðandi bréf, dags.
26. maí 1986:
„Stjóm og samninganefnd
Starfsmannafélags
Keflavíkurbæjar,
c/o hr. Hólmar Magnússon,
Vesturgötu 15
230 Keflavík.
Eg hef í dag móttekið bréf
yðar dags. 25. maí 1986. Af
Víkurbær:
Kostar 20 mill-
jónir að gera hús-
ið að Safnahúsi
í framhaldi af fundarsam-
þykkt bókasafnsnefndar
Keflavíkur um athugun á
kaupum bæjarins á Víkur-
bæjarhúsinu við Hafnargötu
undir safnahús, var bygging-
arfulltrúa falið að gera kostn-
aðaráætlun um breytingar á
húsinu.
Hefúr hann nú lokið því
verki og upplýsti bæjarstjóri
niðurstöðurnar á fundi
bæjarráðs nú nýlega. Þar
kom fram að heildarkostnað-
ur yrði kr. 19.919.060. -epj.
því tilefni vil ég upplýsa að
bókun bæjarráðs frá 13. maí
sl. virðist hafa valdið misskiln-
ingi, sem raunar var leiðréttur
í bæjarstjóm 20. maí sl. og ég
hvet yður til að kynna yður.
Mér þykir leitt að þér skyld-
uð ekki hafa haft samband við
mig áður en þér rituðuð um-
rætt bréf og senduð til fjöl-
miðla, að því er virðist í þeim
tilgangi einum að þyrla upp
pólitísku moldviðri nú í vik-
unni fyrir kosningar.
Einnig harma ég þann tón
sem mér virðisi vera í bréfi
yðar, á sama tíma og yður er
fullkunnugt um að nú standa
yfir samningar um laun
bæjarstarfsmanna og bæjar-
ráð hefur lýst því yfir að ef
fullyrðingar yðar um að bæj-
arstarfsmenn í Keflavík séu
lægra launaðir en aðrir bæjar-
starfsmenn, þá verði slíkt
leiðrétt.
Að lokum er rétt að minna
á að á síðasta ári var samið
um laun bæjarstarfsmanna og
voru þeir samningar sam-
þykktir af Starfsmannafélag-
inu á sínum tíma.
A sama hátt vona ég að við-
unandi samningar náist að
þessu sinni.
Virðingarfyllst.
Steinþór Júlíussorí'.
íslenskar gæðavörur
fyrir
íslenskar aðstæður
á þökin
og
Sandtex
á steininn
texolin
ri
ELQ
á viðinn
25% staðgreiðsluafsláttur
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Járn og Skip
Keflavík: Sími 1505 - Grindavík: Sími 8462
epj.