Víkurfréttir - 29.05.1986, Blaðsíða 23
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 29. maí 1986 23
Góðir Garðbúar
í litlu byggðarlagi eins og
Garðurinn er, verður að vega
og meta hvaða verkefni skulu
hafa forgang hverju sinni.
.Slagceð byggðarlagsins hlýt-
ur að liggja í atvinnumálun-
um. Þróun þeirra hefur verið
neikvæð síðastliðin ár.
Nokkur fiskverkunarhús
hafa hætt og 3 togarar seldir
úr by^gðarlaginu og með
þeim for 2.600 tonna afli, en
ekkert kom í staðinn. Bygg-
ingavinna hefur dregist sam-
an, fasteignir seljast illa og
mikið af unga fólkinu flyst
burtu. Þess vegna leggur I-
listinn áherslu á að efla at-
vinnulífið svo sem kostur er.
Gerð smábátahafnar er orð-
in brýn, því smábátaútvegur
hefur aukist hér mjög mikið
undanfarin ár, og hvað ei
sjávarpláss án hafnar.
í gegnum árin hafa verið
unnar margar áætlanir um
uppbyggingu vatnsveitu í
Garðinum, en einhvern veg-
inn hefur ekki tekist að fram-
kvæma nema lítið af þeim.
Astæðan er kannske sú að lít-
ið fer fyrir þessu máli hjá hin-
um almenna kjósanda dags
daglega. Við I-lista menn
teljum það vera eitt af
stærstu hagsmunamálum
Garðbúa að koma vatns-
veitumálunum í gott horf
vegna þess að á því byggist öll
atvinnuuppbygging. Við
munum vinna að því, fáum
við til þess styrk í komandi
kosningum.
„Heilbrigð sál í hraustum
líkama“, kemur í hugann
þegar íþrótta- og æskulýðs-
mál eru reifuð. Okkar hjart-
ans mál hefur verið og er að
ljúka byggingu sundlaugar-
innar og koma upp aðstöðu
fyrir frjalsar íþróttir í tengsl-
um við knattspyrnuvöllinn.
Eins og aðstæður leyfa verð-
ur að vinna að byggingu full-
komins íþróttahúss. Reynt
verði að koma upp aðstöðu
fyrir unglinga, þar sem þeir
geta sinnt sinum tómstund-
um.
Skólamál í Garðinum
standa á gömlum merg, því
Gerðaskóu er elsti skóli á
Suðumesjum 115 ára. Því
miður geta nemendur ekki
lokið hér grunnskólanámi.
Við höfum þurft að senda
börn okkar tU Keflavíkur eða
í heimavistarskóla sem er
mjög kostnaðarsamt. Vinna
verður að því að efla skólann,
svo nemendur geti lokið hér
gmnnskólaprófi.
Heilsugæsla er rekin sam-
eiginlega af sveitarfélögun-
um á Suðurnesjum og aðal-
stöðvamar em í Keflavík, við
verðum að standa vörð um
að hér verði alltaf til staðar
góð aðstaða fyrir lækna og
hjúkmnarfólk. Bæta þarf
þjónustu við aldraða og ör-
yrkja sem dvelja vilja í heima-
húsum. Gerð verði könnun á
þörf fyrir byggingu íbúða
fyrir aldraða.
Umferðamál hafa mikið
verið til umræðu í Garðinum
að undanförnu vegna mikils
umferðahraða á Garðbraut
og Skagabraut. Við I-lista
menn stefnum að því að auka
öryggi vegfarenda með lagn-
ingu gangbrauta og ná niður
umferðarhraðanum með því
„Erum ekki upphafsmenn
þessa moldviðris“
- segir í svarbréfi Starfsmanna-
félags Keflavíkurbæjar
Eins og fram kemur á bls.
7 í blaðinu í dag, skiptastfor-
maður stjómar og samninga-
nefndar Starfsmannafélags
Keflavíkurbæjar og bæjar-
stjórinn í Keflavík á
skoðunum um launamál
starfsmanna bæjarins. Eftir
að þær greinar höfðu farið í
prentun fékk blaðið eftirfar-
andi bréf í hendurnar ásamt
beiðni um birtingu:
„Bœjarráð Kejlavíkurbœjar,
c/o Steinþór Júlíusson,
bæjarstjóri.
Hlaut utanlandsferð
Nú hafa allar þrjár utanlandsferðimar sem verslunin
Nonni og Bubbi gaf í happdrætti verslunarinnar á dögunum
verið dregnar út. Kom vinningur númer tvö í hlut Aðalheiðar
Axelsdóttur og sést hún á meðfylgjandi mynd veita vinningn-
um viðtöku úr hendi Jónasar Ragnarssonar kaupmanns.
Þriðji vinnngurinn kom á miða nr. 3745 og getur eigandi
hans vitjað vinningsins á skrifstofu verslunarinnar. -epj.
Soffía Ólafsdóttir
t.d. að útbúa hringtorg fyrir
innan byggðina.
I skipulagsmálum leggjum
við áherslu á að hraðað verði
frágangi á aðalskipulagi af öll-
um hreppnum og það stað-
fest sem fyrst.
Hér hefur verið minnst á
nokkra af þeim málaflokkum
sem við leggjum áherslu á, en
auðvitað er það alls ekki
tæmandi. Þess vegna vil ég
nota tækifærið og benda
Garðbúum á að lesa Skiphól,
málgagn I-listans, vel.
Góðir Garðbúar, við
göngum að kjörborðinu eftir
2 daga, í þessum kosningum
tekur fjöldi ungs fólks þátt í
kosningunum í fyrsta sinn,
ég vil benda ykkur á, að I-list-
inn er skipaður ungu og
áhugasömu fólki, sem hefur
velferð þína og byggðarlags-
ins að leiðarljósi. Tökum því
höndum saman og tryggjum
Eiríki Hermannssyni setu í
hreppsnefnd Gerðahrepps
næsta kjörtímabil. Stefnum
öll að einu marki X-I.
Soffía Ólafsdóttir
l. maður á I-listanum, lista
Óháðra Borgara, í Garði.
Vegna bréfs yðar dags. 26.
maí 1986 hefur leiðrétting
bókunar bœjarráðs ekki bor-
ist okkur, en vandalaust hefði
verið að senda þá leiðréttingu
með bréfi yðar. Ekki álítum
við okkur upphafsmenn þessa
moldvðris sem um er rœtt.
Starfsmannafélagið sem heild
hefur ekki atkvœðisrétt um
sérkjarasamninga sína og
hefur þurft að hlíta skömmt-
un launanefndar sveitarfé-
laganna og bæjarráð's".
HJSKAHjALP i SVmHESJUM
Atvinna
Þroskahjálp á Suðurnesjum óskar eftir
þroskaþjálfa tíl starfa hið fyrsta við dag- og
skammtímaheimilið Ragnarssel, Suður-
völlum 7, Keflavík.
Einnig er óskað eftir uppeldisfulltrúa sem
einnig annast matargerð og ræstingar.
Umsóknarfrestur er til 2. maí. Allar nánari
upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
4333 Stjómin
m Knattspyrnu-
^skóli ÍBK
verður haldinn vikurnar 9.-20. júní, hálfs
mánaðar námskeið. Leiðbeinandi: Einar
Ásbjörn. Námskeiðin miðast við árgang 74
og yngri.
Þátttaka tilkynnist í íþróttavallarhúsið í
síma 2730 mánudag 2/6 og þriðjudag 3/6
frá kl. 12-15. Þátttökugjald er kr. 1000.
Knattspyrnuráð Keflavíkur
Lífeyrissjóður Iðnaðar-
mannafélags Suðumesja
Aðalfundur
verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 29.
maí. - DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Fundurinn verður haldinn í sal félagsins að
Tjarnargötu 3 í Keflavík og hefst kl. 21.
Allir iðnaðarmenn sem starfa sjálfstætt og
vilja kynna sér ávöxtun fjár í séreignarlíf-
eyrissjóði eru velkomnir á fundinn.
Stjómin
SUÐURNESJAMENN
Athugið
Opnum á morgun, föstudag 30. maí,
nýstárlega verslun með hnetur,
súkkulaðihjúpaða ávexti o.m.fl.
Verið velkomin.
Verslunin HNETAN
Hafnargötu 6 - Keflavík