Víkurfréttir - 29.05.1986, Page 8
8 Fimmtudagur 29. maí 1986
VÍKUR-fréttir
Innbrot, þjófnaður og
skemmdarverk
Nokkuð var um skemmdar-
verk sem tilkynnt voru til lög-
reglunnar í Keflavík í síðustu
viku. Næst síðasta sunnudag
var útvarpstæki stolið úr
bifreið með JO-númeri er
stóð í Keflavík. Þá var rúða
brotin í Ö-bifreið við Kefla-
víkurhöfn.
Á mánudag voru útileiktæki
SNYRTI- Og NUDDSTOFA
BÝÐ UPP Á:
Andlitsböð, húðhreinsun, litun, plokkun,
avax-fótavax, fót- og handsnyrtingu,
förðun, líkamsnudd og Germani Montail-
snyrtivörur fyrir dömur og herra.
Síðan er sauna-gufubað til að losa um
stressið og láta sér líða vel.
Nýkomnir Ijósalampar.
Opið mánudaga-laugardaga kl. 9-17.
Víe/Áxurufv
Skrifstofa félagsins
að Tjamargötu 3, II. hæð, er opin fimmtudaga
frá kl. 16-18. - Síminn er 2959.
Heimasími formanns er 3445.
ATVINNA
Sumarafleysingastúlkur óskast, æskileg-
ur aldur ekki yngri en 25 ára. - Upplýsingar
í síma 7755
Sími 7755 - Sandgerði
Atvinna
Óskum eftir starfsmanni við framköllun.
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu
eða reynslu í Ijósmyndun.
Keflavik - Síml 3933
Tónlist
Ljósmyndavörur
Framköllun
skemmd á gæsluvellinum við
Kópabraut í Innri-Njarðvík.
Degi síðar voru unnar
skemmdir á vinnu- og kaffi-
skúrum Húsaness á bak við
Stapafell í Keflavík. Voru
rúður brotnar og verkfærum
stolið.
Þá voru á fimmtudag unnar
skemmdir á bifreið í Njarðvík
þegar gerð var tilraun til að
gengsetja hana, án árangurs.
Að lokum var grjóti kastað í
Y-Njarðvíkurkirkju og kirkju-
klukkurnar. Voru þaraðverki
sex strákar sem náðust, en
þeir höfðu einnig á samvisk-
unni ónæði við heimili sókn-
arprestsins. - epj.
Kolbrún
hafnaði í
4. sæti
Keppnin um titilinn
„Ungtrú ísland“ fór fram um
síðustu helgi. Keflvíkingar
áttu tvo fulltrúa i keppninni
og hafnaði Kolbrún Jenný
Gunnarsdóttir í 4. sæti af
þeim fimm sem voru kunn-
gjörð. Gígja Birgisdóttir, 18
ára Akureyringur, var valin
ungfrú Island 1986.
Nokkurrar óánægju gætti
með úrslitin meðal Keflvík-
inga sem fjölmenntu á Broad-
way þetta kvöld. -gæi.
Hvað skyldi vera svona merkilegt
þarna til hliðar? - Svar: Jú, dóm-‘
nefndin.
Svipast um á Suðurnesjum
1. maí 1986
Sungið af Ólafi Gunnlaugssyni í Félagsbíói,
1. maí (að mestu byggt á Víkur-fréttum)
Ég œtla nú um Suðurnes að svipast
og sjá hvað er að gerast á þeim stað,
og vita hvort þeim farið er að fipast,
þótt fœstir muni viðurkenna það.
En eitthvað reynist stjórnin vera rotin,
svo rýrnar bœði hagur minn og þinn,
því nœstum allur, stóri fiskiflotinn,
er farinn burt með aflakvótann sinn.
I Garðinum er margur nú í nauðum,
nánast hafa misst sinn kraft og þor,
og feiknin öll af fyrirtækjum dauðum,
og flestir spá að Ellert hætti í vor.
En Garðmenn eiga í önnur hús að venda,
svo ætla má að framtíðin sé tryggð,
en þorskhausa til Sandgerðis þeir senda,
sem er þeirra rétta heimabyggð.
En hvernig var hjá Grindvíkingum gengið?
Jú, góðæri og mikil aflatörn.
Og dóminn hafa foreldramir fengið,
að fæstir geta alið upp sín börn.
Hjá lögreglunni lífið tók að dafna,
sem líka fór að hugsa nokkuð skár.
í vinsældum þar voru svo að kafna
Víkurfréttir síðast liðið ár.
Um Vogana er vandalaust að keyra,
og víst er aðeins gott eitt um þá sagt,
og fremur lítið láta í sér heyra,
en leggja stund á dans og ýmsa rækt.
Svo kannski fara Vogarnir að vaxa,
þótt verði sveitarstjóra-skipti enn
Um allar jarðir líta má þar laxa,
sem lifa vel í sátt við guð og menn.
Og Njarðvík ennþá styrkir stöðu sína,
staðinn getur enginn maður rýrt,
því Ingvar selur kanínur til Kína
og kuldaboli okkur varmann dýrt.
Þótt prófkjörin þar engri sálu omi,
auðvitað þar mikill styrkur er,
að kratar eiga góðan hauk í homi,
sem heldur betur núna Öskar sér.
í Miðneshreppi að mörgu var að hyggja,
menningin þar hefur tryggt sér völd,
og yfir Þorstein búið er að byggja,
hið besta hús sem stendur næstu öld.
Og loðnuna þeir líka voru að bræða,
svo lyktin slæm í nágrenninu var,
á Flugstöðinni fýsti þá að græða,
-en fjandinn hitti ömmu sína þar.
í Keflavík er hótel-röð að rísa,
sem reyndar skapar alveg nýjan glans,
en þorskur, karfi, koli og svo ýsa,
hverfa brátt úr vitund íbúans.
Og gnötrandi nú geifla sig og hrista,
Guffi, Jói, Drífa og Ingó Fals,
því Gylfa tókst að lemja saman lista,
og líklegur hann þykir nú til alls.
Og karlar létu lengi á sér standa,
liðu konum ýmiskonar plott,
en hafa núna leyst þann Ijóta vanda,
og leigt sér athvarf, bara nokkuð gott.
Og fógetinn þér meinar allan ósið,
enda hefur fengið til þess völd,
hann búinn er að banna stjörnuljósið,
nema bara rétt á gamlárskvöld.
Og Hafnabyggð er ekki gott að gleyma,
þar gefa aldrei menn upp sína von,
þar eiga margir þekktir kappar heima,
Þórarinn og Björgvin Lúthersson.
-En hvort lifa Suðurnes með sóma,
séð ég gjörla, ekki núna fæ,
né hvort verði aftur allt í blóma
við athugum það, næsta fyrsta maí.